Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 79/2012

Þriðjudaginn 22. október 2013

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 21. ágúst 2012 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 16. ágúst 2012. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður), dags. 18. júlí 2012, þar sem kærandi var krafinn um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði vegna mánaðanna febrúar til maí 2012 ásamt viðbættu álagi.

Með bréfi, dags. 27. ágúst 2012, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 15. september 2012.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 18. september 2012, og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust.

I. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hann hafi verið í fæðingarorlofi frá janúar til júlí 2012 og skipt því þannig að hann hafi verið í 50% fæðingarorlofi og 50% vinnu á móti. Kærandi hafi kynnt sér rétt sinn hjá Fæðingarorlofsjóði áður en hann hafi sótt um greiðslur úr sjóðnum. Honum hafi verið tjáð að heimilt sé að vera í 50% vinnu og 50% fæðingarorlofi á sama tíma. Þann 20. júní 2012 hafi honum borist bréf frá Fæðingarorlofssjóði þar sem honum hafi verið tilkynnt um hugsanlega ofgreiðslu úr sjóðnum. Með bréfinu hafi einnig verið óskað eftir launaseðlum og skriflegri útskýringu á launagreiðslum, sem hann hafi og gert. Í útskýringu kæranda hafi komið fram að hann hafi verið í 50% í vinnu á umræddum tíma og hafi einnig lýst vinnufyrirkomulagi kæranda. Hann sé í tekjugóðri vinnu og fái því há laun.

Þann 18. júlí hafi kæranda borist greiðsluáskorun þar sem skorað var á kæranda að greiða tiltekna fjárhæð. Hann hafi verið ósáttur við að þurfa að greiða kröfuna og því haft samband við Fæðingarorlofssjóð til að kanna málið. Þá hafi kæranda verið tilkynnt að hámark sé á launagreiðslum þegar um 50% orlof sé að ræða, þ.e. að hann hafi ekki mátt fá greitt umfram þá fjárhæð frá vinnuveitanda sínum. Það hafi kæranda fundist óréttlát, enda hafi honum aldrei verið tilkynnt um umrætt hámark þegar hann hafi kannað rétt sinn til fæðingarorlofs. Hefði kærandi vitað um téð hámark hefði hann fremur sleppt því fyrirkomulagi að vera í 50% fæðingarorlofi og tekið 100% fæðingarorlof.

Kærandi sé afar ósáttur við að hann hafi ekki fengið framangreindar upplýsingar í upphafi þegar hann hafi kannað rétt sinn til fæðingarorlofs. Upplýsingar um tekjuhámark komi hvorki fram á umsóknareyðublöðum Fæðingarorlofssjóðs né hafi kæranda verið skýrt frá því símleiðis. Líkt og áður segi hefði kærandi ekki tekið 50% orlof hefði hann vitað af framangreindu tekjuhámarki heldur hefði hann tekið fullt fæðingarorlof. Kærandi hafi ákveðið að vera í 50% orlofi til að njóta samvista með dóttur sinni án þess að hafa áhyggjur af mikilli tekjuskerðingu. Kærandi taki sérstaklega fram að hann hafi tekið þrjá mánuði í fæðingarorlofi sumarið 2011 og tekið umrædda þrjá mánuði sem séu sameiginlegir og skipt þeim í 50%. Hann hafi verið hjá öðrum vinnuveitanda það sumar með lægri tekjur en nú. Í febrúar 2012 hafi kærandi verið komin í nýja vinnu með hærri laun.

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi, dags. 20. júní 2012, vakið athygli kæranda á því að stofnunin væri með til meðferðar mál hans vegna hugsanlegrar ofgreiðslu fyrir tímabilið frá febrúar til maí 2011. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hafi hann verið að fá laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hann þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum, tímaskýrslum, útskýringum vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Bréf hafi borist frá kæranda, dags. 28. júní 2012, ásamt launaseðlum fyrir tímabilið. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 18. júlí 2012, ásamt sundurliðun ofgreiðslu þar sem hann hafi verið krafinn um endurgreiðslu hluta útborgaðrar fjárhæðar fyrir tímabilið ásamt 15% álagi. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. maí 2011 og innsendum gögnum að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði skv. 10. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008 og 3. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. sé fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra á vinnumarkaði til fæðingarorlofs og í 10. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 10. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, 8. gr. laga nr. 74/2008 og 3. gr. laga nr. 136/2011, skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris. Í athugasemdum með 10. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, segi orðrétt:

Talið er mikilvægt að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim er ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri tekjutapið bætt frá vinnuveitanda er eðlilegt að það komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er gert ráð fyrir að foreldri geti fengið bætur annars staðar frá fyrir þann tekjumissi er Fæðingarorlofssjóði er ekki ætlað að bæta. Kæmi sá hluti því ekki til frádráttar. Er því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þegar foreldri hefur hærri tekjur en hámarkstekjurnar sem lagt er til að verði miðað við skv. 3. mgr. þá er gert ráð fyrir að hærri greiðslur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geta orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geta talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Með þessum hætti er verið að undirstrika tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem er aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki. Er með þessu enn fremur lögð rík áhersla á að foreldrar leggi sannanlega niður launuð störf á þeim tíma er þeir nýta sér rétt sinn samkvæmt lögunum.

Í athugasemdum með 10. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, segi orðrétt:

Lögin um fæðingar- og foreldraorlof gera ráð fyrir að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til ákveðinna breytinga á launakjörum foreldra skv. 9. mgr. 13. gr. laganna. Þykir mikilvægt að tekið sé fram að eingöngu sé verið að miða við greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ástæðan er einkum sú að foreldrar kunna að eiga rétt á eingreiðslum frá vinnuveitendum á ákveðnum tíma árs sem koma til framkvæmda meðan foreldri er í fæðingarorlofi en er ætlað fyrir lengra tímabil en nemur fæðingarorlofstíma foreldris. Dæmi um slíkar greiðslur eru bónusgreiðslur sem koma til framkvæmda við árslok en miðast við frammistöðu starfsmanns eða velgengni fyrirtækis á hluteigandi ári.

Í athugasemdum við 4. gr. laga nr. 90/2004 sé umfjöllun um hvað átt sé við með upphafsdegi fæðingarorlofs. Þar komi meðal annars fram að reynt hafi á þetta atriði í erindum til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála þar sem foreldrar hafi ekki viljað líta heildstætt á rétt sinn til fæðingarorlofs. Hafi feður viljað miða við síðara tímamark en fæðingu barns, þ.e. við þann tíma sem þeir sjálfir hefji töku orlofs. Sú skýring hafi þótt brjóta gegn þágildandi lögum nr. 96/2000, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla (nú lögum nr. 10/2008), í ljósi þess að karlar ættu hægara um vik en konur að vinna sér inn réttinn eftir að barnið fæðist. Þessu til stuðnings hafi verið á það bent að réttur til fæðingarorlofs stofnist við fæðingu barns, sbr. 2. mgr. 8. gr. laganna. Því hafi þótt rétt að hafa samræmi milli ákvæða laganna þannig að um sömu viðmið væri að ræða enda tilgangur laganna að líta heildstætt á rétt foreldra til fæðingarorlofs. Þegar um væri að ræða fæðingarorlof vegna fæðingar hafi því verið gert ráð fyrir að miðað væri við áætlaðan fæðingardag barns, sbr. 2. mgr. 8. gr. laganna. Því hafi verið breytt í meðförum þingsins á frumvarpinu með þingskjali nr. 1810 í fæðingardag barns í stað áætlaðs fæðingardags barns, sbr. og nefndarálit meirihluta á þingskjali nr. 1519.

Í samræmi við framangreint sé við mat á núgildandi 10. mgr. 13. gr. ffl. ekki heimilt að taka tillit til hugsanlegra breytinga á launum foreldris eftir fæðingardag barns. Einungis sé heimilt að taka tillit til hugsanlegra launabreytinga á því tímabili frá því að viðmiðunartímabili skv. 2. eða 5. mgr. lauk og fram að fæðingardegi barns.

Í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, komi fram hvaða laun skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Samkvæmt ákvæðinu skuli telja til launa hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeninga, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, sé stofn til tryggingagjalds allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld séu skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Í 7. og 8. gr. laga um tryggingagjald sé frekari upptalning á því hvað teljist til gjaldstofns tryggingagjalds skv. 6. gr. laganna og í 9. gr. sé upptalning á því hvaða greiðslur séu undanþegnar tryggingagjaldi. Við mat á því hvaða greiðslur vinnuveitanda megi fara með og hvaða greiðslur megi ekki fara með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé því nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar hvaða greiðslur það séu sem sjóðurinn telji með þegar fundið sé út meðaltal heildarlauna foreldris.

Í 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni hafi foreldri fært rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Ekki hafi komið fram nein rök sem gefi tilefni til að fella niður 15% álag á kæranda.

Með umsóknum kæranda, dags. 3. febrúar og 23. september 2011, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna barns hans sem fæddist Y. maí 2011. Tvær tilkynningar hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs og hafi hann verið afgreiddur í fæðingarorlof í samræmi við þær, sbr. greiðsluáætlun til hans, dags. 29. nóvember 2011.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hans verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau verið komin í X kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda honum til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 10. mgr. 13. gr. ffl. Enga heimild sé að finna í ffl. eða í reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, að tekið sé tillit til launabreytinga foreldris eftir fæðingardag barns við mat á hugsanlegri ofgreiðslu.

Í skýringum kæranda, dags. 28. júní 2011, komi meðal annars fram að kærandi hafi verið í 50% fæðingarorlofi og unnið 50%. Hann hafi verið að vinna við löndun og unnið þrjá til fjóra daga í viku. Skýring á háum launum sé vegna þess að vinnan sé vel borguð. Sem dæmi megi nefna að hann landi úr einum frystibát og fyrir það fái hann rúmar X kr. Fyrir hvern bát fái hann á bilinu X–X kr. Það fari eftir magni hvers og eins og stærð. Yfirleitt vinni hann á miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum og á þessum dögum sé hann að landa. Hann landi úr sirka tveimur til þremur bátum á dag. Þannig að á þessum þremur dögum sé hann að landa úr sex til átta bátum. Svo hafi hann tekið frystilöndun af og til en það sé þá einn dagur í viðbót. Einnig komi fram að hann hafi fengi borgað vikulega og launaseðill sé fyrir hverja viku.

Í febrúar 2012 hafi kærandi þegið X kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Hafi þá verið tekið tillit til launatímabils kæranda samkvæmt skýringum hans, dags. 28. júní 2011, og launaseðlum (laun samkvæmt staðgreiðsluskrá séu X kr.). Hann hafi því fengið sem svari 114% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hafi því ekki mátt þiggja greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir febrúar 2012 sé því X kr. útborgað.

Í mars 2012 hafi kærandi þegið X kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Hafi þá verið tekið tillit til launatímabils kæranda samkvæmt skýringum hans, dags. 28. júní 2011, og launaseðlum (laun samkvæmt staðgreiðsluskrá séu X kr.). Hann hafi því fengið sem svari 118% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hafi því ekki mátt þiggja greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir mars 2012 sé því X kr. útborgað.

Í apríl 2012 hafi kærandi þegið 445.433 kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Hafi þá verið tekið tillit til launatímabils kæranda samkvæmt skýringum hans, dags. 28. júní 2011, og launaseðlum (laun samkvæmt staðgreiðsluskrá séu X kr.). Hann hafi því fengið sem svari 83% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hafi því mátt þiggja 17% greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir apríl 2012 sé því X kr. útborgað.

Í maí 2012 hafi kærandi þegið X kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Hafi þá verið tekið tillit til launatímabils kæranda samkvæmt skýringum hans, dags. 28. júní 2011, og launaseðlum (laun samkvæmt staðgreiðsluskrá séu X kr.). Hann hafi því fengið sem svari 80% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hafi því mátt þiggja 20% greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir maí 2012 sé því X kr. útborgað.

Í kæru kæranda komi meðal annars fram að hann hafi kannað rétt sinn niður á skrifstofu áður en hann hafi hafið fæðingarorlof sitt. Þar hafi honum verið tilkynnt að hann mætti vinna 50% vinnu og svo fengi hann greitt frá Fæðingarorlofssjóði 50% á móti. Í samskiptasögu stofnunarinnar við kæranda sé ekki skráð að kæranda hafi verið veittar slíkar leiðbeiningar. Hins vegar komi skýrt fram í 10. mgr. 13. gr. ffl. að greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltali heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Eins og að framan hafi verið rakið sé fæðingarorlof skv. 1. mgr. 7. gr. ffl. leyfi frá launuðum störfum sem stofnist til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur.

Í 10. mgr. 13. gr., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, komi fram eins og áður segi sú fortakslausa regla að greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna skv. 2. mgr. skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í athugasemdum við 10. mgr. 13. gr. ffl. sé svo enn frekar hnykkt á því en þar komi fram að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði og að tilgangur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sé aðallega að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki.

Framangreindu ákvæði hafi lítillega verið breytt á árinu 2008, sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008. Við hafi bæst setningin: „Eingöngu skulu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.“ Í athugasemdum við þá breytingu komi þó áfram fram sú fortakslausa regla að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Því hafi breytingin fyrst og fremst virst hafa átt að taka til eingreiðslna og annarra slíkra greiðslna frá vinnuveitendum sem foreldri geti átt rétt á á ákveðnum tíma árs og komi til framkvæmda meðan foreldri sé í fæðingarorlofi en sé ætlað fyrir lengra tímabil en nemi fæðingarorlofi foreldris, sbr. framangreindar athugasemdir með ákvæðinu og tilvitnað dæmi.

Við mat á hugsanlegri ofgreiðslu geri ákvæðið þannig ráð fyrir að litið sé til hvers almanaksmánaðar fyrir sig og hlutfalls fæðingarorlofs í hverjum mánuði og þess hvort greiðslur frá vinnuveitanda séu hærri en sem nemi mismuni greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltali heildarlauna foreldris á viðmiðunartímabili skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. ffl., eftir atvikum að teknu tilliti til launabreytinga fram að fæðingu barns ef um það sé að ræða. Ljóst sé að ákvæðið opni því ekki á það að foreldri geti valið að vera í fæðingarorlofi hluta dags eða hluta mánaðar og lagt niður vinnu þann tíma en síðan bætt upp það tekjutap sem af því hlýst með frekari vinnu, til dæmis yfirvinnu, seinni hluta sama dags eða mánaðar eða með aukavinnu, bónusþóknunum, árangursþóknunum og öðrum slíkum greiðslum vegna þeirrar vinnu sem unnin hafi verið innan tímabilsins og það leiði þannig til þess að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði komi í raun til viðbótar við greiðslur frá vinnuveitanda að hluta eða öllu leyti. Með þeim hætti hafi enda tilgangi greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, sem sé aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki og að allar greiðslur sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum, ekki verið náð.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað að viðbættu 15% álagi X kr. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði X kr., sbr. greiðsluáskorun til hans ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 18. júlí 2012.

III. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur vegna tímabilsins frá febrúar til maí 2012 úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns Y. maí 2011, auk 15% álags.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. maí 2011. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá nóvember 2009 til október 2010. Í greiðsluáætlun, dags. 29. nóvember 2011, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því 300.000 kr. Af útreikningi á endurgreiðslukröfu á hendur kæranda, sem fylgdi greiðsluáskorun frá 18. júlí 2012, má sjá að litið var til launa kæranda eftir að viðmiðunartímabili lauk og miðað við X kr. meðallaun við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs. Er það samkvæmt heimild í 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, til hækkunar á meðaltals heildarlaunum vegna launahækkana eftir lok viðmiðunartímabils en fyrir fæðingu barns. Er það kæranda til hagsbóta.

Með vísan til framangreinds er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða viðmiðunartekjur kæranda við X kr., líkt og gert er í hinni kærðu ákvörðun, en það er meðaltal heildarlauna kæranda frá því að viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. lauk og fram að fæðingu barns hans.

Ekki er ljóst hvaða leiðbeiningar kærandi fékk frá sjóðnum um hámarksgreiðslur frá vinnuveitanda. Með vísan til 2. mgr. 15. gr. ffl. um skyldu foreldris til endurgreiðslu ofgreiddrar fjárhæðar úr Fæðingarorlofssjóði er ekki unnt að fallast á að kærandi eigi rétt á að halda þeim greiðslum sem hann hafi þannig ranglega móttekið, jafnvel þótt hann hafi ekki haft upplýsingar um hámarksgreiðslur frá vinnuveitanda. Standa lög ekki til þess að hann haldi ranglega reiknuðum greiðslum á grundvelli þess að hann hafi móttekið þær í góðri trú.

Þar sem kærandi þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði mánuðina febrúar, mars, apríl og maí 2012 var honum einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni meðaltals heildarlauna hans eins og þau voru hækkuð skv. 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði án þess að greiðslur vinnuveitanda til hans kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði, þ.e. samanlagðar greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði og vinnuveitanda kæranda máttu ekki fara umfram viðmiðunartekjur kæranda án þess að til frádráttar kæmi.

Líkt og áður segir er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð X kr. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði að fjárhæð X kr. mánuðina febrúar, mars, apríl og maí 2012. Kæranda var því heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í framangreindum mánuðum án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Er þessi túlkun í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greidd laun frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í febrúar 2012, X kr. í mars 2012, X kr. í apríl 2012 og X í maí 2012, að teknu tilliti til launatímabils kæranda. Það er því ljóst að kærandi þáði hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en honum bar fyrir mánuðina febrúar, mars, apríl og maí 2012. Verður niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu fyrir umrædda mánuði því staðfest, þó með þeirri breytingu er greinir í úrskurðarorðum.

Af gögnum málsins má sjá að Fæðingarorlofssjóður byggir hina kærðu ákvörðun á hlutfallsútreikningi. Það er álit úrskurðarnefndar, með vísan til álits umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013, að sú aðferð sé ekki í samræmi við ákvæði ffl. og því er hin kærða ákvörðun felld úr gildi.

Þar sem kærandi fékk greidd laun frá vinnuveitanda sínum sem voru hærri en meðaltals heildarlaun hans eins og þau voru hækkuð skv. 9. mgr. (nú 10. mgr.) 13. gr. ffl. í mánuðunum febrúar og mars 2012 mátti kærandi ekki fá neinar greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði þá mánuði.

Þar sem kærandi fékk greidd laun frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. fyrir aprílmánuð 2012 var honum einungis heimilt að þiggja X kr. frá Fæðingarorlofssjóði þann mánuðinn, en ekki X kr. líkt og honum var greitt.

Þar sem kærandi fékk greidd laun frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. fyrir maímánuð 2012 var honum einungis heimilt að þiggja X kr. frá Fæðingarorlofssjóði þann mánuðinn, en ekki X kr. líkt og honum var greitt.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar að kærandi hafi fengið ofgreitt fæðingarorlof og því beri honum að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.

Kærandi heldur fram að honum hafi ekki verið veittar upplýsingar um hámarksgreiðslur vinnuveitanda á umræddu tímabili og að það geti skipt máli fái hann greitt umfram þá fjárhæð. Í 2. mgr. 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004 og 5. gr. laga nr. 155/2006, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Þá segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Með umsókn kæranda um fæðingarorlof veitti hann ýmsar upplýsingar vegna fyrirhugaðs orlofs. Í umsókninni er feitletraður og undirstrikaður texti með yfirlýsingu umsækjanda um að hann heimili Vinnumálastofnun að afla gagna úr skattskrám og að hann sé upplýstur um að þessi gögn verði notuð til eftirlits. Þá segir orðrétt: „Með undirskrift minni staðfesti ég einnig að láta Fæðingarorlofssjóð vita um allar breytingar sem kunna að hafa áhrif á afgreiðslu umsóknar þessarar og/eða greiðslur samkvæmt henni.“ Í umsókninni gaf kærandi engar upplýsingar um tekjur og ekki er þar tekið fram að breytingar á þeim séu á meðal þess sem tilkynna beri um. Í framhaldi af þessari umsókn var kæranda send greiðsluáætlun þar sem sérstaklega var tiltekið að greiðslur sjóðsins miðist við „hlutfall af meðaltekjum þínum samkvæmt skrám skattyfirvalda á 12 mánaða samfelldu tímabili sem lýkur 6 mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns“ og var því beint til kæranda að yfirfara upplýsingar um tekjur á þessu tímabili sem fylgdu áætluninni. Í smáu letri sem fylgdi kom fram að yrðu „breytingar á lágmarksgreiðslu, skatthlutfalli, persónuafslætti eða öðrum forsendum sem hafa áhrif á greiðslur geta fjárhæðir breyst“. Hvergi var á hinn bóginn minnst á breytingar á tekjum eftir að umræddu tímabili lauk eða að þær gætu skipt máli. Þegar samskipti kæranda og stjórnvaldsins eru skoðuð heildstætt er útilokað að leggja ábyrgðina á því að kærandi upplýsti ekki sjóðinn um breyttar tekjur sínar á kæranda. Verður því hafnað að leggja 15% álag á endurgreiðsluna. Með vísan til þess sem að framan er rakið verður því hafnað að leggja ábyrgðina á því að umræddar greiðslur voru inntar af hendi á kæranda. Verður því ákvörðun um að leggja 15% álag á endurgreiðsluna felld úr gildi.

ÚRSKURÐARORÐ:

Kærandi, A skal endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr. vegna ofgreidds fæðingarorlofs. Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að leggja 15% álag á endurgreiðslukröfu sína er felld úr gildi.

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum