Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 38/2013

Þriðjudaginn 21. janúar 2014


A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

 

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Haukur Guðmundsson hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 11. september 2013 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 10. september 2013. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem kynnt var með bréfi, dags. 21. mars 2013, þar sem hann var krafinn um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar frá Fæðingarorlofssjóði ásamt viðbættu álagi.

Fyrir liggur að þann 27. mars 2013, eftir að hin kærða ákvörðun var tekin, sendi kærandi Fæðingarorlofssjóði tölvupóst sem innihélt frekari skýringar hans vegna málsins. Með bréfi, dags. 3. apríl 2013, tilkynnti Fæðingarorlofssjóður kæranda að þessar skýringar þættu ekki veita tilefni til að breyta ákvörðuninni.

Með bréfi, dags. 13. september 2013, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 24. október 2013. Greinargerð Fæðingarorlofssjóðs var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 24. október 2013, og honum gefið færi á að koma að athugasemdum. Engar frekari athugasemdir bárust.  

Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), er hlutverk úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála að kveða upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli ffl. Í 1. mgr. 6. gr. ffl. segir að kæra skuli berast skriflega innan þriggja mánaða frá því aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt 4. mgr. 6. gr. ffl. skal um málsmeðferð fara eftir ákvæðum stjórnsýslulaga að öðru leyti en því sem fram kemur í ffl.

Með hliðsjón af framangreindu, sbr. einnig 8. gr. stjórnsýslulaga, er ljóst að þriggja mánaða kærufrestur vegna framangreindrar ákvörðunar Fæðingarorlofssjóðs, dags. 27. mars 2013, var runnin út er kæra barst, og skiptir þá ekki máli hvort miðað er við þann dag eða 3. apríl 2013 þegar sjóðurinn hafnaði því að hrófla við ákvörðuninni á grundvelli tölvupósts kæranda og þeirra skýringa er þar komu fram.

Af framangreindu leiðir að úrskurðarnefndinni ber að vísa kærunni frá enda er hvorki að sjá að afsakanlegar ástæður liggi að baki því að kæran hafi ekki borist fyrr né að aðrar veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Málinu er því vísað frá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Kæru A er vísað frá úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála.

 

Haukur Guðmundsson

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum