Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 23/2016 Úrskurður 6. maí 2016

Mál nr. 23/2016                     Aðlögun kenninafns: Símonarson

 


Hinn 6. maí 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 23/2016 en erindið barst nefndinni 1. apríl:

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 30. apríl 2016, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx og yyy um að sonur þeirra taki upp kenningu til föður síns, Szymonar. Óska þau að eiginnafn föðurins verði lagað að íslensku máli, Símonarson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Símonarson.

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum