Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 5/2017. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 9. mars 2017

í máli nr. 5/2017:

BL ehf.

gegn

Strætó bs. og

Yutong Eurobus ehf.

Með kæru móttekinni 16. febrúar 2017 kærir BL ehf. örútboð Strætó bs. (hér eftir vísað til sem varnaraðila) auðkennt „Samningskaup – Örútboð III. Endurnýjun strætisvagna“. Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála ógildi ákvörðun varnaraðila um að taka tilboði Yutong Eurobus ehf. í hinu kærða útboði og kærunefnd útboðsmála veiti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila. Þá er krafist málskostnaðar. Í þessum þætti málsins tekur nefndin afstöðu til kröfu kæranda um að samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

            Mál þetta lýtur að örútboði varnaraðila, svonefndu örútboði III, sem fram fór í nóvember 2016, þar sem óskað var tilboða í kaup á 5-9 strætisvögnum. Fór örútboð þetta fram á grundvelli rammasamnings nr. 13002 sem gerður var í kjölfar rammasamningsútboðs sem fram fór í nóvember 2013. Í mars 2015 og júní 2016 höfðu farið fram sams konar örútboð á grundvelli sama rammasamnings, auðkennd örútboð I og II. Fyrir liggur að í útboðsgögnum vegna gerðar rammasamningsins var m.a. mælt fyrir að við mat á tilboðum í örútboðum innan rammasamnings skyldi litið til þriggja þátta; líftímakostnaðar strætisvagna, sem skyldi hafa 80% vægi við mat tilboða, gæði boðinna strætisvagna, sem skyldi hafa 15% vægi, og gæði þjónustu, sem skyldi hafa 5% vægi. Af gögnum málsins verður ráðið að skilmálum rammasamnings hafi verið breytt nokkuð í örútboðum þeim sem framkvæmd hafi verið í kjölfarið, einkum þó við örútboð II, þar sem m.a. vægi valforsendna í matslíkani var breytt. Í gögnum málsins kemur fram að breytingar þessar hafi verið kynntar rammasamningshöfum með minnisblöðum ráðgjafa varnaraðila og kærandi hafi tekið þátt í þessum örútboðum. Þá liggur fyrir að 7. febrúar sl. hafi varnaraðili tilkynnt að hann hygðist ganga til samninga við Yutong Eurobus ehf. í hinu kærða örútboði, en fyrirtækið hafði fengið hæstu einkunn við mat á tilboðum í útboðinu.

            Kærandi byggir að meginstefnu á því að við hið kærða útboð hafi útboðsskilmálum rammasamningsins verið breytt umfram það sem heimilt sé samkvæmt lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup og skilmálum rammasamningsins. Þá hafi jafnræði bjóðenda í örútboði III verið raskað, þar sem ekki hafi verið gerðar sömu kröfur til þeirra bjóðenda sem skiluðu tilboði fyrir strætisvagna knúna díselolíu annars vegar og hins vegar til þeirra sem skiluðu tilboði fyrir vagna sem gangi fyrir raforku.

 Niðurstaða

            Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup skal kæra borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Af gögnum málsins verður ráðið að skilmálum rammasamnings hafi verið breytt í örútboðum II og III sem fram fóru í júní og nóvember 2016. Athugasemdir í kæru lúta að þeim breytingum sem gerðar voru í örútboði II. Gögn málsins bera með sér að kærandi hafi tekið þátt í því útboði og að hinir breyttu skilmálar þess hafi verið kynntir honum með minnisblaði ráðgjafa varnaraðila sem var sent kæranda 1. júní 2016. Verður því að miða við kæranda hafi þá mátt vera ljósar þær breytingar sem hann gerir nú athugasemdir við. Kærufrestur vegna þessara breytinga á skilmálum var því í löngu liðinn við móttöku kæru í máli þessu 16. febrúar sl. Þá liggur fyrir að kæranda bárust gögn frá varnaraðila 12. janúar 2017 sem hann telur sýna að gerðar séu mismunandi kröfur til bjóðenda díselbifreiða annars vegar og rafmagnsbifreiða hins vegar. Var kærufrestur vegna þessara atriða því einnig liðinn þegar kæra var móttekin. Verður því ekki fallist á kröfu kæranda um að hin kærðu innkaup verði stöðvuð um stundarsakir, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um opinber innkaup.

Ákvörðunarorð:

Kröfu kæranda, BL ehf., um að örútboð varnaraðila, Strætó bs., auðkennt „Samningskaup-Örútboð III, Endurnýjun strætisvagna“, verði stöðvað um stundarsakir, er hafnað.

 Reykjavík, 9. mars  2017

                                                                            Skúli Magnússon

                                                                            Ásgerður Ragnarsdóttir

                                                                            Stanley Pálsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum