Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20h%C3%BAsam%C3%A1la

Nr. 126/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 7. febrúar 2019

í máli nr. 126/2018

 

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður, Valtýr Sigurðsson hæstaréttarlögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða tryggingarfé að fjárhæð 45.000 kr.

Með kæru, dags. 11. desember 2018, beindi sóknaraðili til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við varnaraðila. Með bréfi kærunefndar, dags. 19. desember 2018, var varnaraðila gefinn kostur á að tjá sig um efni kærunnar. Greinargerð varnaraðila barst ekki þrátt fyrir ítrekun kærunefndar þar um.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu munnlegan samning um leigu sóknaraðila á herbergi í eigu varnaraðila að C. Málið snýst um endurgreiðslu tryggingarfjár.

 

 

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili segir að hann hafi leigt herbergið frá 4. maí 2018. Umsamið leigugjald hafi verið 90.000 kr. og hafi sóknaraðili greitt  45.000 kr. í tryggingarfé. Síðar hafi aðilar samið um að lækka leigu í  65.000 kr. Við upphaf leigutíma, 4. maí 2018, hafi sóknaraðili greitt bæði leiguna og trygginguna með reiðufé en eftirleiðis hafi hann greitt leiguna mánaðarlega inn á bankareikning í eigu leigusala.

Þann 11. október 2018 hafi systir varnaraðila haft samband við sóknaraðila og sagt honum að ganga frá leigunni og fara úr herberginu í lok október 2018. Hafi hann gert það en ekki enn fengið tryggingarféð endurgreitt.

III. Niðurstaða            

Sóknaraðili greinir frá því að hann hafi greitt tryggingarfé að fjárhæð 45.000 kr. með peningum til leigusala 4. maí 2018 og ekki fengið endurgreitt, þrátt fyrir að leigusamningi hafi lokið 31. október 2018.

Í 4. tölul. 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, segir að leigusali megi ekki ráðstafa tryggingarfé eða taka af því án samþykkis leigjanda, nema fyrir liggi endanleg niðurstaða um bótaskyldu leigjanda. Þó er leigusala jafnan heimilt að ráðstafa tryggingarfénu til greiðslu á vangoldinni leigu, bæði á leigutímanum og við lok hans. Í 4. mgr. sömu lagagreinar segir að leigusali skuli svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðis gera leigjanda skriflega grein fyrir því hvort hann geri kröfu í tryggingarfé samkvæmt 4. tölul. 1. mgr. eða hefur uppi áskilnað um það, sbr. einnig 1. mgr. 64. laganna. Ákvæði 5. mgr. kveður á um að geri leigusali kröfu í tryggingarféð innan fjögurra vikna frá skilum leiguhúsnæðisins skv. 4. mgr. skal leigjandi tilkynna leigusala skriflega hvort hann hafnar eða fellst á kröfuna innan fjögurra vikna frá móttöku kröfunnar. Jafnframt segir að hafni leigjandi kröfu leigusala beri honum að vísa ágreiningi um bótaskyldu leigjanda til kærunefndar húsamála eða höfða mál um bótaskyldu hans innan fjögurra vikna frá þeim degi er leigjandi hafnaði kröfunni, ella skuli hann skila leigjanda tryggingarfénu ásamt vöxtum án ástæðulauss dráttar. 

Samkvæmt gögnum málsins lauk leigutíma 31. október 2018 og flutti sóknaraðili úr hinu leigða húsnæði þann dag. Sóknaraðili greinir frá því að hann hafi ekki enn fengið tryggingarféð endurgreitt. Þar sem varnaraðili hefur ekki látið málið til sín taka verður að leggja frásögn sóknaraðila til grundvallar sé hún ekki í ósamræmi við gögn málsins.  Fyrir liggja rafræn samskipti sóknaraðila og leigusala þar sem þeir komast að samkomulagi um að leiga fyrir fyrsta mánuð og tryggingarfé verði greitt með peningum í upphafi leigutíma. Þá eru engin gögn í máli þessu sem sýna að gerð hafi verið krafa í tryggingarféð að leigutíma loknum. Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða kærunefndar að varnaraðila beri að skila sóknaraðila tryggingarfénu að fjárhæð 45.000 kr. ásamt vöxtum, sbr. 4. tölulið 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, frá þeim tíma þegar tryggingin var lögð fram og með dráttarvöxtum, sbr. 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá 29. nóvember 2018, sbr. einnig 4. mgr. 40. gr. húsaleigulaga. 

Ákvæði 5. mgr. 85. gr. húsaleigulaga, sbr. lög nr. 63/2016, kveður á um að úrskurðir kærunefndar séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður var kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 7. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.


 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila tryggingarfé að fjárhæð 45.000 kr. ásamt vöxtum skv. 4. tölulið 1. mgr. 40. gr. húsaleigulaga, nr. 36/1994, frá þeim tíma þegar tryggingarféð var lagt fram til 29. nóvember 2018 en með  dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga, um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, frá þeim tíma til greiðsludags.

 

Reykjavík, 7. febrúar 2019

 

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

 

Valtýr Sigurðsson                                          Eyþór Rafn Þórhallsson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum