Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 447/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 447/2016

Fimmtudaginn 2. febrúar 2017

A

gegn

Vinnumálastofnun – Fæðingarorlofssjóði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Þórhildur Líndal lögfræðingur.

Með kæru, dags. 16. nóvember 2016, A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 4. nóvember 2016, um synjun á umsókn hans um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 17. október 2016, sótti kærandi um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna barnsfæðingar þann X. Með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 26. október 2016, var kærandi upplýstur um að ráða mætti af upplýsingum úr staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra að hann uppfyllti ekki skilyrði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof, þess efnis að hafa verið í minnst 25% starfshlutfalli, samkvæmt 1. mgr. 13. gr. a laganna, síðustu sex mánuði fyrir fæðingardag barns þar sem engar/lágar tekjur væru skráðar á hann í maí og júní 2015. Kæranda var í framhaldinu leiðbeint um hvað teldist jafnframt til þátttöku á vinnumarkaði samkvæmt 2. mgr. 13. gr. a. laganna og gefinn kostur á að leggja fram gögn því til staðfestingar. Kærandi lagði fram frekari gögn en með bréfi Fæðingarorlofssjóðs, dags. 4. nóvember 2016, var umsókn hans synjað.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 16. nóvember 2016. Með bréfi, dags. 18. nóvember 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð sjóðsins barst með bréfi, dags. 30. nóvember 2016, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. desember 2016, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi fer fram á að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Fæðingarorlofssjóði verði gert að taka nýja ákvörðun í málinu á grundvelli laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof og reglugerðar nr. 1218/2008 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Kærandi tekur fram að hann hafi lagt fram gögn sem sýni fram á að hann hafi verið í launalausu leyfi í maí og júní 2015 sem teljist til þátttöku á innlendum vinnumarkaði, sbr. a-lið 2. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000.

III. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs

Í greinargerð Fæðingarorlofssjóðs er vísað til 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof þar sem kveðið sé á um að foreldri öðlist rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Til að finna vinnuframlag sjálfstætt starfandi foreldris skuli miða við skil á tryggingagjaldi af reiknuðu endurgjaldi fyrir sama tímabil. Í 3. mgr. 7. gr. laganna komi fram að sjálfstætt starfandi einstaklingur sé sá sem starfi við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að honum sé gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Í 1. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000 komi fram að fullt starf sjálfstætt starfandi einstaklings miðist við að viðkomandi hafi greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemi að lágmarki viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein. Í 2. mgr. sé síðan talið upp í eftirfarandi fimm stafliðum hvað teljist jafnframt til þátttöku á vinnumarkaði:

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar,

c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til sjúkratryggingastofnunarinnar samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og lögum um slysatryggingar almannatrygginga, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

e. sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Barn kæranda hafi fæðst þann X. Ávinnslutímabil kæranda sem sjálfstætt starfandi einstaklings sé því frá X og fram að fæðingu barnsins. Til að öðlast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði hafi kærandi þurft, samkvæmt framangreindu, að hafa sjálfur greitt mánaðarlega tryggingagjald og staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemi að lágmarki 25% af viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein, sbr. 3. mgr. 7. gr., 1. mgr. 13. gr. og 1. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000, eða hafa verið þátttakandi á vinnumarkaði í skilningi 2. mgr. 13. gr. a laganna á tímabilinu. Samkvæmt skrám ríkisskattstjóra hafi kærandi fengið laun frá fyrirtæki sínu B ehf. mánuðina desember 2014 til júní 2015 og staðið skil á tryggingagjaldi og greitt staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi samkvæmt 3. mgr. 7. gr., 1. mgr. 13. gr. og 1. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000. Hins vegar nái greiðsla kæranda í maí og júní 2015, 59.492 kr. fyrir hvorn mánuð, ekki að minnsta kosti 25% af viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra fyrir viðkomandi starfsgrein (D2) á árinu 2015 en það ár hafi full mánaðarlaun fyrir hana verið 362.000 kr. og árslaun 4.344.000 kr.

Þá komi til skoðunar hvort kærandi hafi verið þátttakandi á innlendum vinnumarkaði í skilningi 2. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000 í maí og júní 2015. Samkvæmt a-lið 2. mgr. 13. gr. a teljist jafnframt til þátttöku á vinnumarkaði orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti. Ólaunað leyfi í skilningi ákvæðisins verði því að vera leitt af lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi. Í íslenskum lögum sé ekki kveðið á um rétt sjálfstætt starfandi einstaklinga til ólaunaðs leyfis, sbr. einnig áskilnað í lögum nr. 95/2000 um að sjálfstætt starfandi einstaklingum beri að greiða mánaðarlega eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda tryggingagjald og staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi. Þá taki kjarasamningar og ráðningarsamningar til vinnusambands á milli starfsmanna og vinnuveitanda en ekki til sjálfstætt starfandi einstaklinga. Í samræmi við það verði ekki séð að kærandi teljist hafa verið í ólaunuðu leyfi í skilningi a-liðar 2. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000 í maí og júní 2015. Ekki verði séð að aðrir stafliðir 2. mgr. 13. gr. a laganna geti átt við í tilviki kæranda.

Með vísan til alls framangreinds telji Fæðingarorlofssjóður að kærandi uppfylli ekki skilyrði til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem sjálfstætt starfandi einstaklingur.

IV. Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að synja umsókn kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um fæðingar- og foreldraorlof öðlast foreldri rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði eftir að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Til að finna vinnuframlag sjálfstætt starfandi foreldris skal miða við skil á tryggingagjaldi af reiknuðu endurgjaldi fyrir sama tímabil. Í 3. mgr. 7. gr. laganna kemur fram að sjálfstætt starfandi einstaklingur sé sá sem starfi við eigin rekstur, án tillits til félagsforms, í því umfangi að honum er gert að standa mánaðarlega, eða með öðrum reglulegum hætti samkvæmt ákvörðun skattyfirvalda, skil á tryggingagjaldi. Þátttaka á innlendum vinnumarkaði í skilningi IV. kafla laganna felur í sér að starfa sem starfsmaður, sbr. 2. mgr. 7. gr., eða sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. 3. mgr. 7. gr. Fullt starf sjálfstætt starfandi einstaklings miðast við að viðkomandi hafi greitt mánaðarlega staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein, sbr. 1. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000. Þá kemur fram í 2. mgr. 13. gr. a laganna að til þátttöku á innlendum vinnumarkaði teljist enn fremur:

a. orlof eða leyfi samkvæmt lögum, kjarasamningi eða ráðningarsamningi þótt ólaunað sé að hluta eða öllu leyti,

b. sá tími sem foreldri fær greiddar atvinnuleysisbætur, er á biðtíma eftir slíkum bótum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldrið skráð sig án atvinnu samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar,

c. sá tími sem foreldri fær greidda sjúkra- eða slysadagpeninga, er á biðtíma eftir dagpeningum eða hefði átt rétt á þeim hefði foreldri sótt um þá til sjúkratryggingastofnunarinnar samkvæmt lögum um sjúkratryggingar og lögum um slysatryggingar almannatrygginga, eða fær greiðslur úr sjúkrasjóði stéttarfélags enda hafi foreldri látið af launuðum störfum af heilsufarsástæðum,

d. sá tími sem foreldri nýtur bóta frá tryggingafélagi sem koma í stað launa vegna tímabundins atvinnutjóns af völdum slysa,

e. sá tími er foreldri fær tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna eða hefði átt rétt á slíkum greiðslum hefði foreldri sótt um þær til Tryggingastofnunar ríkisins.

Barn kæranda fæddist X. Sex mánaða ávinnslutímabil samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 er því frá X og fram að fæðingu barnsins. Til þess að eiga rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði þurfti kærandi því að hafa sjálfur greitt mánaðarlega tryggingagjald og staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi er nemur að lágmarki 25% af viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra í viðkomandi starfsgrein á því tímabili, sbr. 13. gr. a laganna. Samkvæmt skrám ríkisskattstjóra fékk kærandi laun frá fyrirtæki sínu B ehf. á framangreindu tímabili og stóð skil á tryggingagjaldi og greiddi staðgreiðsluskatt af reiknuðu endurgjaldi. Í maí og júní 2015 náði greiðsla kæranda ekki að minnsta kosti 25% af viðmiðunarfjárhæð ríkisskattstjóra fyrir starfsgrein hans. Að því virtu er óhjákvæmilegt að líta svo á að kærandi hafi ekki verið á innlendum vinnumarkaði, í skilningi 1. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000, í maí og júní 2015.

Kærandi byggir á því að hann hafi verið í launalausu leyfi í maí og júní 2015 sem teljist til þátttöku á innlendum vinnumarkaði, sbr. a-lið 2. mgr. 13. gr. a laga nr. 95/2000. Úrskurðarnefndin tekur fram að í ákvæðinu er skýrt kveðið á um að orlof eða leyfi verði að vera á grundvelli laga, kjarasamnings eða ráðningarsamnings. Þar sem kærandi var sjálfstætt starfandi einstaklingur fellur hans leyfi ekki undir ákvæði a-liðar 2. mgr. 13. gr. a laganna.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000 um að hafa verið samfellt í sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir fæðingardag barns. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, dags. 4. nóvember 2016, um synjun á umsókn A, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Guðrún A. Þorsteinsdóttir, formaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum