Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 303/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 303/2018

Miðvikudaginn 5. desember 2018

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 28. ágúst 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 31. júlí 2018 um að synja umsókn kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 21. júní 2017, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna fyrir árið 2016 hafi leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð X kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Með umsókn til stofnunarinnar, dags. 29. janúar 2018, sótti kærandi um niðurfellingu ofgreiðslukröfu. Með bréfi, dags. 6. febrúar 2018, synjaði Tryggingastofnun ríkisins beiðni kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu á þeim grundvelli að krafan væri réttmæt og skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um alveg sérstakar aðstæður væru ekki talin vera fyrir hendi. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 22. maí 2018, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna fyrir árið 2016 hafi leitt í ljós ofgreiðslu bóta að fjárhæð X kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Með umsókn til stofnunarinnar, dags. 25. júní 2018, sótti kærandi um niðurfellingu ofgreiðslukröfu. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 31. júlí 2018, var beiðni kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu synjað á þeim grundvelli að krafan væri réttmæt og skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um alveg sérstakar aðstæður væru ekki talin vera fyrir hendi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. ágúst 2018. Með bréfi, dags. 29. ágúst 2018, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Viðbótargögn kæranda bárust úrskurðarnefnd 29. ágúst 2018 og voru þau send Tryggingastofnun ríkisins til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. september 2018. Greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins barst með bréfi, dags. 10. september 2018, og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að ákvörðun Tryggingastofnunar um að synja honum um niðurfellingu ofgreiddra bóta verði endurskoðuð.

Í kæru kemur fram að kærandi hafi í allmörg ár átt við veikindi að stríða [...] og þá hafi hann einnig verið að berjast við [...] sem hafi tekið mikið á hann andlega og líkamlega.

Kærandi hafi […] verið að vinna sig áfram í þessari baráttu en dagarnir geti verið mjög misjafnir vegna [verkja]. Hann hafi farið [...] og fengið vinnu sem hann voni að hann geti haldið. Þar vinni [...]. Kærandi eigi langa uppbyggingu framundan, bæði til að koma heilsunni í betra horf og fjárhagslega en miklar skuldir standi eftir sem hann hafi verið að semja um. Það sé mjög mikilvægt fyrir hann og bata hans að ná að hafa rútínu og geta séð fram á að ráða við að koma skuldunum niður og í skil.

Kærandi sé búinn að vera í endurskipulagningu á lífi sínu en hann geti ekki bætt á sig hærri greiðslubyrði með kröfu Tryggingastofnunar og þá geti hann ekki bætt á sig vinnu ef hann ætli að halda heilsu og krafti. Það sé honum mjög mikils virði að vita að hann geti ráðið við þær skuldbindingar sem hann sé með til að halda uppbyggingu sinni áfram.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé synjun stofnunarinnar á umsókn um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, þá skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Á skýran hátt sé tekið fram í lögum um almannatryggingar og reglugerð nr. 598/2009 að meginreglan sé sú að Tryggingastofnun skuli innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laga um almannatryggingar sem sé svohljóðandi: „Hafi Tryggingastofnun ríkisins eða umboð hennar […] ofgreitt bótaþega bætur samkvæmt lögum þessum skal stofnunin draga ofgreiddar bætur frá bótum sem bótaþegi síðar kann að öðlast rétt til, sbr. þó 2. mgr. Einnig á Tryggingastofnun […] [endurkröfurétt] á hendur bótaþega eða dánarbúi hans samkvæmt almennum reglum.“

Undantekningu frá þessari meginreglu sé að finna í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 varðandi þær kröfur sem myndist við uppgjör tekjutengdra bóta lífeyristrygginga. Þar segi: „Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.”

Á árinu 2016 hafi kærandi fengið örorkulífeyri og tengdar greiðslur frá X til X. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndaðist í uppgjöri sé sú að þegar samkeyrsla við tekjuupplýsingar af skattframtali 2017 vegna tekjuársins 2016 hafði farið fram, hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir. Endurreikningurinn byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega lögum samkvæmt.

Kæranda hafi verið send tekjuáætlun vegna ársins 2016 með bréfi, dags. 11. janúar 2016, þar sem gert hafi verið ráð fyrir að hann hefði eingöngu X kr. í lífeyrissjóðstekjur. Kærandi hafi ekki gert athugasemdir við framangreinda tillögu og hafi því fengið greitt miðað við þessar forsendur frá X 2016 til X 2016. Þann X 2016 hafi kærandi sent inn nýja tekjuáætlun þar sem að hann lækkaði lífeyrissjóðstekjurnar í X kr. en breytti engum öðrum tekjum. Kæranda hafi verið kynntar nýjar forsendur nýrrar greiðsluáætlunar með bréfi, dags. 9. júní 2016, ásamt nýrri tekjuáætlun. Kærandi hafi ekki gert athugasemdir við tekjuáætlunina og hafi fengið greitt miðað við þessar forsendur frá X 2016 til X 2016.

Við bótauppgjör ársins 2016 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi verið hærri en gert hafi verið ráð fyrir í tekjuáætlunum. Kærandi hafi á árinu verið með X kr. í launatekjur, X kr. í lífeyrissjóðstekjur og X kr. í fjármagnstekjur. Einnig hafi verið tekið tillit til iðgjalds í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð X kr. Kærandi hafi fengið greiddar X kr. frá Tryggingastofnun en hefði átt að fá X kr. Þessi mismunur hafi leitt til X kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta.

Kæranda hafi verið send tekjuáætlun vegna ársins 2017 með bréfi, dags. 26. janúar 2017, þar sem gert hafi verið ráð fyrir að hann hefði eingöngu X kr. í lífeyrissjóðstekjur. Kærandi hafi ekki gert athugasemdir við tillöguna og hafi því fengið greitt miðað við þessar forsendur frá X 2017 til X 2017.

Þann X 2017 hafi kærandi sent inn nýja tekjuáætlun þar sem að hann hafi ekki gert ráð fyrir neinum tekjum á árinu. Tryggingastofnun hafi óskað eftir gögnum með bréfi, dags. 25. apríl 2017, sem staðfestu þessar breytingar. Engin slík gögn hafi borist og þessi nýja tekjuáætlun hafi því ekki verið samþykkt.

Við reglubundið eftirlit Tryggingastofnunar í X 2017 hafi komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá. Á grundvelli nýrra upplýsinga hafi ný tekjuáætlun verið útbúin fyrir kæranda þar sem gert hafi verið ráð fyrir X kr. í launatekjur og X kr. í lífeyrissjóðstekjur. Einnig hafi verið gert ráð fyrir iðgjaldi í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð X kr. Kærandi hafi ekki gert neinar athugasemdir við tekjuáætlunina og hafi því fengið greitt miðað við þessar forsendur frá X 2017 til X 2017. 

Við bótauppgjör ársins 2017 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi verið hærri en gert hafi verið ráð fyrir í tekjuáætlunum. Kærandi hafi fengið X kr. í launatekjur, X kr. í lífeyrissjóðstekjur og X kr. í fjármagnstekjur. Einnig hafi verið tekið tillit til iðgjalds í lífeyrissjóð til frádráttar að fjárhæð X kr. Kærandi hafi fengið greiddar X kr. frá Tryggingastofnun en hefði átt að fá X kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð X kr. að teknu tilliti til staðgreiðslu skatta.

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Tryggingastofnun hafi borist umsókn kæranda, dags. 25. janúar 2018, um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu vegna ársins 2016. Samráðsnefnd Tryggingastofnunar um meðferð ofgreiðslna og vangreiðslna hafi synjað umsókninni með bréfi, dags. 6. febrúar 2018. Ný umsókn um niðurfellingu hafi borist þann 25. júní 2018 og hafi henni einnig verið synjað með bréfi, dags. 31. júlí 2018. Þá hafi einnig legið fyrir ofgreiðslukrafa vegna ársins 2017.

Við afgreiðslu á beiðni kæranda um niðurfellingu hafi, ásamt fyrirliggjandi gögnum, meðal annars verið skoðaðar ástæður ofgreiðslnanna, upplýsingar frá skattyfirvöldum um tekjur og eignir að viðbættum þeim upplýsingum sem aflað hafi verið úr tölvukerfi stofnunarinnar um fjárhag og félagslega stöðu.

Í 55. gr. laga um almannatryggingar sé fjallað um innheimtu ofgreiddra bóta. Ákvæðið sé ekki heimildarákvæði um innheimtu heldur sé lögð sú skylda á Tryggingastofnun að innheimta ofgreiddar bætur. Ákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 sé undanþáguheimild og sem slíkt skuli skýra það þröngt. Í þessu ákvæði felist að við ákvörðun um hvort fella eigi niður kröfu eigi að fara fram mat, annars vegar á fjárhagslegum og félagslegum aðstæðum umsækjanda, með tilliti til getu hans til að endurgreiða skuldina, og hins vegar á því hvort hann hafi verið í góðri trú um greiðslurétt sinn þegar hann hafi tekið við hinum ofgreiddu bótum. Aðstæður þurfi að vera sérstakar svo að undanþáguheimild 11. gr. reglugerðarinnar eigi við. Ákvæðið sé undanþáguheimild og sem slíkt skuli skýra það þröngt samkvæmt almennum lögskýringarreglum.

Umræddar kröfur hafi orðið til við endurreikninga áranna 2016 og 2017. Eins og meðfylgjandi gögn beri með sér þá sé ljóst að ástæða ofgreiðslnanna hafi verið rangar tekjuáætlanir. Krafan sé réttmæt. Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur hvers árs. Skilyrði reglugerðarinnar um góða trú verði að skoða í ljósi ábyrgðar lífeyrisþega á því að gefa réttar tekjuupplýsingar hverju sinni. Bótaþegi beri skýra ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur hans og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki. Þessi skylda bótaþega eigi ekki bara við þegar tekjuáætlun sé gerð heldur alltaf þegar einstaklingur fái bætur frá Tryggingastofnun. Kærandi hafi verið á greiðslum hjá Tryggingastofnun með hléum frá X til dagsins í dag. Kæranda hafi átt að vera að fullu ljóst að launatekjur hafi áhrif á réttindi hans til greiðslna. Í tilfelli kæranda sé ljóst að kærandi hafi skilað inn tveimur röngum tekjuáætlunum, dags. X 2016 og X 2017. Að minnsta kosti í síðara tilfellinu sé augljóst að kærandi hafi vísvitandi verið skila inn tekjuáætlun sem hann vissi að væri röng eingöngu til þess að fá greiðslur frá Tryggingastofnun sem hann hafi ekki átt rétt á.

Við mat á fjárhags- og félagslegum aðstæðum kæranda hafi einkum verið horft til þess að tekjur kæranda í dag séu umtalsvert hærri en óskertar greiðslur Tryggingastofnunar og reyndar það háar að hann eigi ekki lengur rétt á greiðslum frá Tryggingastofnun vegna tekna. Þó að skuldastaða kæranda sé ekki góð þá hafi það verið mat Tryggingastofnunar, í ljósi tekna kæranda og þess að hann hafi augljóslega ekki verið í góðri trú á tímabilinu, að ekki hafi verið hægt að líta svo að hann uppfyllti undanþáguákvæði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Þrátt fyrir það hafi Tryggingastofnun ákveðið að koma til móts við kæranda þar sem skuldin sé frekar há og hafi innheimtu kröfunnar verið deilt á 60 mánuði þ.e. fimm ár.

Tryggingastofnun hafi skoðað gögn málsins en telji ekki ástæðu til þess að breyta fyrri ákvörðun um synjun á ósk kæranda um niðurfellingu á ofgreiðslukröfu.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar synjun Tryggingastofnunar ríkisins frá 31. júlí 2018 á beiðni kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta áranna 2016 og 2017.

Samkvæmt 39. gr. laga um almannatryggingar nr. 100/2007, með síðari breytingum, er greiðsluþega skylt að veita Tryggingastofnun þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru svo að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Þá er honum einnig skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Tryggingastofnun er heimilt, að fengnu samþykki viðkomandi, að afla nauðsynlegra upplýsinga um tekjur umsækjanda og greiðsluþega hjá skattyfirvöldum og fleirum, sbr. 40. gr. laga um almannatryggingar.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 7. mgr. 16. gr. laganna segir að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt greininni.

Kærandi fékk greiddan örorkulífeyri og tengdar greiðslur á árunum 2016 og 2017. Tryggingastofnun tilkynnti kæranda um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum greiðslum ársins 2016 með bréfi, dags. 21. júní 2017. Niðurstaða endurreikningsins var sú að bætur til hans hefðu verið ofgreiddar, samtals að fjárhæð X kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta. Af gögnum málsins verður ráðið að endurgreiðslukröfuna megi rekja til þess að launatekjur í skattframtali kæranda voru ekki í samræmi við tekjuáætlun ársins. Tryggingastofnun tilkynnti kæranda um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum greiðslum ársins 2017 með bréfi, dags. 22. maí 2018. Niðurstaða endurreikningsins var sú að bætur til hans hefðu verið ofgreiddar, samtals að fjárhæð X kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta. Af gögnum málsins verður ráðið að endurgreiðslukröfuna megi rekja til þess að launatekjur í skattframtali kæranda voru ekki í samræmi við tekjuáætlun ársins.

Tryggingastofnun ber lögum samkvæmt að endurreikna bótafjárhæðir bótagreiðsluárs eftir að álagning skattyfirvalda á opinberum gjöldum hefur farið fram, sbr. fyrrgreinda 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Þá er meginreglan sú að stofnuninni beri að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 55. gr. laganna. Í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags er hins vegar að finna heimild til undanþágu frá endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ákvæðið hljóðar svo:

„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“

Framangreind 11. gr. reglugerðarinnar heimilar undanþágu frá endurgreiðslukröfu að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Aðstæður verða að vera sérstakar. Við mat á því hvort aðstæður séu sérstakar skal einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort bótaþegi hafi verið í góðri trú þegar hann tók við hinum ofgreiddu bótum. Tryggingastofnun ríkisins hefur hafnað því að heimild tilvitnaðs reglugerðarákvæðis eigi við í tilviki kæranda.

Í máli þessu er ekki deilt um réttmæti endurkröfunnar eða fjárhæðir heldur lýtur ágreiningurinn að synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni kæranda um niðurfellingu á endurgreiðslukröfum sem hafði myndast vegna ofgreiddra bóta áranna 2016 og 2017.

Úrskurðarnefnd velferðarmála lítur til þess við úrlausn þessa máls að örorkulífeyrir og tengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins sæta tekjuskerðingu og eru bótaþegar upplýstir um tekjutenginguna við upphaf lífeyristöku. Þá er bótaþegum gert að upplýsa um tekjur sínar á bótagreiðsluári í tekjuáætlun hvers árs. Eins og áður greinir gerir 39. gr. laga um almannatryggingar ráð fyrir að það komi í hlut þess aðila, sem bætur þiggur frá Tryggingastofnun, að upplýsa réttilega um tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári. Þannig hvílir sú ábyrgð á bótaþega að tekjuáætlun sé rétt. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið upplýstur um þessa skyldu sína. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefnd velferðarmála að kæranda hefði mátt vera kunnugt um áhrif teknanna á bótagreiðslur. Því er ekki fallist á að kærandi hafi verið í góðri trú í skilningi 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Kemur þá til skoðunar hvort fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda gefi tilefni til niðurfellingar. Samkvæmt staðgreiðsluskrá voru meðaltekjur kæranda X kr. X mánuði ársins 2018. Þá verður ráðið af gögnum málsins að skuldir kæranda eru umtalsvert umfram eignir. Í umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu kemur fram að skuldastaða kæranda sé erfið eftir veikindi og hann sé á leið með að [...] nái hann ekki að standa við [...]. Þá kemur fram í umsókninni að mánaðarleg greiðslubyrði sé um X kr. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst að framangreindar fjárhagslegar aðstæður kæranda séu nokkuð bágbornar. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála leiðir það eitt og sér aftur á móti ekki sjálfkrafa til þess að kröfur verði felldar niður heldur þurfi að meta aðstæður kæranda heildstætt með hliðsjón af öllum þeim atriðum sem tilgreind eru í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Eins og áður hefur komið fram er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi ekki verið í góðri trú um greiðslurétt sinn. Þá verður ráðið af gögnum málsins að kröfurnar eru tilkomnar vegna umtalsverðara launatekna á tveggja ára tímabili. Úrskurðarnefndin lítur einnig til þess að Tryggingastofnun hefur dreift eftirstöðvum af kröfunni á 60 mánuði í stað þess að kærandi þurfi að endurgreiða ofgreiðslukröfuna á tólf mánuðum eins og kveðið er á um í lögum. Að lokum lítur nefndin til þess að samkvæmt meginreglu 55. gr. laga um almannatryggingar skal Tryggingastofnun innheimta ofgreiddar bætur og ber að túlka undantekningu frá þeirri meginreglu þröngt samkvæmt almennum lögskýringarreglum. Að framangreindu virtu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að ekki sé tilefni til niðurfellingar endurgreiðslukröfunnar á grundvelli 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 31. júlí 2018 um að synja umsókn kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 31. júlí 2018 um að synja umsókn A, um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum