Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20F%C3%A9lags%C3%BEj%C3%B3nusta%20og%20h%C3%BAsn%C3%A6%C3%B0ism%C3%A1l

Nr. 236/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 236/2018

Fimmtudaginn 4. október 2018

A

gegn

Íbúðalánasjóði

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, 29. júní 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Íbúðalánasjóðs, dags. 5. apríl 2018, um að synja beiðni hennar um greiðslu húsnæðisbóta.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um húsnæðisbætur með umsókn, dags. 25. janúar 2017. Umsóknin var samþykkt og kærandi fékk greiddar húsnæðisbætur til 1. september 2017. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 20. september 2017, var kæranda tilkynnt að afgreiðslu umsóknarinnar væri frestað þar sem umboð til upplýsinga- og gagnaöflunar vantaði frá tilteknum heimilismanni. Tekið var fram að umboðið þyrfti að berast innan 15 virkra daga frá dagsetningu bréfsins, að öðrum kosti myndi ákvörðun stofnunarinnar vera byggð á fyrirliggjandi gögnum. Þann 1. janúar 2018 tók Íbúðalánasjóður við málinu, sbr. reglugerð nr. 911/2017 um breytingu á reglugerð nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur. Með bréfi Íbúðalánasjóðs, dags. 14. febrúar 2018, var umsókn kæranda hafnað á þeirri forsendu að ekki lægi fyrir umboð heimilismanns þrátt fyrir beiðni þess efnis. Kærandi sótti á ný um húsnæðisbætur með umsókn, dags. 19. febrúar 2018, og var sú umsókn samþykkt 21. febrúar 2018. Með bréfi til Íbúðalánasjóðs, dags. 19. febrúar 2018, óskaði kærandi eftir leiðréttingu vegna húsnæðisbóta sem felldar voru niður frá og með 1. september 2017. Beiðni kæranda var hafnað með tölvupósti Íbúðalánasjóðs 5. apríl 2018 á þeirri forsendu að ekki hafi verið brugðist við innan þeirra tímamarka sem gefin voru.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 3. júlí 2018. Með bréfi, dags. 5. júlí 2018, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Íbúðalánasjóðs ásamt gögnum málsins. Greinargerð Íbúðalánasjóðs barst með bréfi, dags. 13. júlí 2018, og var send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust frá kæranda með tölvupósti 20. ágúst 2018 og voru þær sendar Íbúðalánasjóði til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. ágúst 2018. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi fer fram á að beiðni um leiðréttingu húsnæðisbóta verði afgreidd henni í hag og vísar til þess að það sé óumdeilt að hún hafi átt rétt á bótum. Það sé óásættanlegt að Íbúðalánasjóður skuli ekki tilkynna jafn mikilvæga og afdrifaríka ákvörðun með formlegri hætti en gert hafi verið. Sjóðurinn hefði átt að senda formlegt bréf í ábyrgðarpósti eða einfaldlega hringja í hana eða Kópavogsbæ sem sé húseigandinn. Kærandi bendir á að það séu ekki allir tölvuvæddir eða með mikinn skilning á tölvumálum. Það sé fráleitt að fólk geti tapað jafn miklum fjármunum eingöngu vegna skorts á tölvulæsi.

III.  Sjónarmið Íbúðalánasjóðs

Í greinargerð Íbúðalánasjóðs kemur fram að sjóðnum sé óheimilt að greiða húsnæðisbætur lengra aftur í tímann en frá þeim almanaksmánuði sem umsókn hafi verið móttekin, sbr. 2. mgr. 21. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur. Kæranda hafi verið synjað á þeim grundvelli að Íbúðalánasjóður hefði ekki lagaheimild til þess að greiða húsnæðisbætur afturvirkt þrátt fyrir að hún hafi ekki séð frestunarbréf sjóðsins inn á „Mínum síðum“ á vefsíðunni husbot.is þar sem óskað hafi verið eftir umboði heimilismanns til upplýsinga- og gagnaöflunar samkvæmt 2. mgr. 14. gr. laganna. Íbúðalánasjóður tekur fram að heimild til rafrænnar málsmeðferðar sé að finna í 3. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur, sbr. 2. mgr. 35. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en þar segi að stjórnvald hafi heimild til rafrænnar málsmeðferðar þegar aðili hafi að fyrra bragði notað þann búnað til rafrænna samskipta við stjórnvald. Þar sem kærandi hafi af fyrra bragði haft rafræn samskipti við Íbúðalánasjóð með umsókn á „Mínum síðum“ á vefsíðunni husbot.is hafi henni verið svarað með sama hætti og öll bréf send inn á „Mínar síður“, ásamt tilkynningu á netfangið [...], sem kærandi hafi skráð á umsókn sína um húsnæðisbætur. Íbúðalánasjóður bendir á að stjórnvaldsákvörðun eða önnur gögn á rafrænu formi teljist birt aðila þegar hann eigi þess kost að kynna sér efni þeirra og falli það í ábyrgð aðila máls að vél- og hugbúnaður hans fullnægi þeim þörfum sem gerðar séu til hans, sbr. 1. mgr. 35. gr., og nauðsynlegar séu svo að hann geti kynnt sér efni stjórnvaldsákvörðunar eða annarra gagna sem stjórnvald sendi honum á rafrænu formi, sbr. 1. mgr. 39. gr. stjórnsýslulaga. Samkvæmt framangreindu sé það í hlut kæranda að tryggja að hún hafi aðgang að fullnægjandi tölvubúnaði til að geta kynnt sér það efni sem Íbúðalánasjóður hafi sent henni í kjölfar umsóknar um húsnæðisbætur, meðal annars til að geta kynnt sér niðurstöðu málsins. Íbúðalánasjóður krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Íbúðalánasjóðs um að synja beiðni kæranda um greiðslu húsnæðisbóta. Kærandi fékk greiddar húsnæðisbætur á árinu 2017, eða til 1. september 2017.

Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 20. september 2017, var óskað eftir umboði til upplýsingaöflunar frá dóttur kæranda sem var nýlega orðin 18 ára. Sú beiðni var á grundvelli e-liðar 2. mgr. 9. gr. laga nr. 76/2016 um húsnæðisbætur en þar segir að húsnæðisbætur verði einungis veittar ef fyrir liggi umboð umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, til upplýsingaöflunar, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Þann 14. febrúar 2018 var tekin ákvörðun um að hafna umsókn kæranda á þeirri forsendu að ekki lægi fyrir umboð heimilismanns þrátt fyrir beiðni þess efnis. Sú ákvörðun var tekin á grundvelli 2. mgr. 13. gr. laga nr. 75/2016 en þar kemur fram að umsóknir séu afgreiddar þegar allar nauðsynlegar upplýsingar og gögn hafi borist. Framkvæmdaraðila sé heimilt að synja umsókn um húsnæðisbætur hafi nauðsynlegar upplýsingar og gögn ekki borist innan 45 daga frá þeim degi er umsóknin barst framkvæmdaraðila.

Kærandi óskaði eftir leiðréttingu á greiðslu húsnæðisbóta fyrir tímabilið 1. september 2017 til 1. mars 2018. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að líta verði svo á að í þeirri ósk kæranda hafi falist beiðni um endurupptöku ákvörðunar frá 14. febrúar 2018 á grundvelli 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 en ekki beiðni um afturvirkar greiðslur frá síðari umsókninni í febrúar 2018.

Í 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er kveðið á um rétt aðila máls til þess að fá mál sitt tekið til meðferðar á ný ef ákvörðun í því hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða ef íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Af ákvæði þessu leiðir að aðili máls á lögvarinn rétt til að mál hans verði tekið til meðferðar á ný ef framangreind skilyrði eru fyrir hendi.

Í 3. gr. reglugerðar nr. 1200/2016 um húsnæðisbætur er kveðið á um heimild Íbúðalánasjóðs til rafrænnar meðferðar. Þar segir í 1. mgr. að Íbúðalánasjóður skuli bjóða umsækjendum upp á rafræna miðlun upplýsinga við meðferð máls samkvæmt lögum um húsnæðisbætur og reglugerðinni. Um rafræna málsmeðferð samkvæmt lögum um húsnæðisbætur og reglugerðinni gildi að öðru leyti ákvæði stjórnsýslulaga, sbr. einkum IX. kafla laganna, sbr. 2. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 1200/2016.

Í IX. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er fjallað um rafræna meðferð stjórnsýslumála. Þar segir meðal annars í 1. mgr. 35. gr. að stjórnvald ákveði hvort boðið verði upp á þann valkost að nota rafræna miðlun upplýsinga við meðferð máls. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að stjórnvald, sem ákveður að nýta heimild samkvæmt 1. mgr., skuli nota rafræna miðlun upplýsinga við meðferð máls óski aðili þess sérstaklega. Hið sama gildi þegar aðili hafi að fyrra bragði notað þann búnað til rafrænna samskipta við stjórnvald sem það hefur auglýst á vefsíðu sinni að standi til boða í slíkum samskiptum. Í athugasemdum við 6. gr. í frumvarpi til laga nr. 51/2003 um breytingu á stjórnsýslulögum, þar sem lagt var til að bæta við kafla um rafræna meðferð stjórnsýslumála, kemur fram að aðila sé ekki skylt að taka þátt í rafrænni meðferð. Þá segir í almennum athugasemdum við frumvarpið að af ákvæði 1. mgr. 6. gr. leiði að stjórnvöld verði almennt að ganga úr skugga um hvaða tölvupóstfang aðili noti í samskiptum við stjórnvald og gera honum grein fyrir því að hann megi búast við því að gögn verði send honum á það póstfang og á ákveðnu formi.   

Íbúðalánasjóður hefur vísað til þess að þar sem kærandi hafi af fyrra bragði haft rafræn samskipti við sjóðinn með umsókn á vefsíðunni husbot.is hafi henni verið svarað með rafrænum hætti og öll bréf send inn á lokað vefsvæði. Það sé kæranda að tryggja að hún hafi aðgang að fullnægjandi tölvubúnaði til að geta kynnt sér það efni sem Íbúðalánasjóður hafi sent henni í kjölfar umsóknar um húsnæðisbætur, sbr. 2. mgr. 35. gr. stjórnsýslulaga.

Úrskurðarnefndin aflaði upplýsinga frá Íbúðalánasjóði um með hvaða hætti  málsmeðferð færi fram hjá stofnuninni í kjölfar umsóknar um húsnæðisbætur á vefsíðunni husbot.is. Samkvæmt þeim upplýsingum eru umsækjendur ekki upplýstir sérstaklega um að samskipti við stofnunina fari fram með rafrænum hætti né eru þeir upplýstir um að bréf sjóðsins berist eingöngu rafrænt. Samskipti séu með þeim hætti að þegar nýtt bréf sé birt á vefsvæði umsækjenda fái þeir alltaf tilkynningu í tölvupósti þess efnis og geti Íbúðalánasjóður séð hvort og hvenær umsækjendur opna bréfin. Þá kom fram að kærandi hafi þann 15. febrúar 2018, eða degi eftir að umsókn hennar um húsnæðisbætur var hafnað, opnað bréf sjóðsins frá 20. september 2017, sem birt var á vefsvæðinu, þar sem óskað var eftir frekari gögnum til þess að unnt væri að meta rétt hennar til húsnæðisbóta.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga hvílir sú skylda á stjórnvaldi að sjá til þess að eigin frumkvæði að mál séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Að mati úrskurðarnefndarinnar bar Íbúðalánasjóði að tryggja það að kærandi væri meðvituð um að umboðið skorti og að hún hefði raunhæfan möguleika á að bæta þar úr. Í málinu liggur fyrir að kærandi óskaði ekki sérstaklega eftir rafrænum samskiptum heldur var það mat stjórnvaldsins að leiða mætti af því að hún lagði fram umsókn á vefsíðunni husbot.is að það væri hennar ósk, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 35. gr. stjórnsýslulaga. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála ber stjórnvaldi í slíkum tilfellum, þ.e. þegar sótt er um rafrænt, að upplýsa aðila um að málsmeðferðin verði framvegis með rafrænum hætti, enda ekki hægt að álykta sem svo að aðilum sé það ljóst að öll samskipti verði framvegis rafræn þrátt fyrir að umsókn sé lögð fram með þeim hætti.

Þar sem stofnunin sá ekki til þess að upplýsa kæranda með fullnægjandi hætti um að gögn skorti í máli hennar er það mat úrskurðarnefndarinnar að mál kæranda hafi ekki verið rannsakað nægjanlega áður en ákvörðun frá 14. febrúar 2018 var tekin. Þegar af þeirri ástæðu telur úrskurðarnefndin að skilyrði endurupptöku samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga sé uppfyllt. Hin kærða ákvörðun er því felld úr gildi og málinu vísað til Íbúðalánasjóðs til nýrrar meðferðar.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Íbúðalánasjóðs, dags. 5. apríl 2018, um að synja beiðni A, um greiðslu húsnæðisbóta er felld úr gildi. Málinu er vísað til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum