Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A6%C3%B0ingar-%20og%20foreldraorlof

Mál nr. 26/2013

Fimmtudaginn 14. nóvember 2013


A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 6. maí 2013 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 2. maí 2013. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 13. mars 2013, þar sem hún var krafin um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði.

Með bréfi, dags. 8. maí 2013, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 16. maí 2013.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 21. maí 2013, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust.

 

I. Sjónarmið kæranda.

Kærandi greinir frá því að samkvæmt bréfi, dags. 13. mars 2013, komi fram hugsanleg ofgreiðsla úr Fæðingarorlofssjóði. Þannig sé mál með vexti að fæðingarorlofi kæranda hafi lokið þann 22. ágúst 2012 og þann 23. ágúst 2012 hafi kærandi sagt upp starfi sínu. Þann 1. september 2012 hafi kærandi fengið uppgert frá vinnuveitanda sínum og þar af leiðandi hafi sú greiðsla skarast við greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði.

Kærandi mótmæli því að hún hafi fengið ofgreiðslu úr Fæðingarorlofssjóði og skuli þar af leiðandi endurgreiða eitthvað.

Kærandi hafi fengið þær upplýsingar að hefði hún sagt upp störfum eftir 1. september hefði þetta ekki komið fyrir. Kærandi hafi ekki fengið nein laun frá vinnuveitanda sínum heldur hafi verið að gera upp við hana vegna fyrri ára. Kærandi hafi viljað koma heiðarlega fram við fyrrverandi vinnuveitanda sinn og segja upp störfum strax. Fæðingarorlofssjóður hafi fengið sendan síðasta launaseðil kæranda þar sem fram komi uppgjör vinnuveitanda við kæranda.

 

II. Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. desember 2012, vakið athygli kæranda á því að stofnunin hafi verið með til meðferðar mál hennar vegna hugsanlegrar ofgreiðslu. Samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK hefði kærandi verið að fá laun frá vinnuveitanda sínum á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðli fyrir ágúst 2012 ásamt útskýringum frá vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Tölvupóstur hafi borist frá kæranda, dags. 28. desember 2012, og bréf frá fyrrum vinnuveitanda kæranda, dags. 26. febrúar 2013, ásamt umbeðnum launaseðli. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 13. mars 2013, þar sem hún hafi verið krafin um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar fyrir ágúst 2012. Ekki hafi verið gerð krafa um 15% álag. Litið hafi verið svo á samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. nóvember 2011 og innsendum skýringum og launaseðli að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði fyrir ágúst 2012 skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008, 3. og 14. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 10. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og 8. gr. laga nr. 74/2008, skuli greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem séu hærri en nemi mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Eingöngu skuli greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri sé í fæðingarorlofi koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó sé heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja megi til breytinga á störfum foreldris.

Með umsókn kæranda, dags. 1. október 2011, hafi kærandi sótt um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði í sex mánuði vegna barns hennar sem fæddist Y. nóvember 2011. Ein tilkynning hafi borist frá kæranda um tilhögun fæðingarorlofs og hún afgreidd í fæðingarorlof í samræmi við hana, sbr. greiðsluáætlun til hennar, dags. 25. nóvember 2011.

Á viðmiðunartímabili kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. hafi viðmiðunarlaun hennar verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau verið komin í X kr. sem miðað hafi verið við. Þannig hafi verið tekið mið af hækkuðum launum kæranda henni til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu skv. 10. mgr. 13. gr. og 4. mgr. 33. gr. ffl. Enga heimild sé að finna í ffl. eða í reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks, að taka tillit til launabreytinga foreldris eftir fæðingardag barns við mat á hugsanlegri ofgreiðslu.

Í tölvupósti kæranda, dags. 28. desember 2012, komi meðal annars fram að kærandi hafi sagt upp störfum hjá vinnuveitanda sínum um leið og fæðingarorlofi hafi lokið. Þegar hún hafi sagt upp hafi allt verið gert upp við hana. Í bréfi fyrrum vinnuveitanda kæranda, dags. 26. febrúar 2013, komi fram að greiðslan sé útborgað orlofsuppgjör vegna starfsloka.

Í ágúst 2012 hafi kærandi þegið X kr. í orlofslaun vegna starfsloka frá vinnuveitanda sínum (hafi þá persónuuppbót að fjárhæð X kr. verið undanskilin og laun samkvæmt staðgreiðsluskrá RSK og launaseðli verið X kr.). Hún hafi því fengið sem svari 145% af meðaltali heildarlauna sinna frá vinnuveitanda sínum í mánuðinum og hefði því ekki mátt þiggja neina greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði. Ofgreiðsla fyrir ágúst 2012 sé því X kr. útborgað.

Af öllum gögnum málsins svo og kæru kæranda sé óumdeilt að ágreiningur málsins snúi að þeirri greiðslu sem kærandi hafi þegið frá vinnuveitanda sínum í ágúst 2012 og séu orlofslaun að fjárhæð X kr. vegna starfsloka skv. 8. gr. laga um orlof, nr. 30/1987.

Samkvæmt 1. gr. orlofslaga eigi allir þeir sem starfi í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau séu greidd í peningum eða öðrum verðmætum, rétt á orlofi og orlofslaunum. Í 7. gr. orlofslaga sé fjallað um rétt launþega til orlofslauna, hvernig þau séu reiknuð út og hvenær orlofslaun skuli greiða. Í athugasemdum með 7. gr. orlofslaga segi: „Í 7. gr. frumvarpsins felst að allur réttur til launa í orlofi verður í formi orlofslauna sem greiðast af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, nema til ráðningarslita komi, sbr. 8. gr.“

Komi til ráðningarslita, sbr. 8. gr. orlofslaga, skuli vinnuveitandi við lok ráðningartímans greiða launþeganum öll áunnin orlofslaun hans samkvæmt reglunni í 2. mgr. 7. gr.

Samkvæmt framangreindu sé meginreglan sú að orlofslaun samkvæmt orlofslögum séu greidd í tvenns konar tilvikum, annars vegar við upphaf orlofstöku og hins vegar við starfslok. Í þeim tilvikum sem starfsmenn fá orlofsgreiðslur frá vinnuveitendum á sama tíma og þeir séu í fæðingarorlofi hafi úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála staðfest að vegna ákvæða 7. gr. orlofslaga verði að líta svo á að starfsmennirnir séu í orlofi en ekki fæðingarorlofi, enda mæli ákvæðið fyrir um að orlofslaun greiðist af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, sbr. meðal annars úrskurði í málum nr. 20/2011 og 23/2011. Öðru máli gegni hins vegar um orlofsgreiðslur sem starfsmenn fái vegna starfsloka enda sé í orlofslögum ekki gert ráð fyrir því að orlof sé greitt við upphaf orlofstöku þegar um ráðningarslit er að ræða.

Með breytingalögum nr. 136/2011 hafi komið inn svohljóðandi ákvæði í 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011: „Foreldri sem nýtur orlofslauna eða greiðslna vegna starfsloka getur ekki nýtt sér rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum þessum á sama tímabili og þær greiðslur eiga við um.“ Lög nr. 136/2011 hafi verið samþykkt á Alþingi 17. september 2011 og útgáfudagur þeirra í Stjórnartíðindum verið 30. sama mánaðar. Samkvæmt 16. gr. laganna taki ákvæði þeirra til foreldra barna sem fæðist, séu ættleidd eða tekin í varanlegt fóstur eftir gildistöku þeirra. Barn kæranda fæddist eins og áður segir þann Y. nóvember 2011 og því eigi ákvæðið við um tilvik kæranda.

Í athugasemdum með lagaákvæðinu sé ekki að finna frekari skýringar en komi fram í lagaákvæðinu sjálfu. Í samræmi við það sé ekki annað fært en að skýra það í samræmi við almenn lögskýringarsjónarmið samkvæmt orðanna hljóðan og að skýra beri yngri lög þannig að þau gangi fyrir eldri lögum ef þau rekist á.

Í ákvæðinu sé þannig ekki gerður greinarmunur á því hvort greiðslur vegna starfsloka séu greiðslur vegna launa í uppsagnarfresti, greiðslur vegna starfslokasamninga eða greiðslur orlofslauna skv. 8. gr. orlofslaga. Ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011, séu yngri lög gagnvart 8. gr. orlofslaga og gangi því framar ef þau rekist á.

Samkvæmt 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011, verði ekki séð að greiðslur vegna starfsloka, hvort heldur um sé að ræða laun í uppsagnarfresti, greiðslur vegna starfslokasamninga eða greiðslur orlofslauna skv. 8. gr. orlofslaga, fari saman með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði á sama tímabili og þær greiðslur eigi við um. Skýrt sé skv. 8. gr. orlofslaga að komi til ráðningarslita skuli vinnuveitandi við lok ráðningartímans greiða launþeganum öll áunnin orlofslaun hans samkvæmt reglunni í 2. mgr. 7. gr. og því ekki annað hægt en líta svo á að þær greiðslur eigi þá við um tímabil í beinu framhaldi ráðningarslita.

Í því ljósi megi benda á að við mat á þátttöku á innlendum vinnumarkaði skv. a-lið 2. mgr. 13. gr. a ffl. hafi verið staðfest að uppsafnað orlof sem greitt sé út við starfslok hafi talist til tíma við matið. Einnig megi til dæmis benda á í þessu samhengi að einstaklingur sem sækir um greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði teljist ekki tryggður samkvæmt lögunum hafi hann fengið greitt út ótekið orlof við starfslok eða fái greiðslur vegna starfsloka á því tímabili sem þær greiðslur eigi við um. Við umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hinn tryggði taka fram hvenær hann ætli að taka út orlof sitt fyrir lok næsta orlofstímabils, sbr. 4. mgr. 51. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006.

Í samhengi við framangreint þyki einnig rétt að vekja athygli á að foreldri geti ákveðið að taka fæðingarorlof sitt á öðrum tíma en greiðslur berist vegna starfsloka, sbr. 10. gr. ffl. Fái foreldri til dæmis greiðslur vegna starfsloka á sama tíma og greitt sé úr Fæðingarorlofssjóði og hefji síðan störf hjá sama vinnuveitanda eða nýjum vinnuveitanda strax að fæðingarorlofi loknu, sé ljóst að það leiðir til þess að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði hafi í raun komið til viðbótar við greiðslur frá vinnuveitanda að hluta eða öllu leyti. Með þeim hætti væri tilgangi greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði, sem sé aðallega að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki og að allar greiðslur sem séu umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum, ekki náð.

Óumdeilt sé að til ráðningarslita hafi komið í ágúst 2012 og í þeim mánuði hafi kærandi jafnframt fengið uppgerð orlofslaun vegna starfsloka en á sama tíma hafi kærandi jafnframt verið í fæðingarorlofi og þegið greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Fæðingarorlofi kæranda hafi lokið 22. ágúst 2012.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað, sbr. greiðsluáskorun, dags. 13. mars 2013. Ekki sé gerð krafa um 15% álag.

 

III. Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. nóvember 2011.

Í hinni kærðu ákvörðun er á því byggt að kærandi hafi þegið greiðslur frá vinnuveitanda sínum í ágúst 2012 á sama tíma og hún þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Séu þessar greiðslur frá vinnuveitanda svo háar og þess eðlis að þær leiði til lækkunar á rétti til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 2. mgr. 10. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 74/2008, segir meðal annars að með samkomulagi við vinnuveitanda sé starfsmanni heimilt að haga fæðingarorlofi á þann veg að það skiptist niður á fleiri tímabil og/eða það verði tekið samhliða minnkuðu starfshlutfalli, sbr. þó 3. mgr. 8. gr.

Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. nóvember 2011. Viðmiðunartímabil útreiknings meðaltals heildarlauna kæranda skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. er því tímabilið frá maí 2010 til apríl 2011. Í greiðsluáætlun, dags. 25. nóvember 2011, kemur fram að meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. gr. ffl. voru alls X kr. og greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof væri samkvæmt því X kr. Af útreikningi sem fylgdi greiðsluáskorun má hins vegar sjá að frá því að viðmiðunartímabili meðaltals heildarlauna kæranda lauk og fram til fæðingar barnsins hækkuðu laun kæranda í X kr. sem miðað hafi verið við við útreikning á endurgreiðslukröfu Fæðingarorlofssjóðs í samræmi við heimild í 10. mgr. 13. gr. ffl. Er það kæranda til hagsbóta.

Þar sem kærandi þáði greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði í ágústmánuði 2012 var henni einungis heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sem námu mismuni meðaltals heildarlauna hennar eins og þau voru hækkuð skv. 10. mgr. 13. gr. ffl. og greiðslna frá Fæðingarorlofssjóði án þess að greiðslur vinnuveitanda til hennar kæmu til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

Líkt og áður segir er rétt að mati úrskurðarnefndar að miða endurgreiðslukröfu á hendur kæranda við meðaltals heildarlaun að fjárhæð X kr. Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði að fjárhæð X kr. í ágúst 2012 og var henni því heimilt að þiggja greiðslur frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í ágúst 2012 án þess að það kæmi til lækkunar á greiðslum úr sjóðnum. Er þessi túlkun í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi greitt ótekið orlof vegna starfsloka frá vinnuveitanda sínum að fjárhæð X kr. í ágúst 2012, en ljóst er að útborgun ótekins orlofs vegna starfsloka telst til réttinda sem eru ósamrýmanleg fæðingarorlofsgreiðslum skv. 4. mgr. 33. gr. ffl. Úrskurðarnefndin telur óhjákvæmilegt að fjalla um laun og aðrar greiðslur í einstökum almanaksmánuðum sem uppgjörseiningar í þessu samhengi sem endranær.

Það er kjarni þessa máls hvernig eigi að túlka ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl. um orlofslaun og greiðslur vegna starfsloka um „sama tímabil [..] og þær greiðslur eiga við um“, sérstaklega með hliðsjón af orðalagi 10. mgr. 13. gr. um „greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi“.

Ekki er unnt að fallast á að í þessum ákvæðum sé verið að vísa til þess tímabils þegar unnið er til orlofslauna. Launþegar vinna almennt til orlofslauna allt árið, en þær greiðslur sem þeir ávinna sér eru ætlaðar til orlofstöku yfir sumarmánuði, eða eftir atvikum til dæmis við starfslok. Það virðist þannig hafið yfir vafa að umrædd orlofsgreiðsla var „ætluð fyrir tímabil“ og „átti við um“ það tímabil þegar kærandi var í fæðingarorlofi.

Það er því ljóst að kærandi þáði hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en henni var heimilt fyrir ágústmánuð 2012. Verður niðurstaða Fæðingarorlofssjóðs um skyldu kæranda til endurgreiðslu fyrir mánuðinn því staðfest.

Af gögnum málsins má sjá að Fæðingarorlofssjóður byggir hina kærðu ákvörðun á hlutfallsútreikningi. Það er álit úrskurðarnefndar, með vísan til álits umboðsmanns Alþingis í málinu nr. 7022/2012 o.fl. frá 28. ágúst 2013, að sú aðferð sé ekki í samræmi við ákvæði ffl. og því er hin kærða ákvörðun felld úr gildi. Hins vegar er ljóst að þrátt fyrir að réttri reiknireglu verði beitt hefur það ekki áhrif á heildarendurkröfu á hendur kæranda.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs í máli A frá 13. mars 2013 er staðfest.

 

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum