Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 52/2018 Úrskurður 14. ágúst 2018

Mál nr. 52/2018                    Millinafn:       Eykam

                                              Eiginnafn:     Eykam (kk.)

 

 

 

Hinn 14. ágúst 2018 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 52/2018 en erindið barst nefndinni 28. júní.

Í þessu máli er sótt um millinafnið Eykam, en til vara fer úrskurðarbeiðandi fram á að tekin verði afstaða til eiginnafnsins Eykam.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Eykam er ekki dregið af íslenskum orðstofni og hefur ekki unnið sér hefð í íslensku ritmáli. Fullnægir það þess vegna ekki skilyrðum laga um mannanöfn.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  • Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  • Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
  • Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Nafnið Eykam (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Eykams, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.

 

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Eykam er hafnað.

Beiðni um eiginafnið Eykam (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum