Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 326/2017

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 9. júní 2017 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 326/2017

í stjórnsýslumáli nr. KNU17040043

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 25. apríl 2017 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. mars 2017, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Danmerkur.

Kærandi krefst þess að umsókn hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 1. og 2. mgr. 42. gr. og 2. mgr. 36. gr. sömu laga. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 31. desember 2016. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Danmörku. Þann 9. janúar 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Danmörku, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 13. janúar 2017 barst svar frá dönskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 13. mars 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Danmerkur. Kæranda var birt ákvörðun Útlendingastofnunar þann 21. mars 2017, en í ljós komu mistök af hálfu stofnunarinnar þar sem greinargerð kæranda vantaði inn í ákvörðunina. Ákvörðunin var því dregin til baka og var kærandi boðaður í aðra birtingu þann 11. apríl 2017. Kærandi kærði ákvörðunina þann 25. apríl 2017 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 12. maí 2017. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að tjá sig við nefndina um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Danmerkur. Lagt var til grundvallar að Danmörk virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Danmerkur ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann kynni að vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu vegna [...] veikinda. Það var hins vegar mat stofnunarinnar að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda að sérstakar ástæður væru ekki til staðar í málinu, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Danmerkur, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Við meðferð máls kæranda hjá Útlendingastofnun bar hann fyrir sig að hann vilji ekki vera endursendur til Danmerkur því dönsk stjórnvöld séu ekki fær um að tryggja öryggi hans og verja hann fyrir [...]. Þá lagði kærandi fram skjáskot af síma sínum til að sýna fram á að hann hafi fengið hótanir frá [...]. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var tekið fram að lögreglan í Danmörku og dönsk stjórnvöld séu fyllilega í stakk búin til að vernda kæranda gegn [...] en engin gögn hafi verið lögð fram sem bendi til annars.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann vilji ekki fara aftur til Danmerkur því þar sé hann í mikilli hættu. Í heimaríki hafi kærandi [...]. Í kjölfar þess sé kærandi [...]. Kærandi greinir frá því að [...] hafi gert tilraun til þess að koma til Danmerkur en hafi verið stöðvaður í Tyrklandi. Þá hafi [...] kæranda sent vini sína til þess að hafa uppi á honum og myrða hann og hafi kærandi þrisvar sinnum verið fluttur á milli búsetuúrræða í Danmörku vegna þessa. Sendisveinar [...] kæranda hafi m.a. komið í búðir þar sem hann hafði dvalið, með það í hyggju að drepa hann, en kærandi hafi þá þegar verið fluttur í aðrar búðir og hann eigi líf sitt að launa því að fallist hafi verið á flutning. Kærandi greinir frá því að [...] og kunningjar hans viti í hvaða flóttamannabúðum í Danmörku kærandi hafi dvalið í og eigi því auðvelt með að finna hann þar. Þá greinir kærandi frá því að hann hafi leitað eftir aðstoð lögreglu en án árangurs þar sem lögreglan geti lítið gert til þess að stöðva þessa menn.

Kærandi greinir frá því að hann tilheyri [...] og að hann sé [...]. Þá komi fram í gögnum frá stjórnvöldum í Danmörku að kærandi tilheyri [...] og myndir hafi náðst af honum [...]. Kærandi telji sig því í mikilli hættu verði hann sendur aftur til [...]. Þá hafi kæranda ekki verið gefið tækifæri til þess að greina nánar frá aðstæðum þeim sem hafi neytt hann á flótta frá heimaríki sínu, [...], sökum þess að mál hans sé rakið á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi fjallar um heilsu sína í greinargerð. Kærandi kveðist [...]

Kærandi byggir á því að ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði á um að ef beiting 1. mgr. 36. gr. laganna leiði til þess að brotið sé gegn 42. gr. sömu laga, varðandi bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu, þá skuli taka mál til efnismeðferðar hér á landi. Þá er vísað til c-liðar 1. mgr. og 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og lögskýringargagna að baki þeim.

Kærandi byggir á því að að skoða verði hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi sem geri það að verkum að taka skuli umsókn hans til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi taki fram að [...] heilsa hans sé svo slæm að ekki sé tækt að beita Dyflinnarreglugerðinni í máli hans. Kærandi sé einstæðingur sem hafi [...]. Kærandi eigi [...]. Þá hafi honum ítrekað verið hótað líkt og áður hafi komið fram. Í greinargerð kæranda er vísað til nýlegra breytinga á lögum um útlendinga og byggt á því að vilji löggjafans hafi verið að víkka út gildissvið 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga miðað við beitingu stjórnvalda á sambærilegu ákvæði í eldri lögum. Sé það í samræmi við meginreglu nýju laganna um að allar umsóknir um alþjóðlega vernd skuli teknar til efnismeðferðar. Kærandi bendir á nýlegan dóm Evrópudómstólsins í máli C.K. og fleiri gegn Slóveníu (nr. C-578/16) frá 16. febrúar 2017 en þar komi fram aukin vernd mannréttinda umsækjenda um alþjóðlega vernd sem falli undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar. Í niðurstöðunni komi fram að skylda hvíli á aðildarríkjum til að skoða hvert mál fyrir sig og taka tillit til sérstöðu hvers umsækjanda. Í málinu hafi verið talið óheimilt að endursenda einstakling á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar með tilliti til andlegs ástands. Kærandi telji dóminn slá því föstu að horfa þurfi til andlegrar heilsu í málsmeðferð einstaklinga og t.d. þegar metið sé hvort brotið sé gegn 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þá vísar kærandi til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Aswat gegn Bretlandi (nr. 17299/12) frá 16. apríl 2013 en þar komi einnig fram að sending einstaklings í umhverfi sem sé mögulega hættulegt eða myndi gera það að verkum að andleg heilsa einstaklingsins versnaði gæti falið í sér brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þannig sé ljóst að Mannréttindadómstóllinn gefi andlegum veikindum vægi þegar meta þurfi hvort rétt sé að beita heimildum til þess að víkja fólki úr landi, svo sem á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi byggir á því að komi til endursendingar til Danmerkur telji hann að brotið sé gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 37. gr. og 38. gr. sömu laga, um ástæðuríkan ótta. Þá fjallar kærandi í greinargerð sinni ítarlega um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Danmörku, svo og ástand mannréttindamála og breytingar á stefnu danskra stjórnvalda í innflytjendamálum. Löggjöf í garð umsækjenda hafi verið hert til muna en á sama tíma hafi heimildir stjórnvalda gagnvart umsækjendum verið rýmkaðar. Þá sé tölfræði í málum er varða umsóknir um alþjóðlega vernd rakin yfir ákveðið tímabil en með breyttri stefnu danskra stjórnvalda í innflytjendamálum hafi umsóknum um alþjóðlega vernd í landinu fækkað mikið og fyrir liggi að Danmörk reki eina ströngustu innflytjendalöggjöf í Evrópu. Kærandi vísar m.a. skýrslu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna varðandi breytingar sem hafi verið gerðar á lögum um útlendinga í Danmörku árið 2015 til að bregðast við auknum fjölda umsókna um alþjóðlega vernd. Þá hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gagnrýnt afstöðu danskra stjórnvalda og telji hana vera í andstöðu við ákall stofnunarinnar um að Evrópuríki, hvert um sig, axli ábyrgð á flóttamannavandanum. Þá hafi stofnunin biðlað til danskra stjórnvalda að endurskoða stefnu sína í málefnum flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Kærandi fjallar ítarlega í greinargerð sinni hvernig meta eigi ástæðuríkan ótta og hvort hann hafi slíkan ótta við að vera sendur til Danmerkur. Kærandi vísar til handbókar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna. Þar komi fram að ástæðuríkur ótti geti bæði byggst á huglægum og hlutlægum þáttum sem séu til þess fallnir að valda fólki ótta. Í tengslum við matið sé m.a. mikilvægt að taka trúverðugleika umsækjanda til skoðunar og skoða hvort frásögnin fái stoð í gögnum málsins. Kærandi bendi á að frásögn hans, bæði hér á landi og í Danmörku, hafi á öllum stigum verið stöðug, skýr og samræmis gæti á milli viðtala. Þá hafi kærandi, frásögn sinni til sönnunar, lagt fram skjáskot af smáskilaboðum sem feli í sér líflátshótanir [...]. Telji kærandi að með hliðsjón af framangreindu að skilyrðinu um ástæðuríkan ótta við ofsóknir sé fullnægt, sbr. 1. mgr. 37. gr. og 38. gr. laga um útlendinga.

Kærandi byggir á því að Útlendingastofnun geti ekki borið fyrir sig í máli hans að ekki sé fyrir hendi kerfisbundinn galli á aðbúnaði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Danmörku. Bendi kærandi á að þegar stjórnvöld hyggi á endursendingu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar þurfi að tryggja að umsækjendur eigi ekki á hættu meðferð eða aðstæður sem brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, jafnvel þó engin raunveruleg vísbendin sé um kerfislægan galla í móttökuríki. Vísi kærandi máli sínu til stuðnings í áðurnefndan dóm Evrópudómstólsins í máli C.K. og fleiri gegn Slóveníu (nr. C-578/16) frá 16. febrúar 2017 en í niðurstöðu dómsins komi fram að þrátt fyrir að það séu ekki sannanir fyrir hendi um kerfisbundna ágalla í því ríki sem senda eigi viðkomandi umsækjanda um alþjóðlega vernd til þá útiloki það ekki að sending til viðkomandi lands geti falið í sér brot gegn 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi.

Krafa kæranda um að verða ekki sendur aftur til Danmerkur byggir einnig á því að þangað megi ekki senda hann vegna non-refoulement reglu þjóðarréttar. Samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga, sem mæli fyrir um áðurnefnda reglu, megi ekki senda útlending til svæðis þar sem hann sé í yfirvofandi hættu á að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð annars vegar og hins vegar þangað þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis. Ljóst sé að íslensk stjórnvöld séu meðvituð um nauðsyn þess að meta umsókn einstaklings um alþjóðlega vernd á einstaklingsgrundvelli og mikilvægi reglunnar um non-refoulement. Það fái stoð í greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu, frá desember 2015. Þá er í greinargerð ítarleg umfjöllun um aðstæður kæranda í heimaríki, [...]. Kærandi bendi á að þar sem hann hafi sterka sannfæringu megi ætla að hann láti fyrr eða síðar [...]. Af þessum sökum muni hann lenda í deilum við yfirvöld og megi þá líta svo á að hann hafi ástæðuríkan ótta við að verða ofsóttur vegna [...] sinna í heimaríki. Telji kærandi því að taka verði umsókn hans til efnismeðferðar sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga í því ljósi að beiting c-liðar 1. mgr. 36. gr. laganna leiði til þess að kærandi verði að öllum líkindum sendur til [...], sbr. 2. mgr. 42. gr. sömu laga.

Kærandi byggir jafnframt á því að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslaga nr. 37/1993 þar sem hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga. Í rannsóknarreglunni felist m.a. sú skylda stjórnvalds að sjá til þess, að eigin frumkvæði, að málsatvik stjórnsýslumáls séu nægjanlega upplýst áður en ákvörðun sé tekin í því. Um þetta atriði vísist til bréfs Umboðsmanns Alþingis til forstjóra Útlendingastofnunar frá 5. ágúst 2015. Þar komi fram í 3. kafla bréfsins að þegar komi að samspili reglna stjórnsýsluréttarins um rannsókn mála, andmælarétt og leiðbeiningarskyldu stjórnvalds sé ábyrgð þess mikil við að undirbúa mál sín vel. Þá er bent á skyldu Útlendingastofnunar skv. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, um að einstaklingsbundin greining skuli fara fram á því hvort einstaklingur sé í viðkvæmri stöðu, og því velt upp að Útlendingastofnun hefði átt að gera reka að því að fá sérfræðiálit á því hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Telji kærandi að við ákvarðanatöku í máli hans hafi svo gróflega verið brotið gegn rannsóknarreglunni að ekki komi annað til greina en að ógilda ákvörðunina og taka umsókn hans til efnislegrar meðferðar hér á landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Fyrir liggur í máli þessu að dönsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Danmerkur er byggt á því að kærandi sé með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi.

Í c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum jafnframt að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Danmörku, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

· Country Factsheet Denmark (European Union Agency for Fundamental Rights, september 2010)

· Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council of Europe Following his visit to Denmark from 19 to 21 November 2013 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 24. mars 2014)

· Denmark Immigration Detention Profile (Global Detention Project, apríl 2016)

· Denmark 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017)

· Dublin II – national asylum procedure in Denmark (Danish Refugee Council, 2011)

· Amnesty International Report 2016/17 - Denmark (Amnesty International, 22. febrúar 2017)

· Freedom in the world 2016 – Denmark (Freedom House, 2016)

· Upplýsingar af heimasíðu sem danska Útlendingastofnunin heldur úti: www.nyidanmark.dk, Udlændingestyrelsen og Styrelsen for International Rekruttering og Integrations

Samkvæmt svari danskra stjórnvalda um viðtöku kæranda er mál kæranda enn til meðferðar í Danmörku, en dönsk stjórnvöld samþykktu að taka við kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi á því enn kost á að leggja fram gögn í máli sínu sem styðji við umsókn hans um alþjóðlega vernd þar í landi. Í framangreindum gögnum kemur fram að danska útlendingastofnunin (d. Udlændingestyrelsen) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd í Danmörku og eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess almennt kost að bera synjun dönsku útlendingastofnunarinnar undir sérstaka kærunefnd útlendingamála (d. Flygtningenævnet). Danska útlendingastofnunin skoðar sérstaklega hvert mál fyrir sig með tilliti til þeirra upplýsinga sem umsækjandinn veitir ásamt þeim almennu upplýsingum sem liggja fyrir um aðstæður í heimaríki hans. Almennt kemur umsækjandi, sem hefur kært synjun á umsókn um alþjóðlega vernd, fyrir hina dönsku kærunefnd útlendingamála og skýrir mál sitt munnlega fyrir nefndinni. Hafi umsækjandi um alþjóðlega vernd í Danmörku fengið lokaniðurstöðu í máli sínu getur hann lagt fram nýja umsókn um alþjóðlega vernd telji hann nýjar ástæður eða breyttar aðstæður vera fyrir hendi í máli hans sem ekki voru fyrir hendi þegar mál hans var áður til meðferðar. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Dönsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki endurgjaldslausa lögfræðiaðstoð við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi. Hins vegar eiga umsækjendur rétt á lögfræðiaðstoð sér að kostnaðarlausu við meðferð máls á kærustigi. Þá veita frjáls félagasamtök að nafni Dansk Flygtningehjælp lögfræðiráðgjöf til umsækjenda um alþjóðlega vernd þeim að kostnaðarlausu.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á að vera í Danmörku á meðan mál þeirra er til meðferðar fyrir dönskum stjórnvöldum. Af framangreindum gögnum um Danmörku má ráða að umsækjendur fá gistingu í móttökumiðstöðvum þar til ákvörðun um brottvísun kemur til framkvæmdar eða umsækjandi yfirgefur Danmörku sjálfviljugur. Jafnframt eiga umsækjendur rétt á dagpeningum til grunnframfærslu eða mat án endurgjalds í móttökumiðstöðvum. Þeir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem settir eru í varðhald við komu til Danmerkur eiga rétt á lögfræðiaðstoð án endurgjalds og eiga jafnframt rétt á því að skjóta ákvörðun um varðhaldsvist til dómstóla.

Ekkert bendir til þess að umsóknum [...] umsækjenda um alþjóðlega vernd í Danmörku sé synjað sjálfkrafa eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Danmörku hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending umsækjenda um alþjóðlega vernd til Danmerkur brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að umsækjendum um alþjóðlega vernd séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Danmörku bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Danmerkur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi hefur greint frá því að hann óttist [...] og sendisveina hans í Danmörku sem hafi bæði hótað honum og gert tilraun til að beita hann ofbeldi. Þau gögn sem kærunefndin hefur kynnt sér benda til þess að kærandi geti leitað aðstoðar yfirvalda í Danmörku óttist hann tilgreinda aðila eða að á honum verði brotið.

Skilgreiningu á einstaklingi í sérstaklega viðkvæmri stöðu er að finna í 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga en þar kemur fram að átt sé við einstaklinga sem hafa sérþarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls eða geta ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögunum án aðstoðar eða sérstaks tillits. Sem dæmi um einstaklinga í sérstaklega viðkvæmri stöðu nefnir ákvæðið fólk með geðraskanir eða geðfötlun og alvarlega veika. Kærandi, sem er ungur einstæður karlmaður, kveðst vera við ágæta líkamlega heilsu en hann [...] Í ljósi framangreinds tekur kærunefnd undir mat Útlendingastofnunar að kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Heilsufar er eitt af þeim þáttum sem stjórnvöldum ber að líta til við mat á því hvort aðstæður umsækjanda um alþjóðlega vernd teljist sérstakar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og mæli þannig með því að umsókn hans verði tekin til efnismeðferðar. Fara þarf fram heildstætt mat á aðstæðum umsækjanda þar sem litið er til heilsufarsupplýsinga og upplýsinga um þær aðstæður sem bíða kæranda í viðtökuríki, þ.m.t. hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandi hefur aðgang að í viðtökuríki sé fullnægjandi. Kærunefnd leggur áherslu á að mat á því hvort heilsufar umsækjanda teljist sérstakar aðstæður er ekki bundið við skoðun á heilbrigðiskerfi móttökuríkis heldur þarf matið að fara fram á einstaklingsgrundvelli með hliðsjón af atvikum málsins. Meðal þeirra atvika sem sérstaklega þarf að líta til eru áhrif flutnings til viðtökuríkis á heilsufar umsækjanda að teknu tilliti til aðstæðna við flutning, sbr. einkum 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Verði niðurstaða heildstæðs mats á atvikum málsins sú að gögn málsins bendi eindregið til þess að framkvæmd synjunar á efnismeðferð umsóknar komi til með að hafa verulegar og óafturkræfar neikvæðar afleiðingar á andlega eða líkamlega heilsu umsækjanda telur kærunefnd að taka beri slíkar umsóknir til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda sé þá öruggt að einstaklingur verði ekki fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð við framkvæmd slíkrar ákvörðunar, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Eins og að framan greinir kvaðst kærandi í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 20. janúar 2017 vera við [...]. Í fyrrgreindum skýrslum um aðstæður í Danmörku kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa á að halda. Þó svo að mikið álag sé á hæliskerfi Danmerkur um þessar mundir telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Danmörku, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér heilbrigðisþjónustu við hæfi þar í landi. Þá telur kærunefnd að gögn málsins bendi ekki til þess að flutningur kæranda til Danmerkur komi til með að hafa slík áhrif á kæranda að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar á þeim grundvelli. Í ljósi aðstæðna í Danmörku og að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, m.a. sérstaklega viðkvæmrar stöðu kæranda, er það því mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi slíkar sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Hins vegar beinir kærunefndin því til Útlendingastofnunar að tryggja að fyrir endursendingu kæranda verði dönsk stjórnvöld upplýst um heilsufar kæranda í samræmi við 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærandi kvaðst í framangreindu viðtali ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 31. desember 2016.

Líkt og fram hefur komið gerir kærandi athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi telur að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið ábótavant þar sem ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga m.a. þar sem ekki hafi verið aflað [...] á því hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Um frekari afmörkun á hversu ítarlega beri að rannsaka mál, ber m.a. að líta til þess hversu mikilvægt það er. Því tilfinnanlegri eða meira íþyngjandi sem stjórnvaldsákvörðun er, þeim mun strangari kröfur verður að gera til rannsóknar á þeim atvikum sem leiða til niðurstöðunnar. Í þeim tilvikum þegar ákvörðun stjórnvalds byggist á mati verður að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru svo hægt sé að beita þeim sjónarmiðum sem ætlun er að byggja stjórnvaldsákvörðun á. Að auki ef deilt er um málsatvik sem hafa verulega þýðingu fyrir úrlausn málsins ber stjórnvöldum að leggja áherslu á að rannsaka þann þátt þess. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í málinu. Rannsóknarreglan gerir kröfu um að stjórnvöld afli gagna sem eru fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna, sbr. jafnframt 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga þar sem fram kemur að við meðferð mála er varða umsóknir um alþjóðlega vernd skuli afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga. Kærunefnd útlendingamála hefur farið yfir öll gögn varðandi mál kæranda og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Af rökstuðningi Útlendingastofnunar fyrir niðurstöðu sinni má sjá að stofnunin kynnti sér aðstæður í Danmörku sem og einstaklingsbundnar aðstæður kæranda. Er það afstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að slíkur ágalli hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi. Varakröfu kæranda er því hafnað.

Í máli þessu hafa dönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Danmerkur með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Anna Tryggvadóttir Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum