Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 267/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 267/2018

Fimmtudaginn 20. september 2018

A

gegn

Vinnumálastofnun

 

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. júlí 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 16. júlí 2018 um að fella niður bótarétt hennar í þrjá mánuði og innheimta ofgreiddar bætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 17. apríl 2018 og var umsóknin samþykkt. Með bréfi, dags. 11. júní 2018, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda að stofnuninni hefðu borist upplýsingar um að hún hefði verið stödd erlendis í maí 2018 samhliða því að taka við greiðslu atvinnuleysisbóta og án þess að hafa tilkynnt um það til stofnunarinnar. Kæranda var veittur sjö daga frestur til að skila inn skýringum og farseðlum. Skýringar og farseðlar bárust Vinnumálastofnun 21. júní 2018 og kom þar fram að kærandi hefði dvalið erlendis á tímabilinu 9. til 16. maí 2018. Þann 16. júlí 2018 var kæranda tilkynnt ákvörðun Vinnumálastofnunar um að bótaréttur hennar yrði felldur niður frá og með 30. júlí 2018 í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hefði ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um dvöl sína erlendis. Kærandi var einnig krafin um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að fjárhæð 57.541 kr. að meðtöldu 15% álagi, fyrir tímabilið 9. til 16. maí 2018. Bréf til kæranda þess efnis er dagsett 30. júlí 2018.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. júlí 2018. Með bréfi, dags. 1. ágúst 2018, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 13. ágúst 2018. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. ágúst 2018, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi farið í stutta vinnutengda ferð til útlanda í maí 2018 en þá hafði hún ekki enn fengið fyrstu greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Kærandi tekur fram að það sé mikið áfall fyrir hana að missa bætur í þrjá mánuði þar sem hún hafi hafnað tilboði frá VIRK vegna atvinnuleysisbótanna.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að tilgangur laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi og því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Atvinnuleysistryggingar veiti hinum tryggðu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi. Í 13. gr. laganna séu talin upp almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Í c-lið ákvæðisins komi meðal annars fram að það sé skilyrði fyrir greiðslum að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Á vefsíðu Vinnumálastofnunar komi þær upplýsingar fram undir liðnum „réttindi og skyldur- upplýsingaskylda“. Þar segi: „Ekki er heimilt að dvelja erlendis á sama tíma og umsækjandi þiggur atvinnuleysisbætur nema hafa sótt um U2-vottorð.“ Einnig sé athygli vakin á þessu í umsóknarferli á „Mínum síðum“ stofnunarinnar.

Í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 sé tekið fram að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt viðkomandi. Í 2. mgr. 14. gr. laganna sé einnig mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda, en þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.

Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 sé kveðið á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Óumdeilt sé að kærandi hafi verið stödd erlendis á tímabilinu 9. til 16. maí 2018 á sama tíma og hún hafi verið skráð atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun. Stofnuninni hafi ekki borist tilkynning fyrir fram um utanlandsferð kæranda, líkt og skylt sé samkvæmt 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laganna. Af þeim sökum hafi kærandi ekki uppfyllt skilyrði laga nr. 54/2006 á því tímabili og því fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir þann tíma. Á því tímabili sem atvinnuleitandi fái greiddar atvinnuleysisbætur beri honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, þar á meðal ferðir sínar utanlands. Vinnumálastofnun tekur fram að þegar rafrænni umsókn um greiðslu atvinnuleysisbóta sé skilað sé umsækjendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar með talið að tilkynna beri um ferðir til útlanda. Þá þurfi umsækjendur að samþykkja að þeir hafi lesið og skilið þær upplýsingar sem fram komi í umsókn um réttindi og skyldur þeirra. Kærandi hafi samþykkt slíka skilmála en einnig hafi verið sendur tölvupóstur þann 23. apríl 2018 vegna umsóknar hennar um atvinnuleysisbætur þar sem henni hafi verið bent á að ef farið væri til útlanda þyrfti að tilkynna það fyrir fram og skila afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Þá séu víðtækar og ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda á vefsíðu Vinnumálastofnunar en þar komi skýrt fram að atvinnuleitanda beri að veita nákvæmar upplýsingar um hagi sína.

Vinnumálastofnun vísar til þess að í málinu liggi fyrir að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um utanlandsferð sína líkt og henni hafi borið. Kærandi hafi fengið upplýsingar um réttindi sín og skyldur, þar með talið varðandi tilkynningar um dvalir erlendis. Að öllu framangreindu virtu hafi það verið mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er höfðu bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta. Því hafi kæranda borið að sæta viðurlögum samkvæmt 59. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem kærandi hafi áður sætt biðtíma á grundvelli laganna komi nú til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Kærandi þurfi því að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

Þá hafi kæranda einnig borið að endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir fyrrgreind tímabil sem hún hafi verið stödd erlendis. Stofnuninni sé skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær sem hafi verið ofgreiddar í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarps þess er varð að lögum nr. 54/2006 sé sérstaklega áréttað að leiðréttingin eigi við í öllum þeim tilvikum þegar atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Skuld kæranda, að fjárhæð 57.541 kr. að meðtöldu 15% álagi, verði skuldajafnað við síðari tilkomnar atvinnuleysisbætur í samræmi við 3. mgr. 39. gr. laganna. Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar um endurgreiðslu atvinnuleysisbóta og að staðfesta beri ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og innheimta ofgreiddar bætur samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur … látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur og staddur hér á landi. Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var stödd erlendis á tímabilinu 9. til 16. maí 2018 á sama tíma og hún fékk greiddar atvinnuleysisbætur. Í skýringum kæranda til Vinnumálastofnunar kemur fram að hún hafi ekki áttað sig á að það ætti að tilkynna ferðir til stofnunarinnar.

Úrskurðarnefndin tekur fram að á því tímabili sem atvinnuleitandi fær greiddar atvinnuleysisbætur ber honum að tilkynna Vinnumálastofnun um allar breytingar á högum sínum, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006, þar á meðal ferðir sínar til útlanda. Líkt og Vinnumálastofnun hefur vísað til er umsækjendum um atvinnuleysisbætur kynnt margvísleg atriði er varða réttindi og skyldur þegar rafrænni umsókn er skilað, þar með talið að tilkynna beri um ferðir erlendis, og umsækjendur þurfa að samþykkja að hafa lesið og skilið þær upplýsingar sem fram koma í umsókn um réttindi og skyldur. Úrskurðarnefndin bendir einnig á að kærandi fékk þær upplýsingar í tölvupósti 23. apríl 2018 að tilkynna þyrfti fyrir fram um ferðir erlendis og skila bæri afriti af flugfarseðlum til stofnunarinnar því til staðfestingar. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita, eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér frekari upplýsinga um skyldur sínar, að henni bæri að tilkynna Vinnumálastofnun sérstaklega um ferðir til útlanda. Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum gagnvart stofnuninni er hún tilkynnti ekki um ferð sínar til útlanda. Að því virtu bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna.

Í 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Þar segir að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir. Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði í maí 2016 á grundvelli 59. gr. laganna. Að því virtu og þar sem kærandi hafði ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils bar Vinnumálastofnun að láta kæranda sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að endurkrefja kæranda um ofgreiddar bætur vegna tímabilsins sem hún var erlendis. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Þegar kærandi var erlendis á tímabilinu 9. til 16. maí 2018 uppfyllti hún ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um að vera búsett og stödd hér á landi. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um ferð sína erlendis og hefur hún ekki fært viðhlítandi rök fyrir því að fella skuli niður álagið.

Með vísan til alls framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 16. júlí 2018 um að fella niður bótarétt A, í þrjá mánuði og innheimta ofgreiddar bætur er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum