Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 385/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 385/2018

Þriðjudaginn 8. janúar 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Björn Jóhannesson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 31. október 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. október 2018, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun þann 19. júlí 2018. Vinnumálastofnun óskaði eftir frekari gögnum frá kæranda og bárust þau stofnuninni 17. september 2018. Meðal gagna var vinnuveitandavottorð frá síðasta vinnuveitanda kæranda þar sem fram kemur að kæranda hafi verið sagt upp störfum vegna brota í starfi. Með bréfi, dags. 21. september 2018, óskaði Vinnumálastofnun eftir skriflegri afstöðu kæranda á ástæðum uppsagnar. Skýringar bárust ekki. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 17. október 2018, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og bótaréttur væri metinn 91%. Með vísan til starfsloka hans hjá síðasta vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi sendi Vinnumálastofnun umbeðnar skýringar þann 19. október 2018 og var mál hans því tekið fyrir að nýju. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 5. nóvember 2018, var kæranda tilkynnt að skýringar hans á ástæðum starfslokanna teldust ekki gildar í skilningi laga nr. 54/2006. Fyrri ákvörðun stæði því óbreytt.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. október 2018. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 14. nóvember 2018, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. nóvember 2018, var greinargerðin send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi krefst þess að fá greiddar þær atvinnuleysisbætur sem hann eigi rétt á, samstundis og án tafar. Kærandi sé búinn að vera launalaus í fimm mánuði og eftir að hafa skilað öllum gögnum þá sé hann settur á tveggja mánaða bið þar sem hann hafi ekki gefið nægilega skýringu á starfslokum síðasta vinnustaðar. Kærandi hafi veitt þær upplýsingar að honum hafi verið sagt upp vegna lélegrar mætingar. Ef það sé ekki nægileg ástæða hefði verið hægt að óska eftir nánari upplýsingum í stað þess að fara fram á nýtt svar við sömu spurningu. Kærandi geti ekki gefið betri lýsingu á starfslokum hans þar sem engin önnur sé til staðar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að tilgangur laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Hið sama gildi um þann sem missi starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur eigi sök á. Í greinargerð með frumvarpi því, sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar, sé það áréttað að eitt af markmiðum vinnumarkaðskerfisins sé að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerðinni sé vísað til þess að það væri erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki ákvörðun þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi starf sitt, séu gildar þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Því hafi verið lagt til að lagareglan væri matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri því að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Ljóst sé að kæranda hafi verið sagt upp hjá síðasta vinnuveitanda vegna brota í starfi. Í vottorði vinnuveitanda komi fram að honum hafi verið sagt upp vegna lélegrar mætingar. Sjálfur segi kærandi að honum hafi verið sagt upp störfum vegna brota í starfi og að hann hafi alltaf mætt seint til vinnu. Við mat á því hvort umsækjandi um atvinnuleysistryggingar skuli sæta viðurlögum á grundvelli 54. gr. laga nr. 54/2006 beri stofnuninni að líta til þess hvort viðkomandi hafi misst starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur eigi sök á. Uppsögn kæranda megi rekja til brota á starfsskyldum hans gagnvart vinnuveitanda. Af fyrirliggjandi gögnum málsins sé ljóst að kæranda hafi verið sagt upp vegna þess að hann hafi ekki mætt til vinnu á réttum tíma og honum hafi verið ljóst hver væri ástæða uppsagnar. Að mati Vinnumálastofnunar hafi kærandi mátt gera sér grein fyrir því að háttsemi hans myndi leiða til brottvikningar úr starfi og að hann hafi misst starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur hafi átt sök á, sbr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Því beri honum að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kæranda var sagt upp störfum hjá síðasta vinnuveitanda sínum en ágreiningur málsins lýtur að því hvort hann hafi sjálfur átt sök á uppsögninni. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar kemur fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir á því hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Í vottorði vinnuveitanda, dags. 17. september 2018, kemur fram að kæranda hafi verið sagt upp störfum vegna brota í starfi. Í skýringum kæranda kemur fram að honum hafi verið sagt upp störfum vegna lélegrar mætingar.

Eins og fram hefur komið er ákvörðun um að umsækjandi skuli sæta biðtíma íþyngjandi ákvörðun. Að mati úrskurðarnefndarinnar verður því að gera þær kröfur að fyrirliggjandi gögn bendi eindregið til þess að rétt sé að beita því úrræði vegna atvika sem umsækjandi á sjálfur sök á. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur ljóst að kæranda hafi verið sagt upp störfum sökum dræmrar mætingar. Að mati úrskurðarnefndarinnar hefði kæranda mátt vera ljóst að honum yrði sagt upp störfum ef hann mætti ekki til vinnu á umsömdum tíma. Það er því álit úrskurðarnefndar velferðarmála að kærandi hafi misst starf sitt af ástæðum sem hann bar sjálfur ábyrgð á. Að því virtu átti kærandi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 17. október 2018, um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum