Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 379/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 379/2018

Þriðjudaginn 8. janúar 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Björn Jóhannesson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 18. október 2018, kærði B, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 12. og 19. mars 2018.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. mars 2018, var kærandi krafinn um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar vegna tímabilsins maí til nóvember 2017. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. mars 2018, var bótaréttur kæranda felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 vegna ótilkynntrar dvalar erlendis.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 18. október 2018. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 25. október 2018, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Kæranda var send ítrekun 28. nóvember 2018. Skýringar bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi hefur ekki komið neinum sjónarmiðum á framfæri í málinu.

 

III.  Niðurstaða

Kærðar eru ákvarðanir Vinnumálastofnunar frá 12. og 19. mars 2018.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Hinar kærðu ákvarðanir voru tilkynntar kæranda með bréfum Vinnumálastofnunar, dags. 12. og 19. mars 2018, en ákvarðanirnar kærðar til úrskurðarnefndar velferðarmála 18. október 2018. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Með bréfi, dags. 25. október 2018, gaf úrskurðarnefndin kæranda kost á því að gefa skýringar á því hvers vegna kæra hefði borist að liðnum kærufresti og var það ítrekað 28. nóvember 2018. Engar skýringar hafa borist frá kæranda.

Fyrir liggur að í hinum kærðu ákvörðunum var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála benda gögn málsins ekki til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum