Hoppa yfir valmynd

Mál nr/45 2017 Úrskurður 31. október 2017

Mál nr. 45/2017                     Eiginnafn:      Aríel

                                               

 

Hinn 31. október 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 45/2017 en erindið barst nefndinni 11. september:

Eiginnafnið Aríel er ekki á mannanafnaskrá sem kvenmannsnafn. Það er hins vegar á þeirri skrá sem karlmannsnafn. Hefur því verið óskað afstöðu mannanafnanefndar um hvort nafnið fullnægi skilyrðum laga um mannanöfn nr. 45/1996 til að vera tekið á skrána sem kvenmannsnafn.

Til þess að fallist sé á eiginnafn og það fært á mannanafnaskrá verður öllum skilyrðum 5. gr. laga um mannanöfn að vera fullnægt.

Í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 er kveðið á um að stúlku skuli gefa kvenmannsnafn og dreng skuli gefa karlmannsnafn. Í þessu ákvæði felst ekki bann við því að nafn sé hvorutveggja karlmannsnafn og kvenmannsnafn. Það á til dæmis við um eiginnöfnin Blær, Júní og Auður. Ef nafn telst hins vegar einvörðungu vera annaðhvort karlmannsnafn eða kvenmannsnafn í íslensku máli leiðir hins vegar af 2. mgr. 5. gr. að slíkt nafn má ekki gefa einstaklingi af gagnstæðu kyni.

Þótt hið umbeðna nafn, Aríel, hafi sem fyrr segir verið notað hér á landi sem eiginnafn karlmanns telur mannanafnanefnd að ekki verði á því byggt með vissu að nafnið geti ekki í íslensku máli einnig verið kvenmannsnafn. Nafnið tekur eignarfallsendingu (Aríelar). Það er  einnig ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og ekki verður séð að það geti verið nafnbera til ama. Þess má einnig geta að erlendis hefur nafnmyndin Aríel áunnið sér hefð sem kvenmannsnafn en í ljósi lítillar hefðar orðsins sem mannsnafns hér á landi telur nefndin að líta beri til þess sjónarmiðs, meðal annarra, við mat á nafninu. Í þessu ljósi verður ekki séð að eiginnafnið Aríel sem kvenmannsnafn brjóti í bág við íslenskt málkerfi. Mannanafnanefnd er því á grundvelli laga um mannanöfn ekki heimilt að hafna nafninu sem eiginnafni kvenmanns.

Eiginnafnið Aríel (kvk.) telst uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.

 

 Úrskurðarorð:


Beiðni um eiginnafnið Aríel (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 


                                               


 

 

 

 



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum