Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtbo%C3%B0sm%C3%A1la

Mál nr. 25/2019. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 11. október 2019
í máli nr. 25/2019:
Öryggismiðstöð Íslands hf.
gegn
Ríkiskaupum
og Sjúkratryggingum Íslands

Með kæru 27. september 2019 kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. útboð Ríkiskaupa fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir vísað til sem varnaraðila) nr. V20769 „Sjúkrabifreiðar 2018-2019“. Kærandi gerir þá kröfu að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila um að hafna tilboði kæranda í hinu kærða útboði. Þá er gerð krafa um að varnaraðila verði gert að greiða kæranda málskostnað. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

Varnaraðili auglýsti útboð nr. V20769 „Sjúkrabifreiðar 2018-2019“ í júlí 2018 þar sem óskað var eftir 25 nýjum sjúkrabifreiðum. Samkvæmt grein 4.1 í útboðsgögnum skyldu boðnar bifreiðar vera í samræmi við þær tæknikröfur sem kæmu fram í kröfulýsingu undir flipa 9 í tilboðshefti. Flipi 9 nefndist „Tæknilýsing staðfest“ en um var að ræða töflu þar sem fyrsti dálkurinn tilgreindi kröfur í alls 219 töluliðum. Efst í dálkinum sagði: „Tilboð skulu uppfylla eftirfarandi atriðalista sem lágmarkskröfur um hönnun og útbúnað boðinnar sjúkrabifreiðar“. Við hlið þessa dálks voru tveir dálkar, annars vegar dálkur sem nefnist „Tölulegar upplýsingar“ og hins vegar dálkur sem nefnist „Aðrar lýsandi upplýsingar eða tilvísun sem númer í númeruð tilboðsgögn“. Í skýringum efst í skjalinu sagði eftirfarandi um það hvernig bæri að fylla út skjalið: „Bjóðendur skulu fylla hér út viðeigandi tölulegar upplýsingar eða aðrar lýsandi upplýsingar, eða vísa til merktra fylgigagna þannig að meta megi tilboðið til framangreindrar lágmarkskröfu“. Eftirfarandi krafa var nr. 107 í tæknilýsingunni: „Stóll framan við sjúkrabörurnar (við milliþil) með fjögra punkta belti. Stóllinn skal staðsettur fyrir miðju á sjúkrabörunum og um 20 cm frá fremstu brún á sjúkrabörunum (höfuðgafli) þegar hann er í fremstu stöðu. Stóllinn skal hafa færslu upp á 15 cm. Undir stólnum skal vera geymsluhólf“. Á fyrirspurnartíma voru gerðar breytingar á kröfunni, en þær lutu ekki að því hvar stóllinn skyldi vera staðsettur.

Kærandi skilaði tveimur tilboðum í útboðinu. Í báðum tilboðum var merkt „staðfest“ við kröfu nr. 107 í tæknilýsingunni. Þá sagði í þriðja dálkinum: „Sjúkrabílar verða afhentir með stól fyrir framan sjúkrabörur í samræmi við þessa kröfu. Sjá frekari upplýsingar í kafla 9 í skjali Tæknilýsing ítarupplýsingar með myndum.“ Hinn 5. september 2019 sendi varnaraðili tölvupóst til kæranda þar sem vísað var til kröfu nr. 107 og bent á að í öllum teikningum og myndum í tilboðum kæranda væri stóllinn staðsettur fyrir miðju í sjúkrarýminu, ekki fyrir miðju á sjúkrabörum. Óskað var eftir því að kærandi staðfesti þennan skilning. Kærandi svaraði samdægurs og sagðist staðfesta að boðin útfærsla myndi alltaf uppfylla útboðskröfur. Um væri að ræða tillögur að útfærslu en endanleg útfærsla yrði í samráði við kaupanda. Ef varnaraðili óskaði eftir teikningu þar sem stóllinn væri sýndur fyrir miðju á sjúkrabörum væri lítið mál að senda þær. Þá sagðist kærandi staðfesta að boðnir sjúkrabílar væru með stólinn staðsettan fyrir miðjum sjúkrabörum eins og farið væri fram á. Hinn 19. september 2019 tilkynnti varnaraðili að tilboðum kæranda hefði verið hafnað, enda hefði komið fram staðfesting á því að boðnar sjúkrabifreiðar uppfylltu ekki kröfur útboðslýsingar.

Kærandi vísar til þess að boðnar sjúkrabifreiðar hafi uppfyllt allar þarfir varnaraðila og öryggiskröfur. Í tilboðshefti hafi komið fram afdráttarlaus staðfesting á því að boðnar sjúkrabifreiðar yrðu afhentar með stól fyrir framan sjúkrabörur í samræmi við kröfur útboðsgagna. Í ítargögnum hafi stóllinn aftur á móti verið sýndur fyrir miðju sjúkrarýmis en með því hafi ekki verið vikið frá þeirri skuldbindingu sem kærandi hefði gengist undir með gerð tilboðsins. Þá hafi varnaraðili óskað eftir skýringum og í kjölfar þeirra hafi kærandi bent á að tilboð hans gerði ráð fyrir að þessari kröfu yrði fullnægt. Varnaraðili vísar einkum til þess að teikningar sem fylgdu tilboði kæranda hafi sýnt aðra lausn á staðsetningu stóla en krafist var í útboðsgögnum. Því hafi ekki verið annað fært en að hafna tilboðinu.

Niðurstaða

Meðal þeirra tæknilegu krafna sem gerðar voru til boðinna bifreiða í útboðsgögnum var skýr og óundanþæg krafa um staðsetningu stóls. Ekki var nægjanlegt fyrir bjóðendur að fullyrða að kröfur yrðu uppfylltar, heldur skyldi þar vísað til annarra lýsandi upplýsinga, eftir atvikum merktra fylgigagna, „þannig að meta [mætti] tilboðið til framangreindrar lágmarkskröfu“. Samkvæmt þessu var gert ráð fyrir að tilboði fylgdu upplýsingar eða gögn til að varnaraðili gæti metið hvort tæknilegar kröfur væru uppfylltar. Óumdeilt er að þær myndir sem fylgdu með tilboðum kæranda sýndu stólinn ekki á þeim stað sem gerð var krafa um. Eftir opnun tilboða og í kjölfar fyrirspurnar varnaraðila hefur kærandi boðist til að útfæra tækið eftir þörfum hans og lagt áherslu á að í reynd uppfylli boðin tæki kröfuna. Leggja verður til grundvallar, eins og mál þetta liggur fyrir nú, að varnaraðila hafi borið að meta tilboð kæranda á grundvelli þeirra gagna sem fylgdu með þeim og hafi því verið óheimilt að meta tilboð kæranda gild.

Með vísan til framangreinds telur nefndin ekki hafa verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup sem leitt geti til ógildis ákvörðunar varnaraðila um höfnun á tilboðum kæranda. Verður því að hafna kröfu kæranda um að hið kærða útboð verði stöðvað samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup.

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, Öryggismiðstöðvarinnar hf., um að stöðva útboð varnaraðila, Ríkiskaupa fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands, nr. V20769 „Sjúkrabifreiðar 2018-2019“, er hafnað.

 

Reykjavík, 11. október 2019

Ásgerður Ragnarsdóttir

Auður Finnbogadóttir

Eiríkur Jónsson



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum