Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 67/2012, úrskurður 20. nóvember 2012

Mál nr. 67/2012                    Millinafn:       Eldberg

 Hinn 20. nóvember 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 67/2012 en erindið barst nefndinni 8. nóvember:

Millinafnið Eldberg er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Eldberg uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Eldberg er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum