Hoppa yfir valmynd

Synjun Vinnumálastofnunar frá 19. desember 2005 staðfest.

Mánudaginn 9. október 2006 var í félagsmálaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r:

 

Með erindi, dags. 16. janúar 2006, kærði A, kt. X, synjun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2005, á veitingu atvinnuleyfis fyrir D, sem er filippseyskur ríkisborgari, fd. Y.

 

I. Málavextir og málsástæður.

Mál þetta varðar synjun Vinnumálastofnunar á veitingu atvinnuleyfis til handa A í því skyni að ráða til starfa D, sem er filippseyskur ríkisborgari. Vinnumálastofnun synjaði um veitingu atvinnuleyfisins með vísan til a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga.

Þeirri ákvörðun vildi kærandi ekki una og kærði hana til ráðuneytisins. Fram kemur í erindi kæranda að hún hafi auglýst í þrjár vikur eftir vinnuafli innan lands með aðstoð Svæðisvinnumiðlunar Vesturlands, Svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins og EES vinnumiðlunar. Þær auglýsingar hafi hins vegar ekki borið árangur.

Erindi kæranda var sent Vinnumálastofnun til umsagnar með bréfi ráðuneytisins, dags. 24. janúar sl., og barst ráðuneytinu svarbréf stofnunarinnar 23. febrúar sl. Í umsögn sinni ítrekar stofnunin afstöðu sína til málsins þess efnis að samkvæmt viðauka B við aðildarsamning EES sé núverandi aðildarríkjum gert að veita ríkisborgurum hinna nýju aðildarríkja, sem gengu til liðs við Evrópusambandið sem og Evrópska efnahagssvæðið 1. maí 2004, forgang fram yfir ríkisborgara annarra ríkja að því er varðar aðgengi að vinnumörkuðum sínum. Því beri að leita aðstoðar vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu fáist ekki vinnuafl innan lands. Enn fremur bendir stofnunin á að skv. 7. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sé heimilt að veita leyfi til að ráða útlendinga til starfa hérlendis að uppfylltum tilteknum skilyrðum, svo sem að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands eða að atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl. Því beri atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli áður en Vinnumálastofnun geti veitt atvinnuleyfi.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að vinnumiðlunin á Evrópska efnahagssvæðinu á Íslandi telji að í ljósi reynslu undanfarinna mánaða ætti ekki að vera erfitt að ráða starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu í umrætt starf og að í máli þessu hafi ekki verið fullreynt að ráða starfsmann af því svæði. Þá bendir Vinnumálastofnun á að um sé að ræða 80% starf en stofnunin veiti ekki atvinnuleyfi vegna hlutastarfa þar sem slík störf séu ekki talin tryggja næga framfærslu útlendinga sem dveljast og starfa hér á landi.

Þá vísar stofnunin í umsögn sinni til þriggja úrskurða félagsmálaráðuneytis þar sem vísað hafi verið til þess að kærendur hafi ekki fullreynt að ráða ríkisborgara aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og að þar með hafi ekki verið sýnt fram á nauðsyn þess að ráða viðkomandi útlendinga til starfa. Telur stofnunin að umræddir úrskurðir hafi fordæmisgildi í því máli sem hér um ræðir.

Með vísan til framangreinds og yfirlýsinga félagsmálaráðherra og dómsmálaráðherra frá 7. september 2005 telur Vinnumálastofnun í umsögn sinni að kærandi hafi ekki reynt til fulls að ráða fólk í umrætt starf annaðhvort innan lands eða af Evrópska efnahagssvæðinu og því hafi stofnuninni borið að synja um umrætt atvinnuleyfi.

Með bréfi, dags. 23. febrúar sl., var kæranda gefinn kostur á að gera athugasemdir við umsögn Vinnumálastofnunar. Frestur til að koma að athugasemdum var veittur til 10. mars sl., en svarbréf barst ekki frá kæranda. Ráðuneytið sendi því bréf til kæranda, dags. 15. mars sl., þar sem upplýst var að ráðuneytið tæki málið til efnislegrar afgreiðslu hefðu athugasemdir hans ekki borist fyrir 23. mars sl. Svarbréf kæranda barst ráðuneytinu þann 22. mars sl. þar sem kærandi mótmælir fullyrðingu vinnumiðlunarinnar á Evrópska efnahagssvæðinu á Íslandi þess efnis að í máli þessu hafi ekki verið fullreynt að ráða starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu í umrætt starf. Starfið hafi verið auglýst í rúmlega þrjár vikur hjá svæðisvinnumiðlunum og EES vinnumiðlun án árangurs. Þá tekur kærandi fram að hún hafi ekki verið upplýst um það sjónarmið Vinnumálastofnunar að veita ekki atvinnuleyfi vegna hlutastarfa þar sem slík störf væru ekki talin tryggja næga framfærslu viðkomandi útlendinga enda ekki á því byggt í synjun stofnunarinnar. Tekur kærandi fram að samkvæmt fyrirliggjandi ráðningarsamningi komi umræddur útlendingur til með að fá fæði og húsnæði án endurgjalds auk þess sem útborguð laun yrðu hærri en vasapeningar þeirra útlendinga sem fengið hafa vistráðningarleyfi hér á landi. Kærandi geti því ekki fallist á það sjónarmið Vinnumálastofnunar að framfærsla umrædds útlendings sé ekki tryggð ef að ráðningu yrði.

Að mati ráðuneytisins kom ekki nægilega skýrt fram í gögnum málsins hvernig auglýsingum kæranda var háttað hjá Vinnumálastofnun við leit að starfsmanni í umrætt starf sem þegar hefði aðgengi að innlendum vinnumarkaði né þóttu upplýsingar um árangur þeirra auglýsinga nægjanlegar. Í bréfi, dags. 15. ágúst sl., óskaði ráðuneytið því eftir nánari upplýsingum frá Vinnumálastofnun um þann þátt málsins. Í svarbréfi Vinnumálastofnunar, dags. 22. ágúst sl., kemur fram að umrætt starf hafi ekki verið boðið atvinnuleitendum með milligöngu skrifstofu Vinnumálastofnunar á Akranesi. Enn fremur kemur fram að umrætt starf hafi verið auglýst á vef Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, og hafi tíu umsóknir um starfið frá ríkisborgurum ríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins verið sendar kæranda en allir hefðu umsækjendurnir haft gott aðgengi að íslenskum vinnumarkaði. Þá kemur fram að Eures,vinnumiðlunin á Evrópska efnahagssvæðinu, telji að vel gangi að ráða fólk af Evrópska efnahagssvæðinu til starfa á íslenskum heimilum. Ítrekar Vinnumálastofnun þau sjónarmið sín í málinu að ekki hafi verið fullreynt að ráða starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu í umrætt starf.

Með bréfi, dags. 30. ágúst sl., var kæranda gefinn kostur á að koma að athugasemdum við fyrrnefnt svar Vinnumálastofnunar. Enn fremur óskaði ráðuneytið eftir nánari upplýsingum um ástæður þess að ekki var ráðið í umrætt starf úr hópi þeirra tíu atvinnuleitenda sem kærandi fékk upplýsingar um með milligöngu Vinnumálastofnunar. Í svarbréfi kæranda, dags. 12. september sl., kemur fram að leitað hafi verið aðstoðar Vinnumálastofnunar með verkbeiðni, dags. 22. desember 2005, og að samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun teldist fullreynt að ráða starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu ef auglýst hefði verið samfellt í þrjár vikur eftir starfsmanni af svæðinu með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, án árangurs. Í ljósi þeirra upplýsinga hafi umsóknarfrestur vegna starfsins verið gefinn til 12. janúar 2006. Á tímabilinu hafi kærandi fengið sendar upplýsingar um einn umsækjanda sem hafi hafnað starfinu. Fleiri umsóknir um starfið hafi ekki borist innan umsóknarfrestsins. Upplýsingar um tvo umsækjendur hafi borist nærri þremur vikum eftir að umsóknarfresturinn rann út eða 29. janúar og 1. febrúar 2006. Tíu umsóknir til viðbótar hafi síðan borist rúmum fimm vikum eftir að umsóknarfresturinn rann út eða 20. febrúar 2006. Þar sem þá þegar hafi verið samið við starfsmann utan svæðisins hafi ekki verið haft samband við þessa umsækjendur enda umsóknarfrestur þá löngu liðinn og fullreynt talið að ráða starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu í starfið. Jafnframt hafi verið ætlunin að fá starfsmanninn til starfa 1. febrúar 2006. Því væri fullyrðingu Vinnumálastofnunar þess efnis að ekki hafi verið fullreynt að fá starfsmann í umrætt starf af Evrópska efnahagssvæðinu hafnað.

 

II. Niðurstaða.

Ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, eru kæranlegar til félagsmálaráðuneytisins, sbr. 24. gr. laganna.

Atvinnuleyfi vegna starfa útlendinga eru veitt í samræmi við sett lög, reglugerðir settar með heimild í þeim og stefnu íslenskra stjórnvalda hverju sinni að teknu tilliti til alþjóðlegra skuldbindinga þeirra. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga er það gert að skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að kunnáttumenn verði ekki fengnir innan lands, atvinnuvegi landsins skorti vinnuafl eða aðrar sérstakar ástæður mæli með veitingu atvinnuleyfis. Þá er tekið fram að áður en atvinnuleyfi er veitt beri atvinnurekanda að hafa leitað til svæðisvinnumiðlunar eftir vinnuafli nema slík leit verði fyrirsjáanlega árangurslaus að mati Vinnumálastofnunar.

Í athugasemdum við 7. gr. frumvarps þess er varð að gildandi lögum um atvinnuréttindi útlendinga kemur fram að ákvæðið sé efnislega samhljóða ákvæðum eldri laga. Þessi skilyrði komu inn sem nýmæli í lög nr. 26/1982, um sama efni. Í athugasemdum við 4. gr. frumvarps þess er varð að þeim lögum kemur fram að færa skuli „rök fyrir nauðsyn þess að nota erlent starfsfólk og gera grein fyrir því hvaða tilraunir hafi verið gerðar til þess að ráða innlent starfsfólk í starfið. Gert er ráð fyrir því að vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins kanni síðan sjálfstætt áður en atvinnuleyfi er veitt, hvert atvinnuástand er á viðkomandi stað og leiti til sambanda aðila vinnumarkaðarins um almenna stefnumörkun í innflutningi erlends starfsfólks með sérstöku tilliti til atvinnuástands í landinu og á ákveðnum landssvæðum.“Enn fremur var það talið lögbundið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins að „fylgjast náið með atvinnuástandi í landinu og reyna að koma í veg fyrir atvinnuleysi eftir bestu getu. Rétt þótti því að tengja veitingu atvinnuleyfa vegna erlendra starfsmanna þeim upplýsingum og því starfi sem unnið er á skrifstofunni að öðru leyti hvað varðar atvinnuástand í landinu.“

Verður ekki annað séð en að tilgangur skilyrðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. gildandi laga um atvinnuréttindi útlendinga sé í meginatriðum sá sami og áður enda ekkert annað komið fram í lögskýringargögnum. Þá var Vinnumálastofnun falið hlutverk vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins með lögum nr. 13/1997, um vinnumarkaðsaðgerðir, sbr. einnig lög nr. 55/2006, um sama efni. Með síðarnefndu lögunum voru svæðisvinnumiðlanir lagðar niður en skv. 10. gr. laganna var Vinnumálastofnun falið hlutverk þeirra. Af efni ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga má því ráða að mat Vinnumálastofnunar um hvort skilyrði þess fyrir veitingu tímabundinna atvinnuleyfa sé fullnægt skuli aðallega byggjast á aðstæðum á innlendum vinnumarkaði hverju sinni. Þar á meðal er átt við hið lögbundna hlutverk Vinnumálastofnunar að meta hvort leit atvinnurekanda að starfsmanni, sem þegar hefur aðgengi að íslenskum vinnumarkaði, sé fyrirsjáanlega árangurslaus og þar með ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis.

Í nóvember 2005 voru að meðaltali 2.247 einstaklingar á atvinnuleysisskrá hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun, sbr. yfirlit stofnunarinnar yfir atvinnuástand, nr. 11/2005, en það jafngildir 1,5% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði á þeim tíma. Á sama tíma var atvinnuleysi á Vesturlandi 0,7% af áætluðum mannafla sem svarar til 48 einstaklinga að meðaltali. Enn fremur var atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu 1,4% af áætluðum mannafla sem svarar til 1.313 einstaklinga að meðaltali fyrir sama tímabil.

Í máli þessu taldi Vinnumálastofnun meginreglu ákvæðis a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga eiga við og því nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis að umsækjandi hefði áður leitað aðstoðar svæðisvinnumiðlunar. Í ljósi þess að ekki er um sérhæft starf að ræða verður ekki annað séð en að mat Vinnumálastofnunar um að atvinnurekanda hafi borið að leita til vinnumiðlunarinnar eftir starfsfólki á innlendum vinnumarkaði hafi byggst á málefnalegum sjónarmiðum þrátt fyrir tiltölulega lítið atvinnuleysi hér á landi í nóvember 2005.

Við mat á því hvort skilyrðum a-liðar 1. mgr. 7. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga sé fullnægt ber Vinnumálastofnun jafnframt að líta til skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. 2. gr. laga nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, og b-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Með samningnum um Evrópska efnahagssvæðið hafa íslensk stjórnvöld skuldbundið sig til að skapa skilyrði fyrir fulla atvinnu, bætt lífskjör og bætt starfsskilyrði á Evrópska efnahagssvæðinu, sbr. einnig lög nr. 2/1993, um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum. Ákvæði 28.–30. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið fjalla síðan sérstaklega um frjálsa för launafólks sem nánar eru útfærð í gerðum um þetta efni og hafa verið felldar undir V. viðauka við samninginn. Samkvæmt reglugerð nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem innleidd var í íslenskan rétt með lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, skal sérhver ríkisborgari annars aðildarríkis njóta þeirra réttinda að ráða sig til vinnu á yfirráðasvæði annars aðildarríkis með sama forgangsrétti og ríkisborgarar þess ríkis. Er þar jafnframt kveðið á um náið samstarf vinnumiðlana aðildarríkjanna um miðlun lausra starfa innan svæðisins. Það telst því felast í skuldbindingum íslenskra stjórnvalda samkvæmt framangreindum samningi að þau veiti launamönnum sem eru ríkisborgarar annarra aðildarríkja innan Evrópska efnahagssvæðisins forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Stækkun Evrópska efnahagssvæðisins tók gildi 1. maí 2004 er tíu ríki gerðust aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið til viðbótar þeim sem fyrir voru, sbr. aðildarsamning EES. Þessi ríki voru Eistland, Lettland, Litháen, Kýpur, Malta, Pólland, Slóvakía, Slóvenía, Tékkland og Ungverjaland. Reglum samningsins er í meginatriðum ætlað að gilda á öllu svæðinu en gerður var fyrirvari um gildistöku ákvæða 1.–6. gr. reglugerðar nr. 1612/68/EBE, um frelsi launþega til flutninga innan Evrópska efnahagssvæðisins, með síðari breytingum. Samningarnir um inngöngu Eistlands, Lettlands, Litháens, Póllands, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklands og Ungverjalands í Evrópska efnahagssvæðið gerðu því ekki ráð fyrir að þau ákvæði giltu fyrst um sinn að því er varðar frjálsa för ríkisborgara þessara landa sem launamanna innan svæðisins. Íslensk stjórnvöld nýttu sér þennan fyrirvara með lögum nr. 19/2004, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, með síðari breytingum.

Þrátt fyrir að sækja hafi þurft um atvinnuleyfi og dvalarleyfi fyrir ríkisborgara framangreindra aðildarríkja fram til 1. maí 2006 skuldbundu stjórnvöld sig eigi síður til að veita launamönnum sem eru ríkisborgarar hinna nýju aðildarríkja forgang fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins að því er varðar aðgengi að vinnumarkaði sínum á aðlögunartímabilinu, sbr. viðauka B við aðildarsamning EES, sem lögfestur var með lögum nr. 8/2004, um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, með síðari breytingum. Sá forgangur var enn frekar undirstrikaður með lögum nr. 21/2006, um breytingu á lögum nr. 47/1993, um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og lögum nr. 97/2002, um atvinnuréttindi útlendinga, sem tóku gildi 1. maí 2006 en með þeim var ríkisborgurum framangreindra ríkja veitt heimild til frjálsrar atvinnuleitar hér á landi og til að ráða sig til starfa án sérstakra atvinnuleyfa. Þar með njóta ríkisborgarar þessara ríkja réttinda til að ráða sig til starfa hér á landi með sama forgangsrétti og íslenskir ríkisborgarar.

Stjórnvöld leggja því ríka áherslu á að í þeim tilvikum er vinnuafl skortir á innlendum vinnumarkaði þá leiti atvinnurekendur eftir starfsfólki á hinum sameiginlega vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins áður en leitað er út fyrir svæðið eftir launafólki. Á það ekki síst við í ljósi skuldbindinga stjórnvalda um miðlun lausra starfa innan svæðisins sem og langtímaáhrifa veitingu tímabundinna atvinnuleyfa á innlendan vinnumarkað, sbr. c-lið 1. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 339/2005, um atvinnuréttindi útlendinga. Það er því niðurstaða ráðuneytisins að það sé nauðsynlegt skilyrði fyrir veitingu tímabundins atvinnuleyfis að umsækjandi hafi áður leitað aðstoðar Vinnumálastofnunar við leit að starfsfólki innan Evrópska efnahagssvæðisins með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu, eftir að leit hans innan lands hefur ekki skilað árangri. Jafnframt eru gerðar ríkar kröfur til atvinnurekanda svo talið verði fullreynt að finna starfsfólk með aðstoð stofnunarinnar sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Í umsögn Vinnumálastofnunar kemur fram að vinnumiðlunin á Evrópska efnahagssvæðinu á Íslandi telur að ekki eigi að vera erfitt að ráða starfsmann af Evrópska efnahagssvæðinu í umrætt starf og að í máli þessu hafi ekki verið fullreynt að ráða starfsmann af því svæði. Eftir að kæranda barst synjun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2005, óskaði hún með verkbeiðni, dags. 22. desember 2005, eftir að stofnunin leitaði að starfsmanni í umrætt starf af Evrópska efnahagssvæðinu með milligöngu Eures,vinnumiðlunar á Evrópska efnahagssvæðinu. Umsóknarfrestur í auglýsingu kæranda var til 12. janúar 2006 og barst kæranda umsókn frá einum umsækjanda á því tímabili sem vildi ekki gegna starfinu þegar á reyndi. Samkvæmt gögnum málsins upplýsti Vinnumálastofnun 29. janúar, 1. febrúar og 20. febrúar 2006 kæranda um tíu umsækjendur um starfið sem nutu forgangs í störf á innlendum vinnumarkaði fram yfir ríkisborgara ríkja utan Evrópska efnahagssvæðisins. Kærandi kveður sig hins vegar þá þegar hafa gert samning við umræddan útlending um að gegna starfinu þar sem hún hafi talið að fullreynt væri að ráða starfsfólk innan Evrópska efnahagssvæðisins í ljósi þess að umsóknarfrestur auglýsinga þeirra er birtust með milligöngu Vinnumálastofnunar var liðinn. Enn fremur hafi ætlunin verið að ráða starfsmanninn til að gegna umræddu starfi frá 1. febrúar 2006.

Ráðuneytið leggur áherslu á að gerðar eru ríkar kröfur til atvinnurekanda hvað varðar leit að starfsfólki sem þegar hefur aðgengi eða nýtur ákveðins forgangs í laus störf á innlendum vinnumarkaði áður en aðrir eru ráðnir til starfa. Á það ekki síst við í ljósi þeirrar reynslu að nokkur hreyfanleiki er meðal ríkisborgara hinna nýju aðildarríkja að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið sem þegar hafa aðgengi að innlendum vinnumarkaði enda atvinnuleysi þar nokkuð. Fjöldi ríkisborgara þessara ríkja hefur ráðið sig til starfa hér á landi á undanförnum tveimur árum en á árinu 2005 voru 2.765 launamenn frá nýju aðildarríkjunum ráðnir til starfa hjá atvinnurekendum á innlendum vinnumarkaði og voru flestir þeirra ráðnir í ósérhæfð störf.

Það er mat ráðuneytisins að tiltekinn umsóknarfrestur í auglýsingum atvinnurekenda komi ekki í veg fyrir að atvinnuleitendur sem þegar hafa aðgengi að íslenskum vinnumarkaði njóti forgangs í laus störf hér á landi enda hafi Vinnumálastofnun ekki þegar gefið út tímabundin atvinnuleyfi vegna þeirra starfa. Átti það einnig við um atvinnuleitendur frá nýju aðildarríkjunum að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið á fyrri hluta ársins 2006 enda nutu þeir þá forgangs í störf á innlendum vinnumarkaði fram yfir ríkisborgara ríkja utan svæðisins þrátt fyrir kröfur um atvinnuleyfi. Í máli þessu verður því ekki litið svo á að sá tími er leið frá því að umsóknarfrestur rann út samkvæmt auglýsingu kæranda og til þess tíma er kærandi var upplýstur um umsækjendur um starfið af Evrópska efnahagssvæðinu hafi haft áhrif á þær kröfur sem gera verður til kæranda þess efnis að ráða í umrætt starf úr hópi umsækjenda sem þegar hafa aðgengi eða njóta ákveðins forgangs að innlendum vinnumarkaði sé þess nokkur kostur. Í því sambandi verður jafnframt til þess að líta að ráðningasamningur kæranda við umræddan útlending var háður fyrirvara um veitingu tímabundins atvinnuleyfis, sbr. 2. og 3. mgr. 6. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, en slíkt leyfi hafði ekki verið veitt þegar umræddar upplýsingar um aðra umsækjendur bárust kæranda frá Vinnumálastofnun.

Þegar litið er til reynslunnar á hreyfanleika ríkisborgara nýju aðildarríkjanna að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, skuldbindinga íslenskra stjórnvalda samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins, og gagna málsins í heild er það mat ráðuneytisins að í máli þessu hafi ekki verið nægjanlega sýnt fram á að fullreynt hafi verið að ráða starfsfólk innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem þegar hefur aðgengi að innlendum vinnumarkaði.

Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða ráðuneytisins að skilyrðum laga um atvinnuréttindi útlendinga um veitingu tímabundins atvinnuleyfis sé ekki fullnægt í máli þessu.

Uppkvaðning úrskurðar þessa hefur dregist vegna mikilla anna í ráðuneytinu.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð:

 

Synjun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2005, á veitingu atvinnuleyfis til handa A í því skyni að ráða til starfa D, sem er filippseyskur ríkisborgari, skal standa.

 

F.h.r.

 

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir (sign)

Bjarnheiður Gautadóttir (sign)




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum