Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 644/2015

ÚRSKURÐUR ÚRSKURÐARNEFNDAR UM LEIÐRÉTTINGU VERÐTRYGGÐRA FASTEIGNAVEÐLÁNA

NR. 644/2015


Ár 2015, föstudaginn 13. nóvember, er tekið fyrir mál nr. 625/2015; kæra A, dags. 9. júlí 2015. Í málinu úrskurða Eva Dís Pálmadóttir, Ingi Tryggvason og Kristján Jónasson. Upp er kveðinn svofelldur

 

ú r s k u r ð u r :

 

I.

 

Málavextir eru þeir að kærandi sótti um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána þann 28. júlí 2014. Leiðréttingarfjárhæð kæranda var 756.675 kr. og var sú fjárhæð birt honum 11. nóvember 2014. Kæranda var tilkynnt þann 23. desember 2014 að leiðréttingarfjárhæð skyldi ráðstafað inn á lán banka X nr. 1. Kærandi sendi athugasemd til ríkisskattstjóra, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 35/2014 um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána, 16. mars 2015 og var henni svarað 15. september 2015. Kærandi hafði áður kært til úrskurðarnefndar þann 23. mars 2015, áður en athugasemd hans hafði verið afgreidd, og var kæru hans vísað frá úrskurðarnefndinni með úrskurði, dags. 1. apríl 2015.

Með kæru, dags. 22. september 2015, hefur kærandi kært fjárhæð og framkvæmd leiðréttingar, sbr. 9. og 11. gr. laga nr. 35/2014. Kærð er sú niðurstaða ríkisskattstjóra að ekki hafi verið litið á umsókn kæranda sem sameiginlega umsókn hans og fyrrverandi sambýliskonu hans, B. Í kæru kemur fram að kærandi og fyrrum sambýliskona hans hafi ekki fengið neinar leiðbeiningar um að B hefði þurft að sækja sérstaklega um. Lánið hafi eingöngu verið skráð á kæranda og þau hafi því staðið í þeirri trú að nægjanlegt væri að kærandi myndi sækja um leiðréttingu þess láns. Kærandi greinir frá því að hann hafi heyrt dæmi þess að umsókn hafi verið sameiginleg hjá fólki í hjúskap. Kærandi telur ósanngjarnt að B hafi ekki verið kynntur réttur hennar til að sækja um meðan aðrir hafi fengið slíkar upplýsingar. Kærandi telur að þetta leiði til þess að hann fái ekki helming af leiðréttingarfjárhæð sem hann hefði annars átt rétt á. Kærandi krefst þess að honum eða B verði úthlutað því sem þau eigi rétt á.

 

II.

 

Ágreiningsefni máls þessa snýr að fjárhæð leiðréttingar. Samkvæmt forsendum ríkisskattstjóra var kærandi á tímabilinu 1. janúar 2008 til 31. desember 2009, þ.e. leiðréttingartímabili 1. gr. og 1. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014, í sambúð með B. Kært er að kærandi fái eingöngu 50% hlutdeild í leiðréttingu. Leiðréttingarfjárhæð fyrrverandi sambýliskonu kæranda er ekki til umfjöllunar í þessu máli. Ljóst er að leiðrétting kæranda miðast við að tilkall hans til leiðréttingar lána hafi verið 50% vegna sambúðar.

Í 3. gr. laga nr. 35/2014 er fjallað um afmörkun leiðréttingar samkvæmt lögunum. Þar segir í 2. mgr. að leiðrétting samkvæmt lögunum taki til heimila, þ.e. einstaklinga, hjóna og sambýlisfólks sem uppfyllti skilyrði til samsköttunar innan leiðréttingartímabils skv. 1. mgr. Taki leiðrétting til áhvílandi lána á sameiginlegu heimili hjóna eða sambýlisfólks, óháð því hvor aðilinn var skráður fyrir lánunum á tímabilinu. Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014 segir að leiðrétting einstaklings og hámark hennar ráðist af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins.

Í athugasemdum við 3. gr. frumvarps, er varð að lögum nr. 35/2014, kemur fram að afmörkun og þar með tilkall til leiðréttingar byggist á nokkrum þáttum. Síðan segir: „Í fyrsta lagi afmarkast leiðrétting við ákveðið tímabil, í öðru lagi þarf að hafa verið áhvílandi verðtryggt lán á heimili á sama tímabili, í þriðja lagi er það skilyrði að vaxtagjöld af lánunum hafi verið viðurkennd sem grundvöllur útreiknings vaxtabóta. Síðastgreinda atriðið felur nánar í sér kröfu um að til lána hafi verið stofnað vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota, þ.e. til heimilishalds viðkomandi, en hvorki til útleigu, né annarra nota eða sem fjárfesting einvörðungu. Réttur til vaxtabóta hefur þannig víðtæka skírskotun í þessu sambandi því annars vegar er um að ræða staðfestingu á nýtingu láns og hins vegar afmörkun á rétti til annars vegar vaxtabóta við einstaklinga og hins vegar hjóna og sambúðarfólks óháð því hver skráður er fyrir láni á þeim tíma sem um sameiginlegt heimilishald var að ræða. Á þessum forsendum er litið svo á að tilkall til leiðréttingar vegna lána til öflunar húsnæðis til sameiginlegs heimilishalds eigi jafnt við um hjón og einstaklinga sem höfðu sambærilega fjárhagslega samstöðu vegna sambúðar óháð því hvort viðkomandi var formlega skráður fyrir lánum á því tímabili sem leiðréttingu er ætlað að taka til. Réttur eða tilkall til leiðréttingar kann þannig að ráðast af hjúskaparstöðu á tímabilinu eða innan áranna 2008–2009. Skilnaður hjóna eða samvistarslit hefur þannig ekki í för með sér brottfall réttar til leiðréttingar, enda ræðst útreikningur leiðréttingar skv. 7. gr. af stöðu lána sem hvíldu á hverjum tíma á sameiginlegu heimili á tímabilinu.“

Nánar er fjallað um útreikning leiðréttingar og ráðstöfun í 4. gr. reglugerðar nr. 698/2014, um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Þar segir í 3. mgr. að fjárhæð leiðréttingar einstaklings og hámark hennar ráðist skv. 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014 af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins, 1. janúar 2008 til 31. desember 2009. Ef breytingar hafi orðið á högum umsækjanda, einu sinni eða oftar, sbr. 1. málsl., á leiðréttingartímabilinu skuli útreikningur leiðréttingar miða við að breytingin taki gildi í sama mánuði. Í 4. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar segir að heildarsamtala fjárhæðar útreiknaðrar leiðréttingar hvers heimilis geti að hámarki orðið 4 milljónir kr. Við útreikning á hámarki leiðréttingar hvers heimilis skuli, eftir atvikum, skipta fjárhæð leiðréttingar í samræmi við breytingar á hjúskapar- eða heimilisstöðu hvers einstaklings á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins.

Í tilviki kæranda hefur því ekki verið mótmælt að hann hafi verið í sambúð á leiðréttingartímabili 1. gr., sbr. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014. Leiðrétting einstaklings ræðst af hjúskapar- eða heimilisstöðu eins og hún var á hverjum tíma innan leiðréttingartímabilsins, sbr. 5. mgr. 7. gr. laga nr. 35/2014. Fjárhæð leiðréttingar og hámark hennar tekur mið af hjúskapar- og heimilisstöðu leiðréttingartímabilsins, óháð því hvor aðili var skráður fyrir leiðréttum lánum á tímabilinu og óháð því hvor er nú ábyrgur fyrir skuldum ef sambýlisfólk uppfyllir skilyrði samsköttunar. Af framangreindu leiðir að fyrrverandi sambýliskona kæranda átti sjálfstæðan rétt á hluta leiðréttingar lána sem um ræðir í þessu máli meðan hún og kærandi uppfylltu skilyrði samsköttunar, sbr. 2. mgr. 3. gr. laga nr. 35/2014 og 3. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Tilkall kæranda til leiðréttingarfjárhæðar er því réttilega ákvarðað 50% og er útreiknuð fjárhæð leiðréttingar hans í samræmi við þau lagafyrirmæli sem um hana gilda.

Krafa kæranda er hins vegar byggð á því að misbrestur hafi orðið á því að umsóknarferli samkvæmt lögum nr. 35/2014 hafi verið kynnt kæranda og fyrrverandi sambýliskonu hans af hálfu ríkisskattstjóra. Hvað sem þessum sjónarmiðum kæranda líður er ljóst að meintur misbrestur á kynningu laga nr. 35/2014 af hálfu ríkisskattstjóra eða annarra aðila getur ekki haft í för með sér að víkja megi frá skýrum lagafyrirmælum um leiðréttingarfjárhæð kæranda.

Með vísan til framangreinds er ljóst að leiðréttingarfjárhæð kæranda er í samræmi við framangreind laga- og reglugerðarfyrirmæli sem um hana gilda. Ákvörðun ríkisskattstjóra verður ekki hnekkt. Kröfu kæranda að þessu leyti er því hafnað. 

Í 2. málsl. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 35/2014 kemur fram að hjónum og sambýlisfólki sem uppfyllti skilyrði til samsköttunar skv. 3. mgr. 62. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, í árslok 2013 hafi verið heimilt að sækja sameiginlega um leiðréttingu vegna lána sem veittu rétt til vaxtabóta á árunum 2008–2009 og annað eða bæði voru ábyrg fyrir. Í málinu liggur fyrir að kærandi sleit sambúð með B á árinu 2012 og því er óumdeilt að þau voru ekki í sambúð þegar kærandi sótti um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Umsókn kæranda gat því aldrei tekið til hans og fyrrverandi sambýliskonu hans sameiginlega. Með vísan til framangreinds er kröfu kæranda hafnað.

 

 

Ú r s k u r ð a r o r ð :

 

Kröfum kæranda er hafnað.



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum