Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 100/2018 Úrskurður 28. janúar 2019

Mál nr. 100/2018                  Millinafn:       Danski

 

 

Hinn 28. janúar 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 100/2018 en erindið barst nefndinni 13. desember 2018.

Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Millinafnið Danski hefur nefnifallsendingu og fullnægir þess vegna ekki skilyrðum laga um mannanöfn.

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Danski er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum