Hoppa yfir valmynd
K%C3%A6runefnd%20%C3%BAtlendingam%C3%A1la

Úrskurður nr. 579/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 10. október 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 579/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17100001

Beiðni [...] um endurupptöku

I. Málsatvik

Þann 23. mars 2017 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar frá 16. nóvember 2016 um að synja umsókn […], fd. […], ríkisborgara […] (hér eftir nefndur kærandi) um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 27. mars 2017. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 3. apríl 2017. Þann 3. ágúst 2017 óskaði kærandi eftir endurupptöku málsins. Með úrskurði kærunefndar, dags. 22. september 2017, var fallist á kröfu kæranda um endurupptöku á máli hans en ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest á ný. Þann sama dag var beiðni kæranda, dags. 3. apríl 2017, um frestun réttaráhrifa vísað frá. Niðurstaða kærunefndar var tilkynnt kæranda þann 25. september 2017.

Þann 29. september 2017 óskaði kærandi að nýju eftir endurupptöku málsins. Mál kæranda tengist máli eiginkonu hans og þriggja barna þeirra.

II. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku á grundvelli ákvæðis II til bráðabirgða í lögum um útlendinga nr. 80/2016.

Er því farið fram á að mál kæranda verði tekið upp að nýju og að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 2. mgr. 74. gr. útlendingalaga.

III. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Kærandi byggir beiðni sína um endurupptöku m.a. á því að hann uppfylli skilyrði nýsamþykktra laga nr. 81/2017 um lög um breytingu á lögum um útlendinga.

Með úrskurði kærunefndar, dags. 19. október 2017, var fallist á beiðni eiginkonu kæranda og barna þeirra um endurupptöku og lagt fyrir Útlendingastofnun að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga, sbr. lög um breytingu á lögum um útlendinga nr. 81/2017. Með vísan til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar og til athugasemda með frumvarpi því sem varð að lögum nr. 81/2017 er fallist á beiðni kæranda um endurupptöku og að veita beri honum dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga.

Úrskurðarorð

Fallist er á beiðni kæranda um endurupptöku á máli hans.

Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda varðandi umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla er staðfest.

The appellant‘s request for re-examination of the case is granted.

The Directorate is instructed to issue residence permit for the appellant based on Article 74 of the Act on Foreigners. The decision of the Directorate of Immigration related to his application for international protection and residence permit on the grounds of special connection with Iceland is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum