Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Nr. 110/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 110/2019

Fimmtudaginn 11. júlí 2019

A

gegn

Reykjanesbæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með tölvupósti 4. mars 2019 var erindi A, frá 28. febrúar 2019, framsent frá félagsmálaráðuneytinu til úrskurðarnefndar velferðarmála.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Í erindi kæranda kemur meðal annars fram að hann eigi inni pening hjá velferðarsviði Reykjanesbæjar vegna greiðslu húsaleigubóta á árunum 2016 og 2017. Einnig hafi kærandi leitað til sveitarfélagsins í september 2018, fengið tvær greiðslur frá þeim en ekkert fengið síðan 31. október það ár. Kærandi hafi skilað öllum umbeðnum gögnum en fái ekki svör við því hvenær hann fái greiddar bætur. Þá sjái hann fram á að verða heimilislaus og vilji fá bætur fyrir heimilismissi.

Með tölvupósti starfsmanns úrskurðarnefndar velferðarmála 4. mars 2019 til kæranda var óskað eftir að hann legði fram undirritaða kæru og afrit af hinni kærðu ákvörðun. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 15. mars 2019, var kæranda sent kærueyðublað til undirritunar og óskað á ný eftir afriti af hinni kærðu ákvörðun. Sú beiðni var ítrekuð með bréfi 11. apríl 2019 og með símtali við kæranda 6. maí 2019. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. maí 2019, var beiðni úrskurðarnefndarinnar ítrekuð á ný og kæranda greint frá því að bærust umbeðin gögn ekki innan 14 daga frá dagsetningu bréfsins mætti hann búast við því að kærunni yrði vísað frá úrskurðarnefndinni. Umbeðin gögn bárust ekki.

II.  Niðurstaða

Samkvæmt 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal nefndin úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar. Þannig er grundvöllur þess að unnt sé að leggja fram kæru til úrskurðarnefndar að fyrir liggi stjórnvaldsákvörðun. Um stjórnvaldsákvörðun er að ræða þegar stjórnvöld taka ákvarðanir um rétt eða skyldur manna í skjóli stjórnsýsluvalds, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í 5. gr. laga nr. 85/2015 er kveðið á um kærufrest en þar segir að stjórnsýslukæra skuli berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á.

Þar sem kærandi hefur hvorki lagt fram undirritaða kæru né brugðist við beiðni úrskurðarnefndarinnar um að leggja fram afrit af hinni kærðu ákvörðun getur nefndin ekki lagt mat á hvort framangreind kæruskilyrði séu uppfyllt. Að því virtu verður ekki hjá því komist að vísa málinu frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Erindi A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum