Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 16/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 16/2017

Fimmtudaginn 30. mars 2017

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 11. janúar 2017, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. desember 2016, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar og að innheimta ofgreiddar bætur.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 3. júní 2015 og var umsókn hennar samþykkt. Við samkeyrslu við menntastofnanir í nóvember 2016 kom í ljós að kærandi var skráð í nám við B. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2016, var óskað eftir skýringum kæranda vegna þessa ásamt skólavottorði. Skýringar bárust frá kæranda með bréfi, dags. 23. nóvember 2016. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 2. desember 2016, var kæranda tilkynnt sú ákvörðun stofnunarinnar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar, með vísan til 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. október 2016 til 31. október 2016 að fjárhæð 67.914 kr. á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Heildarskuld kæranda við Vinnumálastofnun væri því 101.623 kr.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 12. janúar 2017. Með bréfi, dags. 18. janúar 2017, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 13. febrúar 2017. Með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi, dags. 23. febrúar 2017, og voru þær sendar Vinnumálastofnun til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. mars 2017. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að námið sem hún stundi sé skipulagt fyrir fólk í fullri vinnu. Námið komi því ekki niður á atvinnuleit hennar og hamli því ekki að hún geti verið í fullri vinnu. Kærandi bendir á að það ætti að vera allra hagur að sá sem þiggi atvinnuleysisbætur reyni að mennta sig til að auka atvinnumöguleika sína. Í athugasemdum kæranda við greinargerð Vinnumálastofnunar greinir kærandi frá því að erfitt sé að fá starf á dagvinnutíma þar sem hún er búsett og því hafi hún ákveðið að mennta sig. Kærandi tekur fram að hún hafi haldið að ekki þyrfti að tilkynna námið til Vinnumálastofnunar þar sem það hefði ekki áhrif á atvinnuleit hennar. Að mati kæranda sé ósanngjarnt að missa bótarétt og þurfa að endurgreiða atvinnuleysisbætur þar sem námið sé einungis hugsað til að komast í fullt starf.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir. Í 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 komi fram að hver sá sem stundi nám, sbr. c-lið 3. gr., teljist ekki tryggður samkvæmt lögunum á sama tímabili, enda sé námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Í 2. og 3. mgr. 52. gr. laganna sé mælt fyrir um undanþágur frá meginreglunni en þær eigi einungis við um háskólanám en nám kæranda hafi ekki verið á háskólastigi. Kærandi hafi verið skráð í 32 f-eininga nám á framhaldsskólastigi og því gildi meginregla 1. mgr. 52. gr. laganna um mál hennar. Af framangreindum ákvæðum sé ljóst að það sé ekki tilgangur laganna að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 komi fram sú meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Auk þess sé það eitt af almennum skilyrðum fyrir atvinnuleysisbótum að atvinnuleitandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a-liður 1. mgr. 13. gr. laganna.

Vinnumálastofnun tekur fram að samkvæmt undanþáguheimild 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 geti sá sem stundi nám talist tryggður sé námið hluti af vinnumarkaðsaðgerð samkvæmt ákvörðun stofnunarinnar. Í 5. gr. reglugerðar nr. 12/2009 um þátttöku atvinnuleitenda, sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins í vinnumarkaðs-aðgerðum og um búferlastyrki, sé fjallað um námssamninga. Með 5. gr. reglugerðarinnar sé Vinnumálastofnun veitt heimild til að gera námssamning við atvinnuleitendur. Skilyrði fyrir því að geta sótt nám samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta sé því að gera námssamning við Vinnumálastofnun. Það hafi kærandi ekki gert og því beri að stöðva greiðslur til hennar og endurheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laganna beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfyllir ekki skilyrði laganna. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. október til 31. október 2016 að fjárhæð [101.623] kr. að meðtöldu 15% álagi.

IV. Niðurstaða

Mál þetta lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 101.623 kr.

Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:

Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar.

Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á háskólastigi sem nemur að hámarki 10 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.

Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.

Í c-lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:

Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.

Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.

Óumdeilt er að kærandi stundaði nám við Háskólann á Bifröst á haustönn 2016 og upplýsti stofnunina ekki um námið. Þá er óumdeilt að nám kæranda var ekki hluti af vinnumarkaðsaðgerð samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar. Að því virtu uppfyllti kærandi ekki skilyrði þess að vera tryggð samkvæmt lögunum á þeim tíma sem hún var skráð í námið og átti því ekki rétt á greiðslum frá Vinnumálastofnun.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum, beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.

Kemur þá til skoðunar hvort fella skuli niður álagið sem lagt var á ofgreiðslukröfuna. Í 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt viðkomandi samkvæmt lögunum. Ljóst er að kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki að hún væri skráð í nám haustið 2016 og verður því ekki fallist á að 15% álag á þá fjárhæð sem kæranda ber að endurgreiða verði fellt niður.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. desember 2016, í máli A, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar og að innheimta ofgreiddar bætur að fjárhæð 101.623 kr. er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum