Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 9/2017 Úrskurður 9. febrúar 2017

Mál nr. 9/2017                       Eiginnafn: Baltazar

                                               

 

             

 

Hinn 9. febrúar 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 9/2017 en erindið barst nefndinni 25. janúar 2017. Nafninu hefur tvisvar áður verið hafnað, sbr. úrskurði mannanafnanefndar nr. 93/2002 og 47/2012.

Til að hægt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá þarf öllum skilyrðum 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera fullnægt. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Nafnið skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977, um íslenska stafsetningu.

 

Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.

Í máli þessu reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Eiginnafnið Baltazar (kk.) brýtur í bág við íslenskt málkerfi. Það getur ekki talist ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn ‚z‘ telst ekki til íslenska stafrófsins þótt hann komi fyrir í nokkrum mannanöfnum sem hafa unnið sér hefð. Bókstafurinn ‚z‘ var numinn brott úr íslensku ritmáli árið 1973 með auglýsingu menntamálaráðuneytis nr. 272/1973, sbr. núgildandi auglýsingar nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu. Á nafnið er því aðeins heimilt að fallast ef umbeðinn ritháttur þess telst hefðaður samkvæmt lögum um mannanöfn.

 

Til stuðnings við mat á hefð samkvæmt 5. og 6. gr. laga um mannanöfn hefur mannanafnanefnd byggt á vinnulagsreglum sem nefndin samþykkti á fundi 19. janúar 2015. Þessar vinnulagsreglur eiga sér stoð í ummælum í greinargerð með frumvarpi sem varð að gildandi lögum um mannanöfn og eldri vinnulagsreglum. Er í reglunum byggt á því að hugtakið hefð í lögum um mannanöfn varði einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli 1703 þegar manntal var tekið fyrsta skipti.

 

 

 

Vinnulagsreglurnar eru svohljóðandi:

  1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:

    1. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;

    2. Það er nú borið af 10­–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;

    3. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;

    4. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;

    5. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.

  2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.

  3. Tökunafn getur verið hefðað þó að það komi ekki fyrir í manntölum ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum eða þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.

 

Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands ber einn karlmaður nafnið Baltazar í þjóðskrá sem uppfyllir skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð og er hann fæddur 2004. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703–1920. Með vísan til þessa telst rithátturinn Baltazar ekki hefðaður í skilningi 1. mgr. 5. gr. laga um mannanöfn. Óhjákvæmilegt er því að hafna beiðni þessari.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Baltazar  (kk.) er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum