Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 420/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 420/2018

Mánudaginn 8. apríl 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 28. nóvember 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. nóvember 2018, um að synja umsókn hennar um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun en var synjað á þeirri forsendu að hún væri ekki í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 28. nóvember 2018. Með bréfi, dags. 29. nóvember 2018, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. janúar 2019. Með bréfi, dags. 8. janúar 2019, barst greinargerð Vinnumálastofnunar þar sem fram kom að ranglega hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að stofnunin myndi fella úr gildi ákvörðun sína. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. janúar 2019, var óskað eftir afstöðu kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með símtali 14. febrúar 2019. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. nóvember 2018, um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur.

Í kjölfar kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála fór Vinnumálastofnun yfir mál kæranda og taldi að ranglega hafi verið staðið að hinni kærðu ákvörðun. Í greinargerð til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin myndi fella úr gildi ákvörðun sína. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar en engin svör bárust frá henni.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, sbr. 11. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Vinnumálastofnunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum