Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A6%C3%B0ingar-%20og%20foreldraorlof

Mál nr. 15/2013

Fimmtudaginn 14. nóvember 2013

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 11. mars 2013 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 5. mars 2013. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 27. febrúar 2013, þar sem hún var krafin um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði.

Með bréfi, dags. 12. mars 2013, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 18. mars 2013.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 20. mars 2013, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Athugasemdir kæranda bárust með bréfi, dags. 11. júní 2013.

 

I. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að hún hafi fengið sex mánuði í fæðingarorlof þar sem hún hafi þurft að mæta til vinnu að því loknu. Sonur hennar hafi ekki verið tilbúinn til að fara í dagvistun og því hafi kærandi óskað eftir því við vinnuveitanda sinn að fá að starfa hluta dags og nýta afgang af fæðingarorlofi sínu hluta dags. Vinnuveitandi kæranda hafi ekki verið tilbúinn til að ráða annan starfsmann í 50% starf á móti kæranda svo henni hafi verið sagt upp. Kærandi hafi í kjölfarið fengið greitt allt orlofið sem hún hafi átt inni auk launa.

Kærandi hafi átt rétt á að fá greitt ótekið orlof frá vinnuveitanda þegar vinnuveitandi hafi greitt henni. Nú sé kærandi atvinnulaus og rétt nái endum saman. Kærandi eigi rétt á umræddum fæðingarorlofsgreiðslum og ítrekar að hún hafi ekki verið að fá greitt fyrir vinnu heldur ótekið orlof vegna starfsloka.

Allar greiðslur sem hún hafi fengið séu greiðslur sem hún hafi átt rétt á. Kærandi hafi eignast sitt fyrsta barn 33 ára og hafi unnið fyrir þessum réttindum.

Nánar tiltekið rekur kærandi að hún hafi hafið störf hjá V hf. í apríl 2010 og sinnt þar 100% starfi þar til hún hafi farið í lögbundið fæðingarorlof í kjölfar fæðingar barns hennar þann Y. apríl 2012. Réttilega hafi verið staðið að umsókn kæranda um fæðingarorlof og hafi hún fengið greitt frá Fæðingarorlofssjóði frá fæðingardegi og í sex mánuði til og með 17. október 2012.

Kærandi hafi þannig verið í 43% fæðingarorlofi í apríl 2012, 100% fæðingarorlofi í maí, júní, júlí, ágúst og september 2012 og 57% fæðingarorlofi í október 2012.

Kærandi hafi óskað eftir því að koma til baka í minna starfshlutfall en hún hafi sinnt fyrir töku fæðingarorlofs. Vinnuveitandi kæranda hafi ekki orðið við því og ákveðið að segja kæranda upp störfum með kjarasamningsbundnum uppsagnarfresti. Kærandi hafi þannig átt rétt á launum í uppsagnarfresti í nóvember 2012, desember 2012 og janúar 2013 auk þess sem hún hafi átt rétt á uppgjöri á áunnum réttindum.

Greiðsla frá vinnuveitanda hafi verið fyrir 48% starfshlutfall í október 2012, X kr., og áunnið uppsafnað orlof, X kr. Hlutfall launa sem kærandi hafi fengið greidd séu í réttu hlutfalli miðað við útreikning Fæðingarorlofssjóðs. Kærandi hafi þannig ekki fengið neinar greiðslur frá vinnuveitanda á sama tíma og hún var í fæðingarorlofi. Uppsafnað orlof sé með öllu ótengt launum eða réttindum á þeim tíma sem kærandi hafi þegið greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði á tímabilinu Y. apríl til Y. október 2012. Rétt sé að ítreka að orlof greiðist út við starfslok og hefði því átt að greiðast út við lok uppsagnarfrests.

 

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. febrúar 2013, vakið athygli kæranda á því að stofnunin hafi verið með til meðferðar mál hennar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hefði kærandi verið að fá laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðlum fyrir október 2013 ásamt útskýringum frá vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Bréf hafi borist frá kæranda, dags. 25. febrúar 2013, og vottorð frá vinnuveitanda, dags. 24. janúar 2013, ásamt umbeðnum launaseðli. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 27. febrúar 2013, þar sem hún hafi verið krafin um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar í október 2012. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. apríl 2012 og innsendum skýringum og launaseðli að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði fyrir október 2012 skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008, 3. og 14. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 10. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris.

Í 15. gr. a ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, sé fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. komi fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni hafi foreldri fært rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Ekki hafi komið fram nein rök sem gefi tilefni til að fella niður 15% álag á kæranda.

Í bréfi kæranda, dags. 25. febrúar 2013, komi meðal annars fram að í enda október hafi kærandi fengið greitt það sem hún hafi átt að fá í október af uppsagnarfresti þess mánaðar og þar að auki hafi vinnuveitandi greitt henni orlofið strax sem hún hafi átt inni. Á launaseðli fyrir október 2012 komi fram að kærandi hafi fengið greidd 48% af mánaðarlaunum októbermánaðar eða X kr. og orlofsuppgjör X kr., alls hafi kærandi því fengið greiddar X kr. í október 2012 frá vinnuveitanda sínum.

Í bréfi frá U ehf., dags. 27. júní 2012, komi fram að kærandi hafi hætt störfum hjá fyrirtækinu þann 10. febrúar 2012. Hún hafi þá átt inni orlof sem hafi verið greitt út við starfslok. Eftir 10. febrúar 2012 hafi kærandi því ekki verið á launaskrá hjá fyrirtækinu.

Með ódagsettri umsókn kæranda hafi hún sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna barns hennar sem fæddist Y. apríl 2012. Ein tilkynning hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs og hún afgreidd í fæðingarorlof í samræmi við hana, sbr. greiðsluáætlun til hennar, dags. 20. apríl 2012.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hennar verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau verið komin í X kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda henni til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. ffl.

Í október 2012 hafi kærandi þegið X kr. í laun frá vinnuveitanda sínum. Hún hafi því fengið sem svari 146% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hefði því ekki mátt þiggja neina greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir október 2012 sé því X kr. útborgað.

Greiðslur sem kærandi hafi þegið frá vinnuveitanda sínum í október 2012 séu orlofslaun að fjárhæð X kr. vegna starfsloka skv. 8. gr. laga um orlof, nr. 30/1987, og að auki 48% laun í uppsagnarfresti að fjárhæð X kr., alls X kr.

Samkvæmt 1. gr. orlofslaga eigi allir þeir sem starfi í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau séu greidd í peningum eða öðrum verðmætum, rétt á orlofi og orlofslaunum. Í 7. gr. orlofslaga sé fjallað um rétt launþega til orlofslauna, hvernig þau séu reiknuð út og hvenær orlofslaun skuli greiða. Í athugasemdum með 7. gr. orlofslaga segi: „Í 7. gr. frumvarpsins felst að allur réttur til launa í orlofi verður í formi orlofslauna sem greiðast af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, nema til ráðningarslita komi, sbr. 8. gr.“

Komi til ráðningarslita, sbr. 8. gr. orlofslaga, skuli vinnuveitandi við lok ráðningartímans greiða launþeganum öll áunnin orlofslaun hans samkvæmt reglunni í 2. mgr. 7. gr.

Samkvæmt framangreindu sé meginreglan sú að orlofslaun samkvæmt orlofslögum séu greidd í tvenns konar tilvikum, annars vegar við upphaf orlofstöku og hins vegar við starfslok. Í þeim tilvikum sem starfsmenn fá orlofsgreiðslur frá vinnuveitendum á sama tíma og þeir séu í fæðingarorlofi hafi úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála staðfest að vegna ákvæða 7. gr. orlofslaga verði að líta svo á að starfsmennirnir séu í orlofi en ekki fæðingarorlofi, enda mæli ákvæðið fyrir um að orlofslaun greiðist af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, sbr. meðal annars úrskurði í málum nr. 20/2011 og 23/2011. Öðru máli gegni hins vegar um orlofsgreiðslur sem starfsmenn fái vegna starfsloka enda sé í orlofslögum ekki gert ráð fyrir því að orlof sé greitt við upphaf orlofstöku þegar um ráðningarslit er að ræða.

Með breytingalögum nr. 136/2011 hafi komið inn svohljóðandi ákvæði í 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011: „Foreldri sem nýtur orlofslauna eða greiðslna vegna starfsloka getur ekki nýtt sér rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum þessum á sama tímabili og þær greiðslur eiga við um.“ Lög nr. 136/2011 hafi verið samþykkt á Alþingi 17. september 2011 og útgáfudagur þeirra í Stjórnartíðindum verið 30. sama mánaðar. Samkvæmt 16. gr. laganna taki ákvæði þeirra til foreldra barna sem fæðist, séu ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur eftir gildistöku þeirra. Barn kæranda fæddist eins og áður segir þann Y. apríl 2012 og því eigi ákvæðið við um tilvik kæranda.

Í athugasemdum með lagaákvæðinu sé ekki að finna frekari skýringar en komi fram í lagaákvæðinu sjálfu. Í samræmi við það sé ekki annað fært en að skýra það í samræmi við almenn lögskýringarsjónarmið samkvæmt orðanna hljóðan og að skýra beri yngri lög þannig að þau gangi fyrir eldri lögum ef þau rekist á.

Í ákvæðinu sé þannig ekki gerður greinarmunur á því hvort greiðslur vegna starfsloka séu greiðslur vegna launa í uppsagnarfresti, greiðslur vegna starfslokasamninga eða greiðslur orlofslauna skv. 8. gr. orlofslaga. Ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011, séu yngri lög gagnvart 8. gr. orlofslaga og gangi því framar ef þau rekist á.

Samkvæmt 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011, verði ekki séð að greiðslur vegna starfsloka, hvort heldur um sé að ræða laun í uppsagnarfresti, greiðslur vegna starfslokasamninga eða greiðslur orlofslauna skv. 8. gr. orlofslaga, fari saman með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um. Skýrt sé skv. 8. gr. orlofslaga að komi til ráðningarslita skuli vinnuveitandi við lok ráðningartímans greiða launþeganum öll áunnin orlofslaun hans samkvæmt reglunni í 2. mgr. 7. gr. og því ekki annað hægt en líta svo á að þær greiðslur eigi þá við um tímabil í beinu framhaldi ráðningarslita.

Í því ljósi megi benda á að við mat á þátttöku á innlendum vinnumarkaði skv. a-lið 2. mgr. 13. gr. a ffl. hafi verið staðfest að uppsafnað orlof sem greitt sé út við starfslok hafi talist til tíma við matið. Einnig megi til dæmis benda á í þessu samhengi að einstaklingur sem sækir um greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði teljist ekki tryggður samkvæmt lögunum hafi hann fengið greitt út ótekið orlof við starfslok eða fái greiðslur vegna starfsloka á því tímabili sem þær greiðslur eigi við um. Við umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hinn tryggði taka fram hvenær hann ætli að taka út orlof sitt fyrir lok næsta orlofstímabils, sbr. 4. mgr. 51. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Vinnuveitandi kæranda hafi staðfest að hún hafi látið af störfum þann 10. febrúar 2012. Hann hafi þá átt inni orlof sem greitt hafi verið út við starfslok.  

Í samhengi við framangreint þyki einnig rétt að vekja athygli á að foreldri geti ákveðið að taka fæðingarorlof sitt á öðrum tíma en greiðslur berist vegna starfsloka, sbr. 10. gr. ffl. Fái foreldri til dæmis greiðslur vegna starfsloka á sama tíma og greitt sé úr Fæðingarorlofssjóði og hefji síðan störf hjá sama vinnuveitanda eða nýjum vinnuveitanda strax að fæðingarorlofi loknu, sé ljóst að það leiðir til þess að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hafi í raun komið til viðbótar við greiðslur frá vinnuveitanda að hluta eða öllu leyti. Með þeim hætti væri tilgangi greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, sem sé aðallega að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki og að allar greiðslur sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum, ekki náð.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað að viðbættu 15% álagi X kr. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði X kr., sbr. greiðsluáskorun til hennar, dags. 27. febrúar 2013.


III. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. apríl 2012 ásamt 15% álagi. 

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum í október 2012 á sama tíma og hún þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði. Séu þessar greiðslur frá vinnuveitanda svo háar og þess eðlis að þær leiði til lækkunar á rétti til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 2. mgr. 10. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir meðal annars að með samkomulagi við vinnuveitanda sé starfsmanni heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr.

Vegna óska kæranda um að niðurstaða málsins verði byggð á heildstæðu mati á aðstæðum hennar er nauðsynlegt að taka fram að úrskurðarnefndin hefur ekki heimild til að ganga fram hjá lögum og reglum sem um málaflokkinn gilda af tilliti til hagsmuna kæranda eða með hliðsjón af stöðu hennar almennt.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. apríl 2012. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá október 2010 til september 2011. Í greiðsluáætlun, dags. 20. apríl 2012, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því X kr. Af útreikningi sem fylgdi greiðsluáskorun frá 27. febrúar 2013 má hins vegar sjá að frá því að viðmiðunartímabili meðaltals heildarlauna kæranda lauk og fram til fæðingar barnsins hækkuðu laun kæranda í X kr. sem miðað hafi verið við við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs í samræmi við heimild í 10. mgr. 13. gr. ffl. Er það kæranda til hagsbóta.

Þar sem kærandi þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði í októbermánuði 2012 var henni einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni meðaltals heildarlauna hennar eins og þau voru hækkuð skv. 10. mgr. 13. gr. ffl. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði án þess að greiðslur vinnuveitanda til hennar kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Líkt og áður segir er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð X kr. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að fjárhæð X kr. í október 2012 og var henni því heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í október 2012 án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Er þessi túlkun í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greidd laun auk ótekins orlofs vegna starfsloka frá vinnuveitanda sínum í október 2012 að fjárhæð X kr.

Það er kjarni þessa máls hvernig eigi að túlka ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl. um orlofslaun og greiðslur vegna starfsloka um „sama tímabil [..] og þær greiðslur eiga við um“, sérstaklega með hliðsjón af orðalagi 10. mgr. 13. gr. um „greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi“.

Ekki er unnt að fallast á að í þessum ákvæðum sé verið að vísa til þess tímabils þegar unnið er til orlofslauna. Launþegar vinna almennt til orlofslauna allt árið, en þær greiðslur sem þeir ávinna sér eru ætlaðar til orlofstöku yfir sumarmánuði, eða eftir atvikum til dæmis við starfslok. Það virðist þannig hafið yfir vafa að umrædd orlofsgreiðsla var „ætluð fyrir tímabil“ og „átti við um“ það tímabil þegar kærandi var í fæðingarorlofi.

Það er því ljóst að kærandi þáði hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en henni var heimilt fyrir októbermánuð 2012. Verður niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu fyrir þann mánuð því staðfest.

Af gögnum málsins má sjá að Fæðingarorlofssjóður byggir hina kærðu ákvörðun á hlutfallsútreikningi. Það er álit úrskurðarnefndar, með vísan til álits umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013, að sú aðferð sé ekki í samræmi við ákvæði ffl. Hins vegar er ljóst að þrátt fyrir að réttri reiknireglu verði beitt hefur það ekki áhrif á heildarendurkröfu á hendur kæranda.

Í 2. mgr. 15. gr. a, sbr. 6. gr. laga nr. 90/2004 og 5. gr. laga nr. 155/2006, segir að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Þá segir jafnframt að fella skuli niður álagið færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Með umsókn kæranda um fæðingarorlof veitti hún ýmsar upplýsingar vegna fyrirhugaðs orlofs. Í umsókninni er feitletraður og undirstrikaður texti með yfirlýsingu umsækjanda um að hún heimili Vinnumálastofnun að afla gagna úr skattskrám og að hún sé upplýst um að þessi gögn verði notuð til eftirlits. Þá segir orðrétt: „Með undirskrift minni staðfesti ég einnig að láta Fæðingarorlofssjóð vita um allar breytingar sem kunna að hafa áhrif á afgreiðslu umsóknar þessarar og/eða greiðslur samkvæmt henni.“ Í umsókninni gaf kærandi engar upplýsingar um tekjur og ekki er þar tekið fram að breytingar á þeim séu á meðal þess sem tilkynna beri um. Í framhaldi af þessari umsókn var kæranda send greiðsluáætlun þar sem sérstaklega var tiltekið að greiðslur sjóðsins miðist við „hlutfall af meðaltekjum þínum samkvæmt skrám skattyfirvalda á 12 mánaða samfelldu tímabili sem lýkur 6 mánuðum fyrir fæðingarmánuð barns“ og var því beint til kæranda að yfirfara upplýsingar um tekjur á þessu tímabili sem fylgdu áætluninni. Í smáu letri sem fylgdi kom fram að yrðu „breytingar á lágmarksgreiðslu, skatthlutfalli, persónuafslætti eða öðrum forsendum sem hafa áhrif á greiðslur geta fjárhæðir breyst“. Hvergi var á hinn bóginn minnst á breytingar á tekjum eftir að umræddu tímabili lauk eða að þær gætu skipt máli.

Við þetta bætist að óumdeilt er að kærandi sá ekki fyrir starfslok sín eða orlofsuppgjör fyrr en eftir að hún byrjaði í fæðingarorlofi. Þegar þessi samskipti kæranda og stjórnvaldsins eru skoðuð heildstætt er útilokað að leggja ábyrgðina á kæranda að hafa ekki upplýst sjóðinn um breyttar tekjur sínar. Verður því hafnað að leggja 15% álag á endurgreiðsluna.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða úrskurðarnefndar að kærandi hafi fengið ofgreitt fæðingarorlof og því beri henni að endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr., að teknu tilliti til staðgreiðslu og annarra launatengdra gjalda.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kærandi, A skal endurgreiða Fæðingarorlofssjóði X kr. vegna ofgreidds fæðingarorlofs.

 

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum