Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 52/2012

Þriðjudaginn 24. september 2013

 

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 24. apríl 2012 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 14. apríl 2012. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður), dags. 18. janúar 2012, þar sem hann var krafinn um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði vegna mánaðanna maí–ágúst 2011 ásamt viðbættu álagi.

Með bréfi, dags. 30. apríl 2012, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 8. maí 2012.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 14. maí 2012, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir kæranda bárust þann 30. maí 2012 með bréfi, dags. 24. maí 2012.

I. Sjónarmið kæranda.

Í kæru greinir að kærandi hafi sent Fæðingarorlofssjóði afrit af þeim launaseðlum sem óskað hafi verið eftir auk skriflegra skýringa á greiðslum og atvikum málsins í kjölfar þess að honum hafi verið tilkynnt um hugsanlega ofgreiðslu úr sjóðnum. Kæranda hafi þá borist greiðsluáskorun, dags. 18. janúar 2012, auk útreiknings á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs. Athugasemdum kæranda hafi ekki verið svarað efnislega heldur hafi einungis verið vísað til laga nr. 95/2000 og tekið fram að litið hafi verið svo á að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði. Í kjölfarið hafi kærandi sent Fæðingarorlofssjóði ítarlegar athugasemir við niðurstöðu sjóðsins í tölvupósti þann 16. febrúar 2012. Í svari Fæðingarorlofssjóðs, dags. 17. febrúar 2012, hafi verið tekið fram að sjóðnum hafi borist útskýringar kæranda og tekið dæmi um útreikning á skerðingu. Þá hafi stuttlega verið tekið fram að Fæðingarorlofssjóður tæki ekki tillit til kjarasamningsbundins réttar kæranda að fá greiddan mismun fæðingarorlofsgreiðslna og fastra mánaðarlauna frá vinnuveitanda og vitnað til 13. gr. laga nr. 95/2000 í því sambandi. Jafnframt hafi komið fram að Fæðingarorlofssjóður liti svo á að ekkert hafi komið fram í gögnum kæranda sem leitt hafi til þess að álag yrði fellt niður. Kærandi hafi þá haft samband við Fæðingarorlofssjóð símleiðis en fengið þau svör að ekki væri mögulegt að fá fund með þeim starfsmanni sem unnið hafði málið þar sem viðkomandi væri ekki við en skilaboðum yrði komið til starfsmannsins og myndi hann hringja í kæranda. Kæranda hafi verið farið að lengja eftir símtali og hafi því haft á ný samband við sjóðinn en þá fengið þær upplýsingar að málið hafi verið sent til innheimtu og væri ekki lengur á borði Fæðingarorlofssjóðs.

Kærandi byggir á því að Fæðingarorlofssjóður hafi ekki tekið tillit til þeirra breytinga sem urðu á störfum hans á því tímabili frá því að viðmiðunartímabili meðaltals heildarlauna hafi lokið þangað til kærandi hafi farið í fæðingarorlof. Fæðingarorlofssjóður beri saman meðallaun á tímabili sem kærandi hafi verið í skóla og unnið með annars vegar og hins vegar laun eftir útskrift þrátt fyrir að grundvallarbreytingar hafi orðið á störfum kæranda. Þá bendi kærandi einnig á að hann hafi ekki náð að fylla fulla vinnuskyldu þá mánuði sem viðmiðunartímabilið hafi náð yfir þar sem hann hafi verið í námi. Því séu mánuðir á viðmiðunartímabilinu þar sem kærandi hafi verið með litlar tekjur.

Einnig kemur fram í kæru að kærandi byggi á því að Fæðingarorlofssjóður taki ekki tillit til kjarasamningsbundinna réttinda kæranda um rétt til greiðslu frá vinnuveitanda á mismuni fastra mánaðarlauna og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði. Í kjarasamningi milli Félags ráðgjafarverkfræðinga annars vegar og Verkfræðingafélags Íslands og Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands hins vegar komi fram í grein 5.3.2 að áunninn réttur starfsmanns samkvæmt eldri kjarasamningi um að greiðslur í fæðingarorlofi verði aldrei lægri en föst mánaðarlaun viðkomandi skerðist ekki. Nái greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði ekki föstum mánaðarlaunum starfsmannsins skuli vinnuveitandi greiða það sem upp á vanti.

Jafnframt byggir kærandi á því að útreikningar Fæðingarorlofssjóðs á endurkröfu sjóðsins samræmist ekki skýrum reglum laganna. Kærandi telji ljóst að við útreikning á endurkröfu sjóðsins beri að draga greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði frá meðaltalsheildarlaunum kæranda og þá komi út sú greiðsla sem kærandi megi þiggja frá vinnuveitanda án þess að hún komi til frádráttar. Kærandi telji að Fæðingarorlofssjóði beri að líta einungis til þeirra daga sem hann hafi verið í fæðingarorlofi en sé óheimilt að líta þess hluta mánaðarins sem hann hafi ekki verið í fæðingarorlofi.

Þá telji kærandi sig hafa sýnt nægilega fram á að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Fæðingarorlofssjóðs og telji því að sjóðnum beri að falla frá 15% álagi á endurkröfu. Þetta styðji kærandi á þann veg að Fæðingarorlofssjóður hafi ítrekað túlkað aðstæður kæranda í óhag auk þess sem litið hafi verið framhjá réttindum kæranda. Því telji kærandi ljóst að honum hafi verið ómögulegt að sjá fyrir þá niðurstöðu Fæðingarorlofssjóðs sem hafi orðið.

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að með bréfi Fæðingarorlofssjóðs til kæranda, dags. 20. desember 2011, hafi athygli hans verið vakin á því að stofnunin væri með til meðferðar mál hans vegna hugsanlegrar ofgreiðslu fyrir tímabilið maí–ágúst 2011. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hafi hann fengið laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hann þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum, tímaskýrslum, útskýringum vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Tölvupóstur hafi borist frá kæranda, dags. 14. janúar 2012, ásamt skýringum, dags. 13. janúar 2012, og sundurliðunarblaði. Auk þess hafi umbeðnir launaseðlar borist. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 18. janúar 2012, ásamt sundurliðun ofgreiðslu þar sem hann hafi verið krafinn um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar fyrir tímabilið ásamt 15% álagi. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. maí 2011 og innsendum gögnum að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði skv. 9. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008, nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Í kjölfarið hafi borist tölvupóstur og bréf frá kæranda, dags. 16. febrúar 2012, sundurliðunarblað, vottorð um skólavist, frekari launaseðlar, bréf frá vinnuveitanda kæranda, dags. 15. febrúar 2012, og kjarasamningur. Innsend gögn hafi ekki þótt gefa tilefni til að breyta fyrri ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs í málinu og kæranda verið sent bréf um það, dags. 17. febrúar 2012.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. sé fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra á vinnumarkaði til fæðingarorlofs og í 10. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, sem hafi verið í gildi við fæðingardag barns kæranda sé kveðið á um að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram sé og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem ljúki sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn komi inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli taka mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemi þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. Aldrei skuli þó miða við færri mánuði en fjóra við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011, skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris. Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, segi orðrétt:

Talið er mikilvægt að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim er ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri tekjutapið bætt frá vinnuveitanda er eðlilegt að það komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er gert ráð fyrir að foreldri geti fengið bætur annars staðar frá fyrir þann tekjumissi er Fæðingarorlofssjóði er ekki ætlað að bæta. Kæmi sá hluti því ekki til frádráttar. Er því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þegar foreldri hefur hærri tekjur en hámarkstekjurnar sem lagt er til að verði miðað við skv. 3. mgr. þá er gert ráð fyrir að hærri greiðslur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geta orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geta talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Með þessum hætti er verið að undirstrika tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem er aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki. Er með þessu enn fremur lögð rík áhersla á að foreldrar leggi sannanlega niður launuð störf á þeim tíma er þeir nýta sér rétt sinn samkvæmt lögunum.

Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, segi orðrétt:

Lögin um fæðingar- og foreldraorlof gera ráð fyrir að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til ákveðinna breytinga á launakjörum foreldra skv. 9. mgr. 13. gr. laganna. Þykir mikilvægt að tekið sé fram að eingöngu sé verið að miða við greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ástæðan er einkum sú að foreldrar kunna að eiga rétt á eingreiðslum frá vinnuveitendum á ákveðnum tíma árs sem koma til framkvæmda meðan foreldri er í fæðingarorlofi en er ætlað fyrir lengra tímabil en nemur fæðingarorlofstíma foreldris. Dæmi um slíkar greiðslur eru bónusgreiðslur sem koma til framkvæmda við árslok en miðast við frammistöðu starfsmanns eða velgengni fyrirtækis á hluteigandi ári.

Í athugasemdum við 4. gr. laga nr. 90/2004 sé umfjöllun um hvað átt sé við með upphafsdegi fæðingarorlofs. Þar komi meðal annars fram að reynt hafi á þetta atriði í erindum til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála þar sem foreldrar hafi ekki viljað líta heildstætt á rétt sinn til fæðingarorlofs. Hafi feður viljað miða við síðara tímamark en fæðingu barns, þ.e. við þann tíma sem þeir sjálfir hefji töku orlofs. Sú skýring hafi þótt brjóta gegn þágildandi lögum nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, (nú lögum nr. 10/2008) í ljósi þess að karlar hafi átt hægara um vik en konur að vinna sér inn réttinn eftir að barnið fæðist. Þessu til stuðnings hafi verið á það bent að réttur til fæðingarorlofs stofnist við fæðingu barns, sbr. 2. mgr. 8. gr. laganna. Því hafi þótt rétt að hafa samræmi milli ákvæða laganna þannig að um sömu viðmið væri að ræða enda tilgangur laganna að líta heildstætt á rétt foreldra til fæðingarorlofs. Þegar um væri að ræða fæðingarorlof vegna fæðingar hafi því verið gert ráð fyrir að miðað væri við áætlaðan fæðingardag barns, sbr. 2. mgr. 8. gr. laganna. Með 8. gr. laga nr. 74/2008 hafi því verið breytt í fæðingardag barns í stað áætlaðs fæðingardags barns.

Í samræmi við framangreint sé við mat á núgildandi 10. mgr. 13. gr. ffl. (var áður 9. mgr. 13. gr. ffl.) ekki heimilt að taka tillit til hugsanlegra breytinga á launum foreldris eftir fæðingardag barns. Einungis sé heimilt að taka tillit til hugsanlegra launabreytinga á því tímabili frá því að viðmiðunartímabili skv. 2. eða 5. mgr. ljúki og fram að fæðingardegi barns.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, komi fram hvaða laun skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Samkvæmt ákvæðinu skuli telja til launa hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeninga, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um tryggingagjald, nr. 113/1990, sé stofn til tryggingagjalds allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld séu skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003. Í 7. og 8. gr. laga um tryggingagjald sé frekari upptalning á því hvað teljist til gjaldstofns tryggingagjalds skv. 6. gr. laganna og í 9. gr. sé upptalning á því hvaða greiðslur séu undanþegnar tryggingagjaldi. Við mat á því hvaða greiðslur vinnuveitenda megi fara með og hvaða greiðslur megi ekki fara með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé því nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar hvaða greiðslur það séu sem sjóðurinn telji með þegar fundið sé út meðaltal heildarlauna foreldris.

Í 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni hafi foreldri fært rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Ekki hafi komið fram nein rök sem gefi tilefni til að fella niður 15% álag á kæranda.

Með umsókn kæranda, dags. 1. apríl 2011, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í fjóra mánuði vegna barns hans sem fæddist Y. maí 2011. Ein tilkynning hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs og hann afgreiddur í fæðingarorlof í samræmi við hana, sbr. greiðsluáætlun til hans, dags. 2. maí 2011.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hans verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau verið komin í X kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda honum til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 9. mgr. 13. gr. ffl. (nú 10. mgr. 13. gr. ffl.). Enga heimild sé að finna í ffl. eða í reglugerð um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, nr. 1218/2008, að taka tillit til launabreytinga foreldris eftir fæðingardag barns við mat á hugsanlegri ofgreiðslu.

Í maí 2011 hafi kærandi þegið X kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Hann hafi því fengið sem svari 124% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitendum sínum í mánuðinum og hefði því ekki mátt þiggja neina greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir maí 2011 sé því X kr. útborgað.

Í júní 2011 hafi kærandi þegið X kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Hann hafi því fengið sem svari 114% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitendum sínum í mánuðinum og hefði því ekki mátt þiggja neina greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir júní 2011 sé því X kr. útborgað.

Í júlí 2011 hafi kærandi þegið X kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Hann hafi því fengið sem svari 95% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hefði því mátt þiggja 5% greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir júlí 2011 sé því X kr. útborgað.

Í ágúst 2011 hafi kærandi þegið X kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Hann hafi því fengið sem svari 103% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hefði því ekki mátt þiggja neina greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir ágúst 2011 sé því X kr. útborgað.

Eins og að framan hafi verið rakið sé fæðingarorlof skv. 1. mgr. 7. gr. ffl. leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur.

Í 9. mgr. 13. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, komi fram eins og áður segi sú fortakslausa regla að greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna skv. 2. mgr. skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í athugasemdum við 9. mgr. 13. gr. ffl. sé svo enn frekar hnykkt á því en þar komi fram að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og að tilgangur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sé aðallega að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki.

Framangreindu ákvæði hafi lítillega verið breytt árið 2008, sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008. Við hafi bæst setningin: „Eingöngu skulu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.“ Í athugasemdum við þá breytingu hafi þó áfram komið fram sú fortakslausa regla að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Því hafi breytingin fyrst og fremst virst hafa átt að taka til eingreiðslna og annarra slíkra greiðslna frá vinnuveitendum sem foreldri geti átt rétt á á ákveðnum tíma árs og komi til framkvæmda meðan foreldri sé í fæðingarorlofi en sé ætlað fyrir lengra tímabil en nemi fæðingarorlofi foreldris, sbr. framangreindar athugasemdir með ákvæðinu og tilvitnað dæmi.

Við mat á hugsanlegri ofgreiðslu geri ákvæðið þannig ráð fyrir að litið sé til hvers almanaksmánaðar fyrir sig og hlutfalls fæðingarorlofs í hverjum mánuði og þess hvort greiðslur frá vinnuveitanda séu hærri en sem nemi mismuni greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltali heildarlauna foreldris á viðmiðunartímabili skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. ffl., eftir atvikum að teknu tilliti til launabreytinga fram að fæðingu barns ef um það sé að ræða. Ljóst sé því að ákvæðið opni ekki á það að foreldri geti valið að vera í fæðingarorlofi hluta dags eða hluta mánaðar og lagt niður vinnu þann tíma án þess þó að laun lækki hlutfallslega í samræmi við framangreint og það leiði þannig til þess að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði komi í raun til viðbótar við greiðslur frá vinnuveitanda að hluta eða öllu leyti. Með þeim hætti væri enda tilgangi greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, sem sé aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki og að allar greiðslur sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum, ekki náð.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað að viðbættu 15% álagi X kr. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði X kr., sbr. greiðsluáskorun til hans ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 18. janúar 2012.

III. Athugasemdir kæranda

Kærandi segir í athugasemdum sínum að Fæðingarorlofssjóður hafi hvorki tekið tillit til breytinga og/eða launahækkana sem hafi orðið fyrir fæðingu barns hans né heldur þeim sem hafi orðið eftir fæðingu barns. Kærandi efist um lögformlegt gildi athugasemda með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, og athugasemda með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008. Eftir standi að í 13. gr. laganna sé tekið fram að taka skuli tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja má til breytinga á störfum foreldris. Þá sé hvergi getið um að þetta eigi einungis við um tiltekið tímabil og því verði að ætla að þetta eigi við á meðan töku fæðingarorlofs stendur óháð því hvort barn sé fætt eður ei. Enda væri að mati kæranda í öllu falli óeðlilegt að orlofsþegar yrðu að afsala sér kjarasamningsbundnum réttindum, svo sem launahækkunum, til að eiga ekki á hættu á að þurfa að endurgreiða sjóðnum af orlofsfjárhæðinni.

Fæðingarorlofssjóður hafi ekki svarað þeim rökum að samkvæmt kjarasamningi eigi kærandi þau kjarasamningsbundnu réttindi að honum sé greitt af vinnuveitanda það sem upp á vanti, nái greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði ekki föstum mánaðarlaunum.

Þá telur kærandi Fæðingarorlofssjóð ekki færa rök fyrir því hvernig reikniaðferðir sjóðsins samræmist lýsingu á útreikniaðferð sem lýst sé í ffl. Auk þess sem kærandi líti svo á að Fæðingarorlofssjóður sé að líta til greiðslna sem voru ekki fyrir sama tímabil og kærandi var í fæðingarorlofi.

Í athugasemdum bendir kærandi einnig á að þar sem túlkun kæranda annars vegar og Fæðingarorlofssjóðs hins vegar sé jafn ólík og raun ber vitni virðist sem svo að löglærða þurfi til að skera úr um ágreining þennan. Því hafi kærandi ekki getað gert sér grein fyrir túlkun Fæðingarorlofssjóðs þegar hann hóf töku fæðingarorlofs. Kærandi hafi því verið í góðri trú um að það fyrirkomulag sem valið hafi verið myndi samræmast reglum um töku fæðingarorlofs. Því telji kærandi sig ekki geta borið ábyrgð á útreikningum sjóðsins og hafni því alfarið að honum verði kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Fæðingarorlofssjóðs. Því telji kærandi að falla beri frá 15% álagi.

IV. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur vegna mánaðanna maí, júní, júlí og ágúst 2011 úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. maí 2011, auk 15% álags.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið of há laun frá vinnuveitanda sínum í maí, júní, júlí og ágúst 2011 á sama tíma og hann þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði.

Kærandi byggir í fyrsta lagi á því að ekki hafi verið tekið tillit til þeirra breytinga sem urðu á störfum kæranda frá því að viðmiðunartímabili meðaltals heildarlauna lauk þangað til að kærandi fór í fæðingarorlof.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 2. mgr. 10. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir meðal annars að með samkomulagi við vinnuveitanda sé starfsmanni heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. maí 2011. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá nóvember 2009 til október 2010. Í greiðsluáætlun, dags. 2. maí 2011, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því X kr. Af útreikningi sem fylgdi hinni kærðu ákvörðun frá 18. janúar 2012 má hins vegar sjá að litið var til launa kæranda eftir að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barns hans og miðað við X kr. meðallaun við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs. Er það samkvæmt heimild í 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, til hækkunar á meðaltals heildarlaunum vegna launahækkana eftir lok viðmiðunartímabils en fyrir fæðingu barns. Er það kæranda til hagsbóta.

Í athugasemdum við 4. gr. laga nr. 90/2004, sem breytti ákvæði 13. gr. ffl., segir að mikilvægt sé að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim sé ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Sé því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó sé heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geti orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geti talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Þá kemur fram í athugasemdunum að með upphafsdegi fæðingarorlofs sé átt við áætlaðan fæðingardag barns, sbr. 2. mgr. 8. gr., en við 2. umræðu frumvarpsins á Alþingi voru þær breytingar gerðar á frumvarpinu að miða skyldi við raunverulegan fæðingardag barns en ekki áætlaðan. Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. maí 2011 og koma því launahækkanir kæranda eftir það tímamark ekki til skoðunar. Þegar af þeirri ástæðu er ekki heimild til að taka til greina málsástæðu kæranda sem lýtur að launabreytingum vegna breytinga á störfum hans eftir fæðingardag barnsins, en nauðsynlegt er við lögskýringu umrædds ákvæðis að líta til greinargerðar með frumvarpi til þess ákvæðis sem verið er að skýra. Er það í samræmi við hefðbundnar lögskýringaraðferðir og verður því ekki fallist á þá málsástæðu kæranda að eingöngu skuli líta til orðalags ákvæðis 13. gr. ffl., en ekki til greinargerðar með ákvæðinu.

Með vísan til framangreinds er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð X kr., líkt og gert er í hinni kærðu ákvörðun, en það er meðaltal heildarlauna kæranda samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK frá því að viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. lauk og fram að fæðingu barns hans. Engin heimild er til þess í ffl. að taka tillit til ástæðna þess að laun kæranda á viðmiðunartímabili voru lægri en þau hefðu ella getað verið, svo sem vegna náms eða vinnu við lokaritgerð kæranda, eða taka mið af tekjum kæranda á öðru tímabili en skilgreindu viðmiðunartímabili samkvæmt framangreindu.

Með vísan til alls ofangreinds er það niðurstaða nefndarinnar að réttilega hafi verið staðið að útreikningi viðmiðunarlauna hjá Fæðingarorlofssjóði.

Í öðru lagi byggir kærandi á því að útreikningar Fæðingarorlofssjóðs séu ekki í samræmi við ákvæði ffl., en kærandi telji skýrt af lestri laganna að mismunur meðaltals heildarlauna foreldris og greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði myndi skerðingarmark greiðslna frá vinnuveitanda. Kærandi hafni þeirri túlkun sjóðsins að foreldri sem sé í 50% fæðingarorlofi á móti vinnu megi ekki hafa í laun nema 50% af meðaltals heildarlaunum foreldris á viðmiðunartímabilinu. Kærandi telji að foreldri sem sé í 50% fæðingarorlofi eigi rétt á að fá 50% af fullri orlofsgreiðslu en hin 50% mánaðarins sé foreldri ekki í fæðingarorlofi og því komi greiðslur fyrir það tímabil ekki til frádráttar fæðingarorlofsgreiðslum, þrátt fyrir að launagreiðslur nemi fullum meðaltals heildarlaunum eða meira.

Samkvæmt ákvæði 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði, en úrskurðarnefnd hefur miðað við almanaksmánuði í þessu sambandi, sbr. til dæmis úrskurð nefndarinnar í máli nr. 49/2012.

Þar sem kærandi þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði á tímabilinu frá maí til ágúst 2011 var honum einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni meðaltals heildarlauna hans eins og þau voru hækkuð skv. 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði án þess að greiðslur vinnuveitanda til hans kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Líkt og áður segir er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð X kr. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði í samræmi við 50% fæðingarorlof í maí, júní, júlí og ágúst 2011, alls X kr., og var honum því heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda að fjárhæð X kr. á því tímabili án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Er þessi túlkun í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greidd laun frá vinnuveitanda sínum í maí 2011 að fjárhæð X kr., í júní 2011 að fjárhæð X kr., í júlí 2011 að fjárhæð 466.892 kr. og í ágúst 2011 að fjárhæð X kr. Kærandi þáði þannig hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en honum er heimilt skv. ffl. fyrir umrædda mánuði. Verður niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu því staðfest, þó með þeim breytingum sem greinir í úrskurðarorði. 

Af gögnum málsins má sjá að hin kærða ákvörðun byggði á tilteknum hlutfallsútreikningi. Það er álit úrskurðarnefndar, með vísan til álits umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013, að sú aðferð sé ekki í samræmi við ákvæði ffl. og því er hin kærða ákvörðun felld úr gildi.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar að kærandi hafi fengið ofgreitt fæðingarorlof og því beri honum að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.

Í þriðja lagi byggir kærandi á því að Fæðingarorlofssjóður hafi ekki litið til þeirra kjarasamningsbundnu réttinda kæranda að fá greiddan mismun milli fastra mánaðarlauna og greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Samkvæmt kjarasamningi milli annars vegar Félags ráðgjafarverkfræðinga og hins vegar Verkfræðingafélags Íslands og Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands skuli vinnuveitandi greiða framangreindan mismun nái greiðsla Fæðingarorlofssjóðs ekki föstum mánaðarlaunum starfsmannsins.

Um framangreind réttindi kæranda segir eftirfarandi í grein 5.3.2 í Kjarasamningi milli annars vegar Félags ráðgjafarverkfræðinga og hins vegar Verkfræðingafélags Íslands og Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands: „Áunninn réttur starfsmanns samkvæmt eldri kjarasamningi um að greiðslur í fæðingarorlofi verði aldrei lægri en föst mánaðarlaun viðkomandi skerðist ekki. Nái greiðsla úr fæðingarorlofssjóði ekki föstum mánaðarlaunum starfsmannsins skal vinnuveitandi greiða það sem á vantar.“ Í kjarasamningnum er reifað umrætt ákvæði í eldri kjarasamningi sem hljóðaði svo: „Sé launþeginn móðir á hún rétt á fullum fæðingarorlofsgreiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins í sex mánuði. Að auki komi styrkur frá vinnuveitanda sem nemur mismun á fullum fæðingarorlofsgreiðslum Tryggingastofnunar og fullum dagvinnulaunum skv. ráðningar-, vinnustaða- og/eða kjarasamningi.“ Þannig vísar eldra ákvæðið til „fullra fæðingarorlofsgreiðslna“ og „fullra dagvinnulauna“. Að mati nefndarinnar er því ljóst að grein 5.3.2 í kjarasamningi þeim er gildir fyrir kæranda mælir fyrir um það að nái greiðslur Fæðingarorlofssjóðs fyrir 100% fæðingarorlof ekki fullum mánaðarlaunum fyrir dagvinnu, skuli vinnuveitandinn greiða mismuninn þar á. Sé foreldri í 50% fæðingarorlofi skal vinnuveitandinn, í samræmi við þetta sem og í samræmi við ákvæði 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl., greiða þann mismun sem vera kann á meðaltals heildarlaunum foreldris skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. ffl. og summu greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði og greiðslna fyrir vinnuframlag foreldris. Er sá mismunur þá greiddur sem styrkur eða bætur til foreldris. Þannig miðast heimilar heildargreiðslur til foreldris ávallt við meðaltal heildarlaun foreldris í skilningi ffl., enda er ekki heimilt samkvæmt lögunum að líta til launahækkana eftir fæðingu barns við útreikning á endurgreiðslu, svo sem fyrr greinir.

Það fær ekki stoð í gögnum málsins, sbr. sérstaklega framlagða launaseðla, að greiðslur vinnuveitanda til kæranda séu grundvallaðar á þeim ákvæðum kjarasamnings sem hér er vísað til. Þvert á móti benda gögnin til þess að greitt hafi verið fyrir starf í starfshlutfalli. Verður ekki fallist á þessa málsástæðu kæranda

Þá krefst kærandi þess sérstaklega að 15% álag verði fellt niður. Kærandi telur sig hafa sýnt nægilega vel fram á að honum verði ekki kennt um þá annmarka sem leiddu til ákvörðunar Fæðingarorlofssjóðs þar sem hann hafi verið í góðri trú, enda telji hann það hafa verið ómögulegt fyrir aðra en löglærða að sjá fyrir niðurstöðu hinnar kærðu ákvörðunar.

Í 2. mgr. 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004 og 5. gr. laga nr. 155/2006, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Þá segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Með umsókn kæranda um fæðingarorlof veitti hann ýmsar upplýsingar vegna fyrirhugaðs orlofs. Í umsókninni er feitletraður og undirstrikaður texti með yfirlýsingu umsækjanda um að hann heimili Vinnumálastofnun að afla gagna úr skattskrám og að hann sé upplýstur um að þessi gögn verði notuð til eftirlits. Þá segir orðrétt „Með undirskrift minni staðfesti ég einnig að láta Fæðingarorlofssjóð vita um allar breytingar sem kunna að hafa áhrif á afgreiðslu umsóknar þessarar og/eða greiðslur samkvæmt henni.“ Í umsókninni gaf kærandi engar upplýsingar um tekjur og ekki er þar tekið fram að breytingar á þeim séu á meðal þess sem tilkynna beri um. Í framhaldi af þessari umsókn var kæranda send greiðsluáætlun þar sem sérstaklega var tiltekið að greiðslur sjóðsins miðist við „hlutfall af meðaltekjum þínum samkvæmt skrám skattyfirvalda á 12 mánaða samfelldu tímabili sem lýkur 6 mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns“ og var því beint til kæranda að yfirfara upplýsingar um tekjur á þessu tímabili sem fylgdu áætluninni. Í smáu letri sem fylgdi kom fram að yrðu „breytingar á lágmarksgreiðslu, skatthlutfalli, persónuafslætti eða öðrum forsendum sem hafa áhrif á greiðslur geta fjárhæðir breyst“. Hvergi var á hinn bóginn minnst á breytingar á tekjum eftir að umræddu tímabili lauk eða að þær gætu skipt máli. Þegar þessi samskipti kæranda og stjórnvaldsins eru skoðuð heildstætt er útilokað að leggja ábyrgðina á því að kærandi upplýsti ekki sjóðinn um breyttar tekjur sínar á kæranda. Verður því hafnað að leggja 15% álag á endurgreiðsluna.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kærandi, A skal endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr. vegna ofgreidds fæðingarorlofs.  

 

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum