Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 207/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 207/2019

Miðvikudaginn 18. september 2019

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

 

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Ásmundur Helgason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 25. maí 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins frá 22. maí 2019 um annars vegar endurreikning og uppgjör tekjutengdra greiðslna ársins 2018 og hins vegar innheimtu ofgreiddra bóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Við endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta vegna ársins 2018 komst Tryggingastofnun ríkisins að þeirri niðurstöðu að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð X  kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Með bréfi, dags. 22. maí 2019, fór stofnunin fram á endurgreiðslu hinna ofgreiddu bóta.

Kæra barst úrskurðarnefnd almannatrygginga þann 25. maí 2019. Með bréfi, dags. 28. maí 2019, óskaði úrskurðarnefnd almannatrygginga eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Greinargerð Tryggingastofnunar barst með bréfi, dags. 3. júní 2019. Með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag, var greinargerð Tryggingastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda 15. júní 2019 og voru þær sendar Tryggingastofnun til kynningar með bréfi, dags. 19. júní. Viðbótargreinargerð, dags. 21. júní 2019 barst frá Tryggingastofnun.   

 

 

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir ekki formlegar kröfur í málinu en ráða má af kæru að hún krefjist þess að Tryggingastofnun ríkisins felli niður kröfu um endurgreiðslu ofgreiddra bóta að fjárhæð X kr.

Í kæru segir að kærandi hafi fengið innheimtubréf frá Tryggingastofnun ríkisins 22. maí 2019 þar sem fram hafi komið að henni bæri að greiða ofgreiðslu endurhæfingarlífeyris, X kr. af samtals X kr.

Uppi sé sama staða eins og X 2018 þegar kærandi hafi kært ákvörðun B, dags. X 2017. Að sama skapi kæri hún nú framangreinda innheimtu Tryggingastofnunnar ríkisins. Til grundvallar kæru sinni bendi kærandi á úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála frá 13. ágúst 2018 í máli nr. 2/2018. Ljóst sé að kærandi muni ekki fara aftur út á vinnumarkað af heilsufarsástæðum og muni að öllu óbreyttu fara á örorku. Kærandi voni að skilningur sé á því að þetta sé ferli sem hún vilji ekki endurtaka á hverju ári.

Í athugasemdum kæranda við greinargerð Tryggingastofnunnar ríkisins kemur fram að í úrskurði nr. 2/2018 komi fram að eiginmaður kæranda hafi fengið eingreiðslur fyrir leigu á landi sínu sem ekki séu fjármagnstekjur og greitt skatt af þeim og svo sé einnig í þessu máli.

Kærandi spyrji hvort hægt sé að margskatta þá upphæð. Einu fjármagnstekjur kæranda séu af vaxtatekjum af innstæðu í banka. Kærandi hafi fengið endurhæfingarlífeyri og sjúkradagpeninga árið 2018 að upphæð X kr. og af þessari upphæð sé henni gert að greiða kr. X kr. til baka. Á árinu 2019 hafi kærandi verið á endurhæfingarlífeyri til X og sé nú orðin launalaus. Kærandi skilji markmið laga nr. 100/2007 um almannatryggingar þannig að þeim sé ætlað að tryggja þeim, sem lögin taki til og þess þurfi, bætur og aðrar greiðslur vegna elli, örorku og framfærslu barna, eftir því sem nánar sé kveðið á um í lögum.

Með bótum og greiðslum samkvæmt 1. gr. laganna, ásamt þjónustu og aðstoð, sem kveðið sé á um í öðrum lögum, skuli stuðlað að því að þeir sem lögin taki til geti framfleytt sér og lifað sjálfstæðu lífi.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar

Í greinargerð Tryggingastofnunar kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta ársins 2018.

Í 16. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla almannatryggingalaga teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað teljist ekki til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Í a-lið 2. mgr. 16. gr. sé fjallað um fjármagnstekjur og þá segi: „Ef um hjón er að ræða skiptast tekjur skv. 1. málsl. til helminga milli hjóna við útreikning bótanna. Skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.“

Í 5. mgr. 18. laga um almannatryggingar sé kveðið á um áhrif tekna á örorkulífeyri, samkvæmt 16. gr. laga um almannatryggingar. Í 7. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð komi fram að um endurhæfingarlífeyri gildi ákvæði a-liðar 1. mgr., 4. mgr. og 5. mgr. 18. gr. laga um almannatryggingar.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags, en þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram skylda Tryggingastofnunar til þess að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Á árinu 2018 hafi kærandi verið með endurhæfingarlífeyri og tengdar greiðslur frá X til X. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til X kr. ofgreiðslu, að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2019 vegna tekjuársins 2018 hafi komið í ljós að tekjur kæranda reyndust hærri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir. Endurreikningur hafi byggst á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi sent inn tekjuáætlun rafrænt X 2018. Samkvæmt áætluninni hafi verið gert ráð fyrir að árið 2018 væri kærandi með engar tekjur. Engar frekari breytingar eða athugasemdir hafi borist frá kæranda og hafi henni verið greitt eftir tekjuáætluninni frá X til X 2018.

 

Við bótauppgjör ársins 2018 hafi komið í ljós að á tímabilinu X til X 2018 hafi kærandi haft X kr. í launatekjur og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna verið X kr. í vexti og verðbætur og X kr. í söluhagnað. Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2018 hafi verið sú að kærandi hafi fengið ofgreiddar bætur í bótaflokkunum tekjutrygging, framfærsluuppbót og orlofs- og desemberuppbót, sbr. nánari útlistun í meðfylgjandi gögnum.

 

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega, eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

 

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2018 hafi verið sú að kærandi hefði fengið greitt á árinu X kr. en hefði átt að fá greitt X kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð X kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

 

Í kæru vísi kærandi til úrskurðar úrskurðarnefndar í máli nr. 2/2018. Af orðalagi kæranda megi ráða að kærandi hafi einnig verið málsaðili í því máli.

Tryggingastofnun vilji vekja athygli á því að í því máli hafi verið um að ræða túlkun á alls óskyldu ákvæði 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Það meginsjónarmið sem fram komi hjá úrskurðarnefnd, þ.e. að lagákvæði sem mæli fyrir um skerðingu atvinnuleysisbóta verði að vera skýr og ótvíræð um þá skerðingu, eigi ekki við í þessu máli. Eins og áður segði þá sé í a-lið 2. mgr. 16. gr. almannatryggingalaga afdráttarlaust kveðið á um það að ef um hjón sé að ræða skipti ekki máli hvort hjónanna sé eigandi þeirra eigna sem myndi tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign sé að ræða.

Meðferð Tryggingastofnunar á fjármagnstekjum hjóna og sambúðaraðila hafi ítrekað komið til meðferðar hjá úrskurðarnefnd. Kærandi sé í hjónabandi og ítrekað hafi verið staðfest að þá skiptist fjármagnstekjur til helminga á milli hjónanna. Sem dæmi um nýlegan úrskurð megi nefna mál nr. 233/2018. Einnig hafi þetta verið staðfest fyrir dómstólum.

Kærð ákvörðun sé í samræmi við þau lög og reglur sem gildi um uppgjör og endurreikning tekjutengdra bóta. Með vísun til framangreinds telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

Í viðbótargreinargerð Tryggingastofnunar, dags. 21. júní 2019, kemur fram að stofnunin hafi farið yfir viðbótargögn í málinu en sæi ekki ástæðu til sérstakra athugasemda. Stofnunin vilji þó afsaka að ranglega hafi verið tilgreint að um söluhagnað hefði verið að ræða í stað leigutekna. Það breyti þó ekki ákvörðun eða niðurstöðu stofnunarinnar, enda teljist hvoru tveggja til fjármagnstekna samkvæmt c-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2018 og innheimtu ofgreiddra bóta.

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árinu 2018. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Fjármagnstekjur eru tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og einnig C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Samkvæmt 2. málsl. a-liðar 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar skulu fjármagnstekjur skiptast til helminga á milli hjóna við útreikning bóta og þá segir í 3. málsl. sömu greinar að ekki skipti máli hvort hjónanna sé eigandi þeirra eigna sem myndi tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign sé að ræða. Á grundvelli 7. mgr. 16. gr. ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Ef í ljós kemur við endurreikning að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Samkvæmt gögnum málsins gerði tekjuáætlun kæranda fyrir árið 2018 ekki ráð fyrir neinum tekjum. Samkvæmt upplýsingum úr skattframtali kæranda vegna tekjuársins 2018 reyndust fjármagnstekjur kæranda og eiginmanns hennar vegna vaxta og verðbóta vera X kr. og vegna leigutekna X kr. Samtals reyndust því fjármagnstekjur þeirra vera X kr. Endurreikningur Tryggingastofnunar á tekjutengdum bótagreiðslum vegna ársins 2018 leiddi í ljós að kærandi hafi átt rétt á X kr. í greiðslur á árinu en heildargreiðslur ársins hafi verið X kr. Samtals reyndist ofgreiðsla vera X kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu, í bótaflokkunum tekjutryggingu, orlofs- og desemberuppbótum og sérstakri uppbót framfærslu. Kærandi hefur verið krafinn um endurgreiðslu þeirrar fjárhæðar.

Að framangreindu virtu liggur fyrir að fjármagnstekjur hafa áhrif á bótarétt samkvæmt lögum um almannatryggingar. Þegar um hjón er að ræða skiptast fjármagnstekjurnar til helminga á milli hjóna við útreikning bótanna, sbr. a-lið 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Ástæðu þess að endurkrafa myndaðist á hendur kæranda er að rekja til þess að umræddur tekjustofn var vanáætlaður í tekjuáætlun. Tryggingastofnun greiðir tekjutengdar bætur á grundvelli upplýsinga úr tekjuáætlun viðkomandi greiðsluþega. Þá ber stofnuninni lögum samkvæmt að endurreikna bætur með hliðsjón af upplýsingum skattyfirvalda og innheimta ofgreiddar bætur.

Kærandi vísar til úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 2/2018 frá 9. ágúst 2018 til stuðning kæru. Í því máli var ákvörðun B um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta felld úr gildi á þeim grundvelli að af texta ákvæðis 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 yrði ráðið að eingöngu fjármagnstekjur hins tryggða gætu komið til frádráttar atvinnuleysisbótum. Úrskurðarnefndin fellst ekki á að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi með vísan til framangreinds úrskurðar, enda kemur skýrt fram í a-lið 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar að fjármagnstekjur skiptist til helminga á milli hjóna við útreikning bóta og ekki skipti máli hvort hjónanna sé eigandi þeirra eigna sem myndi tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign sé að ræða.

Með hliðsjón af öllu framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta beri endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2018 og ákvörðun stofnunarinnar um innheimtu ofgreiddra bóta.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2018 og innheimtu ofgreiddra bóta, eru staðfestar.

 

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum