Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 52/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 52/2015

Fimmtudaginn 17. mars 2016

A

gegn

Reykjavíkurborg

    

Ú R S K U R Ð U R


Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. september 2015, kærir A til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, synjun Reykjavíkurborgar, dags. 21. ágúst 2015, á umsókn hennar um styrk að fjárhæð 60.000 kr. til greiðslu áfengismeðferðar.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 63. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.


I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 11. júní 2015, sótti kærandi um styrk hjá Reykjavíkurborg að fjárhæð 60.000 kr., til greiðslu áfengismeðferðar, á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 30. júní 2015, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði niðurstöðunni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 21. ágúst 2015 og staðfesti synjunina á þeirri forsendu að aðstæður kæranda féllu ekki að skilyrðum 27. gr. reglna sveitarfélagsins um fjárhagsaðstoð.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 25. september 2015. Með bréfi, dags. 28. september 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 9. október 2015. Með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 14. október 2015, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda þann 25. október 2015 og voru þær sendar Reykjavíkurborg til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. október 2015. Athugasemdir bárust frá Reykjavíkurborg með bréfi, dags. 9. nóvember 2015, og voru þær sendar kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 10. nóvember 2015. Þá bárust frekari athugasemdir frá kæranda þann 12. nóvember 2015.


II. Málsástæður kæranda

Í kæru kemur fram að þess sé óskað að afgreiðsla málsins verði endurskoðuð. Kærandi greinir frá bágri stöðu sinni og vísar til upplýsinga um fjárhag hennar er liggi fyrir hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Í athugasemdum kæranda kemur fram að í febrúar 2015 hafi hún fengið fjármálaráðgjöf hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar vegna alvarlegs fjárhagsvanda og þar hafi bág fjárhagsstaða hennar komið í ljós. Hún hafi í viðtali við félagsráðgjafa, vegna umsóknar um styrk til greiðslu áfengismeðferðar, greint frá fjárhagsstöðu sinni og veikindum. Þá hafi hún greint frá því að hún búi ekki við neinn stuðning frá fjölskyldu sinni. Kærandi bendir á að greinargerð félagsráðgjafa sé notuð sem rök fyrir synjun en þar sé ekki greint frá líkamlegum veikindum hennar, þrátt fyrir að hún hafi lýst þeim ítarlega. Þá sé ekki farið rétt með mánaðarleg útgjöld hennar en þau notuð sem forsenda fyrir því að hún hafi nægilegt svigrúm til að greiða umbeðinn styrk sjálf. Kærandi telur því að synjunin hafi verið byggð á röngum upplýsingum og meðferð málsins hafi verið ábótavant.


III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda. Tekið er fram að í a-lið 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg komi fram að heimilt sé að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið sé að veita markvissan stuðning. Aðstoðin miði að því að viðhalda árangri sem hafi náðst með stuðningsvinnu. Skilyrði sé að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.

Byggt er á því af hálfu Reykjavíkurborgar að ákvæði 27. gr. reglnanna sé heimildarákvæði sem beri að nota í undantekningartilfellum. Þau viðmið hafi mótast varðandi a-lið 27. gr. reglnanna að aðstoð skuli veita þegar verið sé að vinna markvissa stuðningsvinnu með einstaklingi. Í þeim tilvikum beri að líta til þeirrar vinnu sem verið hafi í málum umsækjanda undanfarin ár og sé tilgangur aðstoðarinnar að koma fólki úr bráðum vanda og koma í veg fyrir að sá árangur, sem hafi náðst í vinnu með málefni umsækjanda, glatist.

Í greinargerð frá félagsráðgjafa þjónustumiðstöðvar komi fram að kærandi hafi undanfarið ár verið í reglulegu sambandi við félagsráðgjafa á þjónustumiðstöð vegna umsókna um fjárhagsaðstoð og vegna húsnæðismála. Ekki sé unnt að líta svo á að verið sé að veita markvissa stuðningsvinnu í máli kæranda. Þá hafi einnig komið fram að kærandi hafi þegar lokið þeirri meðferð sem óskað hafi verið eftir styrk fyrir og því sé styrkurinn ekki til þess fallinn að koma kæranda úr bráðum vanda eða koma í veg fyrir að árangur kæranda glatist.

Með hliðsjón af framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að skilyrði 27. gr. reglnanna væru ekki uppfyllt og því hafi synjun um styrk verið staðfest.


IV. Niðurstaða

Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk að fjárhæð 60.000 kr., til greiðslu áfengismeðferðar, á grundvelli a-liðar 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 27. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um sérstaka aðstoð vegna stuðningsvinnu og/eða annarra sérstakra aðstæðna. Samkvæmt a-lið 27. gr. er heimilt að veita sérstaka aðstoð í málum þar sem verið er að veita markvissan stuðning. Aðstoðin miðar að því að viðhalda árangri sem náðst hefur með stuðningsvinnu. Skilyrði er að umsækjandi eigi í miklum félagslegum erfiðleikum.

Umsókn kæranda var synjað á grundvelli þess að aðstæður hennar hafi ekki fallið að skilyrðum a-liðar 1. mgr. 27. gr. framangreindra reglna. Við meðferð kærumáls þessa hefur komið fram af hálfu Reykjavíkurborgar að ekki sé unnt að líta svo á að það sé verið að veita markvissa stuðningsvinnu í máli kæranda. Kærandi hafi þegar lokið þeirri meðferð sem óskað hafi verið eftir styrk fyrir og því sé styrkurinn ekki til þess fallinn að koma kæranda úr bráðum vanda eða koma í veg fyrir að árangur kæranda glatist. Í máli þessu er því ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi verið að veita kæranda markvissan stuðning og þá hvort árangur hafi náðst með stuðningsvinnu.

Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið í reglulegu sambandi við félagsráðgjafa á þjónustumiðstöð vegna fjárhagsaðstoðar og húsnæðismála. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst að kærandi á í miklum fjárhags- og félagslegum erfiðleikum. Að mati nefndarinnar benda gögn málsins þó ekki til þess að málefni kæranda hafi talist vera í markvissu ferli þegar hún sótti um styrk til greiðslu áfengismeðferðar. Að því virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndarinnar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði a-liðar 1. mgr. 27. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar um synjun á umsókn A um styrk að fjárhæð 60.000 kr. til greiðslu áfengismeðferðar er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

______________________________

Kári Gunndórsson

 

 

 

                                                                    

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum