Hoppa yfir valmynd
Endurupptökunefnd

Mál nr. 18/2013

  

Hinn 11. nóvember 2013 var á fundi endurupptökunefndar tekið fyrir mál nr. 18/2013:

Beiðni um endurupptöku

héraðsdómsmáls nr. S-251/2013;

Ákæruvaldið

gegn

Konstantin Stakanov

og kveðinn upp svohljóðandi

ÚRSKURÐUR:

I. Beiðni um endurupptöku

Með erindi dagsettu 22. október 2013 lagði ríkissaksóknari fram beiðni til endurupptökunefndar um að heimiluð yrði endurupptaka máls nr. S-251/2013 sem dæmt var í Héraðsdómi Suðurlands 28. júní 2013.

Með vísan til 34. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998, sbr. 2. gr. laga nr. 15/2013, fjallar endurupptökunefnd um endurupptökubeiðni þessa. Nefndina skipa Ragna Árnadóttir, Björn L. Bergsson og Þórdís Ingadóttir.

II. Málsatvik

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-291/2013, sem kveðinn var upp 17. maí 2013, var Konstantin Stakanov dæmdur til að sæta fangelsi í níu mánuði. Um ákvörðun refsingar segir í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur:

Ákærði var dæmdur í 5 mánaða skilorðsbundið fangelsi 2012 fyrir auðgunarbrot, brot gegn umferðarlögum og brot gegn fíkniefnalögum. Hann var dæmdur í 7 mánaða fangelsi 1. febrúar 2013 fyrir þjófnað og umferðarlagabrot. Fyrri dómur var dæmdur með og voru 6 mánuðir af refsingunni skilorðsbundnir í 3 ár. Refsing ákærða nú verður ákveðin með hliðsjón af 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga og þá verður skilorðshluti síðari dómsins tekinn upp og dæmdur með þessu máli, sbr. 60. gr. sömu laga, enda hefur ákærði rofið skilorðið. Samkvæmt þessu verður refsing ákærða 9 mánaða fangelsi sem ekki eru skilyrði til að skilorðsbinda.

Með dómi Héraðsdóms Suðurlands, sem kveðinn var upp 28. júní 2013, var Konstantin Stakanov dæmdur til að sæta fangelsi í átta mánuði, en fullnustu fimm mánaða refsingarinnar var frestað og skyldi sá hluti hennar falla niður að þremur árum héldi hann almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um ákvörðun refsingar segir í dómi Héraðsdóms Suðurlands:  

Samkvæmt framlögðu sakarvottorði hefur ákærði tvívegis áður sætt refsingu. Þann 24. október 2012 var ákærða gert að sæta fangelsi í fimm mánuði, skilorðsbundið til tveggja ára, meðal annars fyrir þjófnað. Þá var ákærði þann 1. febrúar sl. dæmdur til að sæta fangelsi í 7 mánuði, meðal annars fyrir tilraun til þjófnaðar en hluti refsingarinnar var skilorðsbundinn til þriggja ára. Með broti því sem lýst er í ákæru hefur ákærði rofið skilorð síðastgreinds dóms og ber að dæma upp framangreinda refsingu og ákveða refsingu í einu lagi sbr. 60. gr. og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing ákærða er hæfilega ákveðin fangelsi í átta mánuði. Að virtum atvikum máls og að teknu tilliti til sakaferils ákærða, þykir rétt að fresta fullnustu fimm mánaða af refsingunni og skal sá hluti hennar falla niður að liðnum þremur árum haldi ákærði almennt skilorð      57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

III. Grundvöllur beiðni

Í fyrrgreindu erindi frá 22. október 2013 kveðst ríkissaksóknari hafa orðið þess áskynja að dómfellda í máli S-251/2013 hafi að öllum líkindum verið gerð mun þyngri refsing en efni stóðu til þar sem skilorðsdómur, sem hann hafi hlotið 1. febrúar 2013, hafi verið dæmdur upp í tvígang, það er í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli S-291/2013, sem kveðinn var upp 17. maí 2013, og dómi Héraðsdóms Suðurlands í máli S-251/2013, sem kveðinn var upp 28. júní 2013. Ástæðu þess megi rekja til þess að sakavottorð sem lagt var fram í máli nr. S-251/2013 hafi verið útgefið 2. maí 2013, áður en dómur Héraðsdóms Reykjavíkur var kveðinn upp. Með vísan til 4. mgr., sbr. a-lið 1. mgr. 211. gr., um meðferð sakamála setji ríkissaksóknari fram þá beiðni að heimiluð verði endurupptaka máls nr. S-251/2013. Beiðni ríkissaksóknara fylgdi sakavottorð útgefið 22. október 2013.

IV. Niðurstaða

Af hálfu endurupptökunefndar er mál þetta tekið til úrlausnar á grundvelli XXXII. kafla laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 með síðari breytingum. Í 4. mgr. 211. gr. laganna segir að ríkissaksóknari geti beiðst endurupptöku máls, til meðferðar og dómsuppsögu að nýju, til hagsbóta fyrir dómfellda ef hann telur atvik vera með þeim hætti sem greinir í 1. mgr. 211. gr.

Í 1. mgr. 211. gr. laganna er kveðið á um að hafi héraðsdómur gengið í sakamáli sem ekki hafi verið áfrýjað og áfrýjunarfrestur liðinn þá geti endurupptökunefnd samkvæmt lögum um dómstóla orðið við beiðni manns, sem telur sig ranglega sakfelldan eða sakfelldan fyrir mun meira brot en það sem hann hefur framið, um að málið verði endurupptekið í héraði ef einhverju skilyrða greinarinnar í stafliðum a-d er fullnægt. Er þar á meðal skilyrði það sem  ríkissaksóknari vísar til í a-lið 1. mgr. 211. gr. þess efnis að fram séu komin ný gögn sem ætla megi að hefðu verulega miklu skipt fyrir niðurstöðu málsins ef þau hefðu komið fram áður en dómur gekk. Auk þess lýtur skilyrði d-liðar 1. mgr. 211. gr. að því að verulegir gallar hafi verið á meðferð máls þannig að áhrif hafi haft á niðurstöðu þess.

Fyrir liggur að dómfellda var tvívegis dæmdur hegningarauki með vísan til refsingar sem honum var gert að sæta með dómi 1. febrúar 2013. Fyrst með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. S-291/2013, sem kveðinn var upp 17. maí 2013, og síðan í máli nr. S-251/2013 sem dæmt var í Héraðsdómi Suðurlands 28. júní 2013.

Ákæranda ber samkvæmt 1. mgr. 227. gr. laga um meðferð sakamála að leggja sakavottorð ákærða fram í sakamáli við þingfestingu máls nema hann telji óþarft að líta til sakaferils hans við úrlausn málsins. Við þingfestingu málsins fyrir Héraðsdómi Suðurlands 6. júní 2013 lá fyrir sakavottorð útgefið 2. maí 2013. Er því ljóst að ekki var tekið tillit til dóms Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp 17. maí 2013. Verður því að telja að á málsmeðferðinni hafi verið verulegur galli í skilningi d-liðar 1. mgr. 211. gr. sem er líklegt að hafi haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Með vísan til framangreinds er skilyrði til að verða við beiðni ríkissaksóknara um endurupptöku á máli nr. S-291/2013, sem dæmt var í Héraðsdómi Suðurlands þann 28. júní 2013, sbr. d-lið 1. mgr. 211. gr. laga um meðferð sakamála og er hún því samþykkt.

 

ÚRSKURÐARORÐ

Beiðni ríkissaksóknara um endurupptöku máls nr. S-251/2013 sem dæmt var í Héraðsdómi Suðurlands 28. júní 2013 er samþykkt.

 

Ragna Árnadóttir formaður

Björn L. Bergsson

Þórdís Ingadóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum