Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 53/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                                           

Miðvikudaginn 5. nóvember 2014 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 53/2014:

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

og kveðinn upp svohljóðandi

Ú R S K U R Ð U R:

A, hefur með kæru, dags. 25. september 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 10. september 2014, á umsókn hans um styrk til greiðslu innritunar- og bókakostnaðar að fjárhæð 45.000 krónur.

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um styrk til greiðslu innritunar- og bókakostnaðar að fjárhæð 45.000 krónur hjá Reykjavíkurborg með tveimur umsóknum, dags. 11. ágúst 2014. Umsóknum kæranda var synjað með tveimur bréfum þjónustumiðstöðvar, dags. 14. ágúst 2014, með þeim rökum að þær samræmdust ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði synjununum til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 10. september 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar þar sem aðstæður umsækjanda falla eigi að skilyrðum þeim sem sett eru í 18. gr. reglna um fjárhagsaðstoð varðandi námsstyrki.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 10. september 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 25. september 2014. Með bréfi, dags. 26. september 2014, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir öllum gögnum málsins, þar á meðal umsókn kæranda, ákvörðun sveitarfélagsins og gögnum um fjárhag kæranda. Enn fremur var óskað eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 8. október 2014. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 10. október 2014, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

II. Málsástæður kæranda

Kærandi telur sig eiga rétt á aðstoð frá Reykjavíkurborg þrátt fyrir að hann fái ekki greidda fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda og vísað til þess að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði a–d-liða 18. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg til greiðslu styrks vegna innritunar- og bókakostnaðar. Ákvæði 18. gr. reglnanna um námsstyrk sé heimildarákvæði og í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sé ekki að finna ákvæði sem skyldi sveitarfélög til að styrkja einstaklinga sem leggi stund á nám um innritunar- og bókakostnað. Af framangreindum ástæðum hafi velferðarráð talið að ekki væri unnt að veita kæranda umbeðinn styrk.

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg frá 1. janúar 2011, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsóknir kæranda um styrk til greiðslu innritunar- og bókakostnaðar að fjárhæð 45.000 krónur, sbr. 18. gr. framangreindra reglna.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Umsóknum kæranda um styrk til greiðslu innritunar- og bókakostnaðar var synjað á þeim forsendum að skilyrðum 18. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi ekki verið fullnægt. Í 1. mgr. 18. gr. framangreindra reglna kemur fram að heimilt sé að veita námsstyrki, ásamt almennum skólagjöldum, innritunarkostnaði og bókakostnaði, í eftirfarandi tilvikum:

a)      til einstaklinga á aldrinum 18–24 ára, sem ekki hafa lokið grunnskóla eða framhaldsskóla og hafa átt við mikla félagslega erfiðleika að stríða.

b)      til einstæðra foreldra á aldrinum 18–24 ára, sem ekki hafa lokið grunnskóla eða framhaldsskóla og haft hafa atvinnutekjur sem eru lægri en grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar, sbr. 1.mgr. 11. gr. reglna þessara, undanfarna tólf mánuði. Skilyrði er að umsækjandi hafi átt í félagslegum erfiðleikum.

c)      til einstaklinga á aldrinum 18-24 ára sem ekki hafa lokið framhaldsskóla og eiga eftir ólokið að hámarki tvær annir. Um sé að ræða einstakling sem ekki hefur tök á að vinna með skóla og fyrir liggur mat á því að ef ekki komi til aðstoðar sé ljóst að viðkomandi flosni upp úr námi.

d)      til einstaklinga sem hafa verið atvinnulausir án bótaréttar eða þegið fjárhagsaðstoð í sex mánuði eða lengur og hafa ekki lokið grunnnámi sem gefur rétt á námsláni.

e)      Heimilt er að veita tekjulágum foreldrum fjárstyrk vegna náms 16 og 17 ára barna þeirra. Hér er átt við tekjulága foreldra sem átt hafa í langvarandi félagslegum erfiðleikum. Skal styrkurinn miða að því að greiða áætlaðan bókakostnað og skólagjöld. Leitast ber við að kanna aðstæður beggja foreldra þegar mat er lagt á umsókn um aðstoð vegna barna.

Þá kemur fram í 2. mgr. 18. gr. reglnanna að leggja þurfi inn umsókn tveimur mánuðum áður en nám hefst nema hvað varðar c-liðinn.

Í a–c-liðum 18. gr. er meðal annars gert að skilyrði að umsækjandi sé á aldrinum 18–24 ára. Kærandi var 25 ára þegar hann sótti um framangreindan styrk og því koma ákvæði a–c-liða 18. gr. reglnanna ekki til skoðunar. Þá á e-liður 18. gr. ekki við um kæranda. Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi hvorki verið atvinnulaus án bótaréttar né notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu í sex mánuði eða lengur þegar umsóknir hans bárust Reykjavíkurborg líkt og gert er að skilyrði í d-lið 18. gr. Úrskurðarnefndin telur því að d-liður 18. gr. reglnanna hafi ekki átt við í máli kæranda.

Að framangreindu virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að skilyrðum 18. gr. reglnanna hafi ekki verið fullnægt í málinu og átti kærandi því ekki rétt á styrk til greiðslu innritunar- og bókakostnaðar. Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 10. september 2014, um synjun á umsóknum A um styrk til greiðslu innritunar- og bókakostnaðar að fjárhæð 45.000 krónur er staðfest.

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum