Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 277/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 277/2018

Miðvikudaginn 7. nóvember 2018

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 31. júlí 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins frá 22. maí 2018 um annars vegar endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta hennar vegna ársins 2017 og hins vegar innheimtu ofgreiddra bóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Niðurstaða endurreiknings og uppgjörs tekjutengdra bóta ársins 2017 var sú að kæranda hefðu verið ofgreiddar bætur það ár að fjárhæð 514.078 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kæranda var tilkynnt um framangreinda ofgreiðslu og innheimtu með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 22. maí 2018.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. júlí 2018. Með bréfi, dags. 8. ágúst 2018, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 5. september 2018, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 6. september 2018. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir kröfu um að tekið verði tillit til kostnaðar hennar vegna við útleigu á fasteign við endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta ársins 2017.

Í kæru kemur fram að kærandi og eiginmaður hennar leigi út […]íbúð sem sé um [...]. Heildarleigutekjur vegna útleigu, sem sé um X kr. á mánuði, hafi komið til skerðingar á lífeyri. Þar sé miðað við skattareglur sem ekki eigi almennt við í þjóðfélaginu. Að mati kæranda beri Tryggingastofnun við bótaútreikning að taka tillit til kostnaðar, en innifalið í leigunni sé rafmagn, hiti og aðgangur að neti. Samtals séu það því X kr. á mánuði miðað við stærðarhlutfall. Fasteignagjöld af eigninni séu um X kr. á mánuði. Séu vextir af lánum einnig teknir með séu það um X kr. á mánuði. Þetta þýði að tekjur þeirra hjóna af leigunni séu X kr. á mánuði eða alls X kr. en ekki X kr. Teljist eignarhlutur kæranda vera 50% sé hennar hlutur X kr. á ári. Þess sé krafist að skerðing verði miðuð við þá tölu.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærður sé endurreikningur tekjutengdra bóta 2017.

Í 16. gr. nr. 100/2007 laga um almannatryggingar, með síðari breytingum, sé kveðið á um tilhögun útreiknings tekjutengdra bóta. Í 2. mgr. ákvæðisins sé vísað til laga nr. 90/2003 um tekjuskatt varðandi hvað skuli teljast til tekna. Til tekna samkvæmt III. kafla laga um almannatryggingar teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki teljist til tekna og frádráttarliða samkvæmt 1., 3., 4. og 5. tölul. A-liðar 1. mgr. 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga og takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum.

Tryggingastofnun greiði lífeyri á grundvelli áætlunar um tekjur viðkomandi árs, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar. Bótaþegi beri ábyrgð á því að slík tekjuáætlun endurspegli árstekjur og beri að breyta áætluninni ef svo sé ekki, sbr. 1. mgr. 39. gr. sömu laga og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags. Þar komi fram að bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Að sama skapi sé bótaþega skylt að tilkynna Tryggingastofnun um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á greiðslur.

Í 7. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar komi fram að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum, þá skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna. Einnig sé fjallað um endurreikning í reglugerð nr. 598/2009. Tryggingastofnun hafi ekki heimild til að líta fram hjá tekjuupplýsingum sem fram komi í skattframtölum.

Komi í ljós við endurreikning bóta að bætur hafi verið ofgreiddar fari um það samkvæmt 55. gr. laganna. Þar komi fram sú skylda Tryggingastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur. Sú meginregla sé ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009.

Um skattskyldar tekjur sé fjallað í II. kafla laga um tekjuskatt. Í [2.] tölul. C-liðar 7. gr. tekjuskattslaga sé kveðið á um það að arður, landskuld og leiga eftir hvers konar fasteignir og fasteignaréttindi, þar með talin námaréttindi, vatnsréttindi, jarðvarmaréttindi, veiðiréttur og hvers konar fasteignatengd hlunnindi teljist til skattskyldra tekna.

Í VI. kafla laga um tekjuskatt, um tekjuskattsútreikning, afslætti og barnabætur segi í 3. mgr. 66. gr. að tekjuskattur af fjármagnstekjum einstaklinga utan rekstrar skuli vera 22% af þeim tekjum. Til fjármagnstekna teljist í þessu sambandi tekjur samkvæmt 1.[-8.] tölul. C-liðar 7. gr., þ.e. vextir, arður, leigutekjur, söluhagnaður og aðrar eignartekjur. Þó skuli ekki reikna tekjuskatt samkvæmt 1. málsl. af heildarvaxtatekjum að fjárhæð 125.000 kr. á ári hjá manni og 50% af tekjum manns af útleigu íbúðarhúsnæðis til búsetu leigjanda.

Á árinu 2017 hafi kærandi verið með örorkulífeyri og tengdar greiðslur allt árið. Uppgjör tekjutengdra bóta ársins hafi leitt til 514.078 kr. ofgreiðslu að teknu tilliti til greiddrar staðgreiðslu. Ástæða þess að endurkrafa hafi myndast sé sú að við samkeyrslu við tekjuupplýsingar af skattframtali 2018 vegna tekjuársins 2017 hafi komið í ljós að tekjur kæranda hafi reynst hærri en tekjuáætlun hafði gert ráð fyrir. Endurreikningur byggist á upplýsingum úr skattframtölum bótaþega.

Kærandi hafi fengið senda tillögu að tekjuáætlun þann 26. janúar 2017. Samkvæmt henni hafi verið gert ráð fyrir að á árinu 2017 væri kærandi með 1.915.152 kr. í lífeyrissjóðstekjur. Ekki hafi verið gert ráð fyrir öðrum tekjum. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda vegna þessarar tekjuáætlunar og hafi henni verið greitt eftir henni frá 1. janúar 2017 til 31. október 2017.

Við reglubundið eftirlit Tryggingastofnunar í október 2017 hafi komið í ljós misræmi á milli tekjuáætlunar kæranda og upplýsinga úr staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra. Tryggingastofnun hafi því leiðrétt tekjuáætlun hennar í samræmi við þessar nýju upplýsingar. Í nýrri tekjuáætlun hafi verið gert ráð fyrir því að kærandi væri með 4.022.463 kr. í lífeyrissjóðstekjur. Ekki hafi verið gert ráð fyrir öðrum tekjum. Kæranda hafi verið tilkynnt um þessar breytingar með bréfi, dags. 13. október 2017. Engar athugasemdir hafi borist frá kæranda vegna þessarar tekjuáætlunar og hafi verið greitt eftir henni frá 1. nóvember 2017 til 31. desember 2017.

Við bótauppgjör ársins 2017 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með 4.022.463 kr. í lífeyrissjóðstekjur og sameiginlegar tekjur þeirra hjóna hafi verið 5.447 kr. í vexti og verðbætur og X kr. í leigutekjur. 

Tryggingastofnun sé skylt lögum samkvæmt að framkvæma endurreikning ár hvert þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að horfa fram hjá tekjum sem birtist á framtali bótaþega eins og ítrekað hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og hafi einnig verið staðfest fyrir dómstólum.

Niðurstaða endurreiknings tekjutengdra bóta ársins 2017 hafi verið sú að kærandi hafði fengið greitt á árinu 1.452.996 kr. en hefði átt að fá greitt 637.776 kr. Þessi mismunur hafi leitt til ofgreiðslu að fjárhæð 514.078 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu.

Ágreiningur þessarar kæru varði eingöngu  meðhöndlun Tryggingastofnunar á leigutekjum kæranda. Kærandi telji að taka eigi tillit til kostnaðar sem kærandi og maki hennar hafi af íbúðinni sem leigð sé út.

Samkvæmt 7. gr. laga um tekjuskatt sé meginregla II. kafla laganna sú að skattskyldar tekjur teljist vera hvers konar gæði, arður, laun og hagnaður sem skattaðila hlotnast og metin verði til peningaverðs og skipti ekki máli hvaðan þær stafi eða í hvaða formi þær séu. Síðan sé talið upp í A, B og C-liðum margvíslegar tekjur sem séu skattskyldar. Í 2. tölul. C-liðar 7. gr. sé kveðið á um að leigutekjur teljist til tekna.

Í 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar séu tilgreind sérstaklega þau ákvæði laga um tekjuskatt sem taka skuli tillit til varðandi hvað ekki teljist til tekna og koma skuli til frádráttar tekjum. Líta verði svo á að þar sé um tæmandi talningu að ræða, enda sé ekki vísað til ákvæða laga um tekjuskatt til frádráttar frá tekjum í heild sinni.

Í kæru komi fram að kærandi telji að draga eigi frá kostnað sem kærandi og maki hennar hafi af rekstri íbúðarinnar sem þau hjónin leigja út. Ekkert lagaákvæði sé í lögum um almannatryggingar sem heimili Tryggingastofnun að horfa til slíks kostnaðar.

Í gildi sé sérstök undantekningarregla um að fjármagnstekjuskattur sé reiknaður af 50% tekna manna af útleigu íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Þá reglu sé að finna í VI. kafla laganna, nánar tiltekið í 3. mgr. 66. gr. Tryggingastofnun sé ekki heimilt að taka tillit til þeirrar reglu þar sem hana sé ekki að finna í þeim ákvæðum tekjuskattslaga sem talin séu upp í 2. mgr. 16. gr. almannatryggingalaga. Þessi framkvæmd Tryggingastofnunar hafi verið staðfest af úrskurðarnefnd og sé þá meðal annars vísað til úrskurða í málum nr. 282 og 283 frá árinu 2017.

Með vísun til framanritaðs telji Tryggingastofnun ekki forsendur til að breyta fyrri ákvörðun sinni.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum kæranda vegna ársins 2017 og innheimtu ofgreiddra bóta.

Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun á árinu 2017. Samkvæmt 39. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er umsækjanda eða greiðsluþega skylt að veita stofnuninni allar nauðsynlegar upplýsingar til að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Enn fremur er skylt að tilkynna stofnuninni um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geta haft áhrif á bætur eða greiðslur. Af framangreindu verður ráðið að sú skylda hvíli á greiðsluþegum að upplýsa Tryggingastofnun um tekjur á bótagreiðsluári sem kunna að hafa áhrif á bótarétt.

Í 16. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Á grundvelli 7. mgr. þeirrar lagagreinar ber Tryggingastofnun ríkisins að endurreikna bótafjárhæðir eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggja fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum.

Leiði endurreikningur í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar ber Tryggingastofnun að innheimta þær samkvæmt 55. gr. laga um almannatryggingar. Sú meginregla er ítrekuð í 9. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags.

Við úrlausn þessa máls hefur úrskurðarnefnd velferðarmála hliðsjón af þeim lagaákvæðum sem tilgreind hafa verið hér að framan.

Í tillögu Tryggingastofnunar að tekjuáætlun, dags. 26. janúar 2017, var gert ráð fyrir greiðslum frá lífeyrissjóði að fjárhæð 1.915.152 kr. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun. Bótaréttindi ársins voru því reiknuð og greidd út miðað við þær forsendur. Í kjölfar samtímaeftirlits Tryggingastofnunar við staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra kom í ljós að lífeyrissjóðstekjur kæranda reyndust vera hærri en gert hafi verið ráð fyrir í tekjuáætlun ársins og var í kjölfarið útbúin ný áætlun, dags. 13. október 2017, þar sem gert var ráð fyrir greiðslum frá lífeyrissjóði að fjárhæð 4.022.463 kr. Kærandi gerði ekki athugasemdir við þá áætlun. Samkvæmt upplýsingum skattyfirvalda vegna tekjuársins 2017 reyndust lífeyrissjóðstekjur kæranda vera ívið hærri eða 4.080.716 kr. og þá reyndist kærandi hafa verið með fjármagnstekjur á árinu að fjárhæð X kr.

Lífeyrissjóðstekjur er tekjustofn sem hefur áhrif við útreikning Tryggingastofnunar á bótafjárhæð, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar og einnig 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga um tekjuskatt. Þá er í a-lið sömu málsgreinar laga um almannatryggingar fjallað nánar um tengingu fjármagnstekna við bætur almannatrygginga:

„Tekjur umfram 90.000 kr. á ári skv. C-lið 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skulu teljast til tekna við útreikning á örorkulífeyri, örorkustyrk, aldurstengdri örorkuuppbót og tekjutryggingu skv. 18.–19. gr. og 21.–22. gr. þessara laga. Ef um hjón er að ræða skiptast tekjur skv. 1. málsl. til helminga milli hjóna við útreikning bótanna. Skiptir ekki máli hvort hjónanna er eigandi þeirra eigna sem mynda tekjurnar eða hvort um séreign eða hjúskapareign er að ræða.“

Með hliðsjón af framangreindu ákvæði er ljóst að helmingur samanlagðra fjármagnstekna kæranda og maka hennar, að teknu tilliti til frítekjumarks, skerðir bótaréttindi kæranda. Frítekjumark fjármagnstekna var 98.640 kr. árið 2017 og fékk kærandi ofgreidda tekjutryggingu, auk orlofs- og desemberuppbóta það ár.

Í máli þessu snýst ágreiningur nánar tiltekið um tekjuviðmið Tryggingastofnunar ríkisins við endurreikning á tekjutengdum bótum kæranda. Kærandi gerir athugasemdir við að stofnunin hafi notað heildarleigutekjur til skerðingar á lífeyri en hafi ekki tekið tillit til kostnaðar kæranda og eiginmanns hennar. Ætla má að kærandi sé að vísa til þeirrar reglu sem kemur fram í 3. mgr. 66. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Í nefndu ákvæði segir að tekjuskattur af fjármagnstekjum einstaklinga utan rekstrar skuli vera 20% af þeim tekjum. Til fjármagnstekna teljist í þessu sambandi tekjur samkvæmt 1.-8. tölul. C-liðar 7. gr., þ.e. vextir, arður, leigutekjur, söluhagnaður og aðrar eignatekjur. Þó skuli ekki reikna tekjuskatt samkvæmt 1. málsl. af heildarvaxtatekjum að fjárhæð 125.000 kr. á ári hjá manni og 50% af tekjum manns af útleigu íbúðarhúsnæðis til búsetu leigjanda.

Í 2. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar segir að til tekna samkvæmt III. kafla laganna teljist tekjur samkvæmt II. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt að teknu tilliti til ákvæða 28. gr. sömu laga um hvað ekki telst til tekna og tiltekinna frádráttarliða í 30. gr. og 31. gr. sömu laga eða undantekninga eða takmarkana samkvæmt öðrum sérlögum. Í þessu ákvæði er því tilgreint við hvaða tekjur Tryggingastofnun ríkisins skuli miða útreikning og endurreikning bóta og jafnframt eru tilgreindar þær undantekningar sem stofnuninni ber að hafa hliðsjón af við þá framkvæmd. Þar er sú regla, sem kemur fram í áðurnefndum 3. málsl. 3. mgr. 66. gr. laga um tekjuskatt, ekki tilgreind. Úrskurðarnefnd telur því að þrátt fyrir að umrædd regla gildi við meðhöndlun skattyfirvalda á tilteknum fjármagnstekjum kæranda gildi hún ekki þegar kemur að endurreikningi Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum hennar.  

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2017 og þá ákvörðun að krefja kæranda um endurgreiðslu þeirrar ofgreiðslu.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum bótum A, á árinu 2017 og innheimtu ofgreiddra bóta, eru staðfestar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum