Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 421/2016

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 421/2016

Fimmtudaginn 9. febrúar 2017

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 27. október 2016, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. október 2016.

I. Málsatvik og niðurstaða

Kærandi lagði inn kæru, sem rituð var á ensku, hjá úrskurðarnefnd velferðarmála þann 24. október 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. október 2016, sem ritað var á ensku, var kæranda tilkynnt að eingöngu væri tekið við kærum á íslensku. Óskað var eftir að kærandi legði inn kæru sína á íslensku og tekið fram að nefndin myndi að því loknu taka mál hennar til meðferðar. Með tölvupóstum starfsmanns úrskurðarnefndarinnar 21. nóvember 2016 og 10. janúar 2017 var beiðni nefndarinnar ítrekuð og kæranda jafnframt bent á að hún gæti fengið aðstoð hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Samkvæmt 8. gr. laga nr. 61/2011 um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls er íslenska mál Alþingis, dómstóla, stjórnvalda, jafnt ríkis sem sveitarfélaga, skóla á öllum skólastigum og annarra stofnanna sem hafa með höndum framkvæmdir og veita almannaþjónustu. Með vísan til þess ber úrskurðarnefnd velferðarmála einungis að taka til meðferðar kærur sem uppfylla þetta skilyrði.

Kærandi hefur ekki orðið við beiðni úrskurðarnefndarinnar um að leggja inn kæru á íslensku. Að því virtu er það niðurstaða nefndarinnar að kæran sé ekki tæk til meðferðar. Kæru er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum