Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 514/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 12. september 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 514/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17080023

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 15. ágúst 2017 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 31. júlí 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Ítalíu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar með vísan til 1. mgr. 36. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. og 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka mál kæranda til meðferðar að nýju með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 16. janúar 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 25. janúar 2017, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Finnlandi og á Ítalíu. Þann 9. mars 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 1. mgr. 13. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Ekki barst svar frá ítölskum yfirvöldum innan tilskilinna tímamarka. Taldist beiðnin því hafa verið samþykkt og Ítalía bera ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, og var bréf þess efnis sent til ítalskra stjórnvalda þann 24. maí 2017. Útlendingastofnun ákvað þann 31. júlí 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Ítalíu. Kærandi kærði ákvörðunina þann 15. ágúst 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 25. ágúst 2017.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Ítalíu. Lagt var til grundvallar að Ítalía virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Ítalíu, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá var það mat Útlendingastofnunar að á Ítalíu væru engin viðvarandi mannréttindabrot og að íbúar landsins gætu fengið vernd gegn ofbeldisbrotum og glæpum með aðstoð lögreglu eða annarra yfirvalda. Ítölsk stjórnvöld væru jafnframt í stakk búin til að tryggja það að kærandi fái sanngjarna málsmeðferð og að öryggi hans verði tryggt.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann vilji ekki vera á Ítalíu. Þar séu miklir fordómar og þeir sem komi úr stríði, líkt og kærandi, vilji ekki vera á Ítalíu. Þá hafi lögreglan á Ítalíu komið illa fram við kæranda og aðra umsækjendur um alþjóðlega vernd. Kærandi óttist ekkert á Ítalíu en ítölsk stjórnvöld vilji ekki hafa hann þar. Þau hafi platað hann til að gefa fingraför með því að tjá kæranda að fingrafarataka mundi ekki hafa neina þýðingu en það hafi hún þó haft.

Kærandi byggir kröfu sína aðallega á því að endursending hans til Ítalíu jafngildi broti á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Telur kærandi að þrátt fyrir að til greina komi að fella mál hans undir c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé ótækt að beita heimildinni í tilviki hans. Þvert á móti njóti hann verndar 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sem mæli fyrir um áðurnefnda non-refoulement reglu. Það sé aðallega vegna þeirrar hættu á áframsendingu til heimaríkis sem kærandi megi búast við.

Í greinargerð kæranda er aðbúnaði og móttökuskilyrðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu lýst. Meðal annars kemur fram að mikið álag hafi verið á hæliskerfinu á Ítalíu undanfarin ár. Hafi stjórnvöldum á Ítalíu m.a. reynst örðugt að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd og flóttafólki fyrir húsnæði. Á Ítalíu sé atvinnuleysi með því allra hæsta í Evrópu og í ljósi þess sé nær ómögulegt fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd að fá vinnu þar í landi. Jafnframt hafi áhyggjum verið lýst yfir vegna vaxandi kynþáttahaturs og mismununar á grundvelli kynþáttar á Ítalíu. Þá hafi komið fram gagnrýni á aðbúnað og aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu í skýrslum fjölmargra stofnana, m.a. í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2016; ársskýrslu Amnesty International frá 2016; skýrslu dönsku flóttamannastofnunarinnar frá 9. febrúar 2017; ársskýrslu Mannréttindavaktarinnar frá janúar 2017 og skýrslu svissneska flóttamannaráðsins frá ágúst 2016. Jafnframt vísar kærandi til niðurstaðna erlendra úrskurðaraðila og dómstóla í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun, einkum að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að ítölsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Ítalíu er byggt á því að ekki barst svar frá ítölskum stjórnvöldum innan tilskilinna tímamarka og taldist beiðnin því hafa verið samþykkt. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Kærandi er ungur karlmaður sem í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað heilsufar sitt vera [...]. Þá kvað kærandi [...]. Ekkert í gögnum málsins bendir því til þess að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka þurfi tillit til við meðferð málsins.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

· Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, febrúar 2017),

· Amnesty International Report 2016/17 (Amnesty International, 21. febrúar 2017),

· Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2015 (European Asylum Support Office, 8. júlí 2016),

· Endursendingar hælisleitenda til Ítalíu, greinargerð innanríkisráðuneytisins í desember 2015 (Innanríkisráðuneytið, desember 2015),

· Is mutual trust enough – The situation of persons with special reception needs upon return to Italy (Danska flóttamannaráðið, 9. febrúar 2017),

· Italy 2016 Human Rights Report (United States Department of State, mars 2017),

· Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015),

· Reception conditions in Italy: Report on the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, október 2013),

· Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016),

· Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014),

· UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013),

· Upplýsingar á síðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/) og

· Upplýsingar á síðu hjálparsamtakanna Baobab Experience (https://baobabexperience.org/).

Í ofangreindum gögnum og skýrslum um aðstæður og málsmeðferð á Ítalíu kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu geta lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera). Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni þá hefur hann kost á því að bera synjunina undir stjórnsýsludómstól (í. Tribunale Civile). Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd endanlega synjun á umsókn sinni á hann möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá ítölskum stjórnvöldum. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Jafnframt eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Samkvæmt skýrslum og gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu má sjá að umsækjendur eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd en geta leitað til frjálsra félagasamtaka eins og til dæmis ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per i Rifugati) og hjálparsamtakanna Baobab Experience. Umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni og ákveða að kæra þá ákvörðun til dómstóla geta lagt fram beiðni um lögfræðiaðstoð kostaða af ítalska ríkinu.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn ítalska hæliskerfisins til að taka við skyndilegu eða verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá hefur stofnunin einnig gert athugasemdir við brotakennd móttökuskilyrði og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna. Jafnframt hefur Flóttamannastofnun gagnrýnt að aðstoð við sérstaklega viðkvæma umsækjendur um alþjóðlega vernd sé oft ófullnægjandi vegna skorts á samhæfingu þjónustuaðila og eftirfylgni. Verður af framangreindu ráðið að ítölsk stjórnvöld hafa átt við margvíslegan vanda að etja í þessum málaflokki. Hins vegar hefur Flóttamannastofnun ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Samkvæmt dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er bann við meðferð sem fer gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu fortakslaust en meðferð verður þó að fullnægja lágmarkskröfu um alvarleika til að teljast brot gegn 3. gr. sáttmálans, sem fyrr segir. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur lagt til grundvallar að sú staðreynd ein og sér að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki sáttmálans sé ekki fullnægjandi til að uppfylla grundvallarkröfu um alvarleika sem 3. gr. sáttmálans geri kröfu um, þ.e. þar sem ekki sé um að ræða sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður sem mæli gegn flutningi, sbr. ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (mál nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013. Um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vísar kærunefnd jafnframt til dóms Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015.

Innanríkisráðuneytið gaf út greinargerð um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu í desember 2015. Þar kemur fram að ráðuneytið meti svo að ágallar á aðbúnaði og móttökuskilyrðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu séu ekki slíkir að þeir gefi ástæðu til að ætla að endursendingar þangað muni almennt brjóta gegn alþjóðlegum skuldbindingum íslenskra stjórnvalda. Lagt er til að meta skuli aðstæður í hverju tilviki fyrir sig og enn fremur að þeir sem teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu skuli ekki sendir til Ítalíu.

Eins og að framan greinir er það niðurstaða kærunefndar að kærandi sé ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Ítalíu bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þá má af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér ráða að kærandi getur leitað aðstoðar yfirvalda á Ítalíu óttist hann að á honum verði brotið.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það jafnframt mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 2. febrúar 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 16. janúar 2017.

Í greinargerð kæranda er byggt á því að mat á einstaklingsbundnum aðstæðum hans hafi ekki verið nægilega ítarlegt til þess að unnt sé að taka ákvörðun um endursendingu hans til Ítalíu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi hvorki verið spurður að því hvort hann hafi orðið fyrir ofbeldi í heimaríki né á Ítalíu jafnvel þó hann hafi nefnt að hann komi frá [...]. Útlendingastofnun hafi því ekki uppfyllt skyldur sínar skv. 10. gr. stjórnsýslulaga um að við ákvörðun skuli stjórnvald rannsaka mál í þaula.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægjanlega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð umsókna um alþjóðlega vernd skuli stjórnvöld afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Samkvæmt framansögðu er gerð krafa um rannsókn stjórnvalda sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds. Kærunefnd útlendingamála hefur skoðað gögn varðandi aðstæður á Ítalíu og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun varðandi aðstæður kæranda. Þá hefur kærunefnd skoðað gögn málsins, þ.m.t. viðtöl kæranda hjá Útlendingastofnun sem tekin voru við hann dagana 25. janúar og 2. febrúar 2017. Er það afstaða kærunefndar að ekkert í gögnum málsins, þ.á m. endurritum viðtala við kæranda, bendi til þess að slíkur ágalli hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar að þessu leyti þannig að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Að mati kærunefndar gáfu þau gögn sem lágu fyrir við töku ákvörðunar í máli kæranda, þ.á m. svör kæranda í viðtölum hjá Útlendingastofnun, stofnuninni ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við eða kalla á frekari rannsókn á aðstæðum kæranda, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og eftir atvikum 7. gr. sömu laga. Kærunefnd gerir því ekki athugasemd við málsmeðferð Útlendingastofnunar.

Í máli þessu hafa ítölsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum