Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 431/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 431/2016

Fimmtudaginn 9. febrúar 2016

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 1. nóvember 2016, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála, synjun Reykjavíkurborgar, dags. 12. október 2016, á umsókn hennar um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 20. júní 2016, sótti kærandi um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika hjá Reykjavíkurborg að fjárhæð 1.428.059 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu til greiðslu húsaleiguskuldar. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 23. júní 2016, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 12. október 2016 og staðfesti synjunina.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 1. nóvember 2016. Með bréfi, dags. 9. nóvember 2016, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 17. nóvember 2016. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 21. nóvember 2016, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi, dags. 2. desember 2016, og voru þær sendar Reykjavíkurborg til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. desember 2016. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi óskað eftir láni til að greiða húsaleiguskuld þannig að hún gæti haldið húsnæði sínu.

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Tekið er fram að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg, en öll skilyrði ákvæðisins þurfi að vera uppfyllt svo að heimilt sé að veita lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna. Kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði a-liðar 24. gr. reglnanna þar sem hún hafi ekki verið með fjárhagsaðstoð til framfærslu undanfarna sex mánuði eða lengur, en hún fái greiddan lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins auk greiðslna frá stéttarfélagi. Með hliðsjón af framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að skilyrði 24. gr. reglnanna væru ekki uppfyllt og því hafi synjun verið staðfest.

IV. Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika að fjárhæð 1.428.059 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika. Samkvæmt því er heimilt að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika, að uppfylltum öllum neðangreindum skilyrðum:

  1. umsækjandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum undanfarna sex mánuði eða lengur,

  2. staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana,

  3. fyrir liggi yfirlit starfsmanns þjónustumiðstöðvar eða Umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á,

  4. fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma er litið,

  5. fyrir liggi samkomulag um félagslega ráðgjöf og/eða fjármálaráðgjöf þegar það á við.

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu frá Reykjavíkurborg síðastliðna sex mánuði eða lengur þegar umsókn barst Reykjavíkurborg. Þegar af þeirri ástæðu átti kærandi ekki rétt á aðstoð vegna sérstakra erfiðleika á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 12. október 2016, um synjun á umsókn A, um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika að fjárhæð 1.428.059 kr. á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum