Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 39/2011

Föstudaginn 13. apríl 2012

A

gegn

Vinnumálastofnun-Fæðingarorlofssjóði

Úrskurður

Mál þetta úrskurða Jóna Björk Helgadóttir hdl., Gunnlaugur Sigurjónsson læknir og Heiða Gestsdóttir lögfræðingur.

Þann 13. desember 2011 barst úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála kæra A, dags. 12. desember 2011. Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar-Fæðingarorlofssjóðs (hér eftir nefndur Fæðingarorlofssjóður) sem tilkynnt var með bréfi, dags. 6. desember 2011, um að endurkrefja kæranda um meinta ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði fyrir apríl 2011 þar sem hún fékk greidd orlofslaun og laun vegna forfallakennslu á sama tíma og hún þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu Y. apríl 2010.

Með bréfi, dags. 14. desember 2011, óskaði úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála eftir greinargerð Fæðingarorlofssjóðs sem barst með bréfi, dags. 10. janúar 2012.

Greinargerðin var send kæranda til kynningar með bréfi, dags. 12. janúar 2012, og henni gefinn kostur á að koma að athugasemdum. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

I.

Sjónarmið kæranda.

Kærandi mótmælir þeirri ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs sem henni var send með greiðsluáskorun þann 6. desember vegna hugsanlegrar ofgreiðslu úr sjóðnum.

Kærandi telur að samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hafi fengið frá Fæðingarorlofssjóði hafi breytingar hennar á tilhögun fæðingarorlofs síns verið í lagi á þeim tíma enda hafi hún farið eftir fyrirframgefnum forsendum. Einungis hafi verið lögð fyrir hana sú forsenda að fara ekki yfir 50% starfshlutfall. Ef kærandi færi yfir 50% þá þyrfti hún að tilkynna Fæðingarorlofssjóði þá breytingu.

Kærandi bendir á að samkvæmt upplýsingum starfsmanns Fæðingarorlofssjóðs hafi þessar forsendur breyst eftir að Alþingi breytti lögum haustið 2011. Þessi lagabreyting hafi verið afturvirk og telur kærandi að þar sem hennar mál hafi farið í gegnum Fæðingarorlofssjóð í apríl 2011 þá hafi forsendur hennar verið allt aðrar. Kærandi telur að brotið hafi verið á rétti hennar með því að láta hana gjalda fyrir lagabreytingar sem lögfestar voru nokkrum mánuðum eftir að mál hennar fór í gegnum Fæðingarorlofssjóð.

Kærandi bendir á að hún hefði ekki breytt fæðingarorlofi sínu, eins og hún gerði, ef hún hefði vitað að þessi lög yrðu lögfest. Kærandi hafi einungis breytt fæðingarorlofi sínu til að liðka til fyrir vinnuveitanda sem var í vandræðum með starfsmannahald sitt.

 

II.

Sjónarmið Fæðingarorlofssjóðs.

Af hálfu Fæðingarorlofssjóðs kemur fram að sjóðurinn hafi með bréfi til kæranda, dags. 20. nóvember 2011, vakið athygli kæranda á því að stofnunin væri með til meðferðar mál vegna hugsanlegrar ofgreiðslu frá Fæðingarorlofssjóði fyrir apríl 2011 þar sem hún fékk greidd orlofslaun og laun vegna forfallakennslu á sama tíma og hún þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði með barni fæddu Y. apríl 2010. Með bréfinu hafi verið óskað eftir launaseðli fyrir apríl 2011 ásamt útskýringum frá vinnuveitanda og útskýringum og andmælum kæranda ásamt öðru því sem skýrt gæti málið.

Staðfesting hafi borist frá kæranda, ódagsett, staðfesting frá vinnuveitanda kæranda, dags. 23. nóvember 2011, launaseðill fyrir apríl 2011, tvær vinnuskýrslur og útreikningur á fæðingarorlofi grunnskólakennara sem dreifa orlofsrétti á meira en sjö mánuði eða hætta. Í kjölfarið hafi kæranda verið send greiðsluáskorun, dags. 6. desember 2011, ásamt sundurliðun á ofgreiðslu þar sem hún hafi verið krafin um endurgreiðslu útborgaðrar fjárhæðar fyrir apríl 2011 ásamt 15% álagi. Litið hafi verið svo á, samkvæmt skrám RSK, fyrirhugaðri töku fæðingarorlofs með barni fæddu Y. apríl 2010 og innsendum gögnum, að kærandi hafi fengið ofgreitt úr Fæðingarorlofssjóði fyrir apríl 2011 skv. 9. mgr. 13. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof (ffl.), sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008, nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011, sbr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að skv. 1. mgr. 7. gr. ffl. sé fæðingarorlof samkvæmt lögunum leyfi frá launuðum störfum sem stofnast til við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur. Í 8. gr. sé fjallað um rétt foreldra á vinnumarkaði til fæðingarorlofs og í 10. gr. sé fjallað um tilhögun fæðingarorlofs.

Fæðingarorlofssjóður vísar í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, þar sem segir að mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi skuli nema 80% af meðaltali heildarlauna og að miða skuli við tólf mánaða samfellt tímabil sem lýkur sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kom inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljist hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeningar, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Þegar um sé að ræða greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkrasjóði stéttarfélags, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna á viðmiðunartímabili skuli tekið mið af þeim viðmiðunartekjum sem þær greiðslur hafi miðast við og aldrei skuli taka mið af hærri fjárhæð en nemur þeim viðmiðunartekjum enda þótt foreldri hafi fengið mismuninn milli þessara greiðslna og viðmiðunartekna bættan samhliða greiðslunum. Í 2. mgr. 13. gr. ffl. segi enn fremur að einungis skuli miða við meðaltal heildarlauna fyrir þá mánuði á viðmiðunartímabilinu sem foreldri hafi verið á innlendum vinnumarkaði, sbr. einnig 2. mgr. 13. gr. a. 

Samkvæmt fortakslausu ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, og úrskurðum úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í málum nr. 41/2009 og 15/2010 skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr. koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja má til breytinga á störfum foreldris. Í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004, segir orðrétt:

Talið er mikilvægt að lögin kveði skýrar á um tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði en þeim er ætlað að bæta fyrir 80% af tekjumissi foreldra er þeir leggja niður störf í fæðingarorlofi. Fái foreldri tekjutapið bætt frá vinnuveitanda er eðlilegt að það komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Þó er gert ráð fyrir að foreldri geti fengið bætur annars staðar frá fyrir þann tekjumissi er Fæðingarorlofssjóði er ekki ætlað að bæta. Kæmi sá hluti því ekki til frádráttar. Er því lagt til að kveðið verði skýrt á um að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram 20% af meðaltali heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þegar foreldri hefur hærri tekjur en hámarkstekjurnar sem lagt er til að verði miðað við skv. 3. mgr. þá er gert ráð fyrir að hærri greiðslur en sem nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr sjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til tiltekinna breytinga sem geta orðið á tekjum foreldra á þeim tíma sem líður frá því að viðmiðunartímabili lýkur og fram til upphafs fæðingarorlofs foreldris og geta talist vera í samræmi við það sem almennt tíðkast á íslenskum vinnumarkaði. Með þessum hætti er verið að undirstrika tilgang greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem er aðallega ætlað að gera foreldrum kleift að leggja niður launuð störf í fæðingarorlofi án þess að fjárhagsleg hagnaðarsjónarmið liggi þar að baki. Er með þessu enn fremur lögð rík áhersla á að foreldrar leggi sannanlega niður launuð störf á þeim tíma er þeir nýta sér rétt sinn samkvæmt lögunum.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að í athugasemdum með 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, segir orðrétt:

Lögin um fæðingar- og foreldraorlof gera ráð fyrir að allar greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru umfram mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris komi til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóðnum. Þó er heimilt að taka tillit til ákveðinna breytinga á launakjörum foreldra skv. 9. mgr. 13. gr. laganna. Þykir mikilvægt að tekið sé fram að eingöngu sé verið að miða við greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar eru fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ástæðan er einkum sú að foreldrar kunna að eiga rétt á eingreiðslum frá vinnuveitendum á ákveðnum tíma árs sem koma til framkvæmda meðan foreldri er í fæðingarorlofi en er ætlað fyrir lengra tímabil en nemur fæðingarorlofstíma foreldris. Dæmi um slíkar greiðslur eru bónusgreiðslur sem koma til framkvæmda við árslok en miðast við frammistöðu starfsmanns eða velgengni fyrirtækis á hluteigandi ári.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að í 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008, kemur fram hvaða laun skuli telja með við útreikning á meðaltali heildarlauna. Samkvæmt ákvæðinu skuli telja til launa hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald sem og greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, greiðslur úr Atvinnuleysistryggingasjóði, sjúkra- og slysadagpeninga, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga, bætur frá tryggingafélagi vegna tímabundins atvinnutjóns eða tekjutengdar greiðslur skv. III. kafla laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna, sbr. a–e-liði 2. mgr. 13. gr. a. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, sé stofn til tryggingagjalds allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld eru skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt. Í 7. og 8. gr. laga um tryggingagjald sé að finna frekari upptalningu á því hvað teljist til gjaldstofns tryggingagjalds skv. 6. gr. laganna og í 9. gr. sé upptalning á því hvaða greiðslur séu undanþegnar tryggingagjaldi. Við mat á því hvaða greiðslur vinnuveitenda megi fara með og hvaða greiðslur megi ekki fara með greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði sé því nauðsynlegt að hafa til hliðsjónar hvaða greiðslur það séu sem sjóðurinn telji með þegar fundið er út meðaltal heildarlauna foreldris.

Í 15. gr. a. ffl., sbr. 6. gr. laga 90/2004, er fjallað um leiðréttingar á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í 2. mgr. kemur fram að hafi foreldri fengið hærri greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en því bar samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri foreldri að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi foreldri rök fyrir því að því verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Á viðmiðunartímabili kæranda, skv. 2. mgr. 13. gr. ffl., hafi viðmiðunarlaun hennar verið X kr. á mánuði en frá því að viðmiðunartímabili lauk og fram að fæðingu barnsins hafi þau lækkað í X kr. Miðað hafi verið við laun kæranda á viðmiðunartímabili skv. 2. mgr. 13. ffl. henni til hagsbóta við útreikning á hugsanlegri ofgreiðslu.

Við yfirferð málsins á kærustigi hafi verið ákveðið að kalla eftir frekari upplýsingum frá starfsmannahaldi B um laun kæranda í apríl 2011. Samkvæmt ódagsettri staðfestingu frá kæranda, staðfestingu frá vinnuveitanda, dags. 23. nóvember 2011, og sundurliðuðum launaseðli fyrir apríl 2011 sem hafi borist frá starfsmannahaldi B á kærustigi hafi verið ljóst að hluti launa kæranda í apríl 2011 sé vegna mars 2011. Hafi þau laun verið dregin frá við útreikning á ofgreiðslu til kæranda. Jafnframt hafi verið ákveðið að fella niður 15% álag á kæranda þar sem af gögnum málsins hafi mátt ráða að henni verði eigi kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Fæðingarorlofssjóðs. Hafi endurkrafa á kæranda verið lækkuð sem þessu nemur. Eftir hafi staðið að kærandi hafi fengið greidd orlofslaun fyrir tímabilið 1.–14. apríl, laun fyrir forfallakennslu tímabilið 1.–8. apríl og hefðbundin vinnulaun dagana 15.–30. apríl, alls X kr. sem hafi verið sú fjárhæð sem tekið hafi verið mið af við útreikning á ofgreiðslu til kæranda, sbr. nýja greiðsluáskorun sem send hafi verið kæranda ásamt sundurliðun á ofgreiðslu, dags. 10. janúar 2012.

Fæðingarorlofssjóður bendir á að skv. 1. gr. orlofslaga, nr. 30/1987, eigi allir þeir sem starfi í þjónustu annarra gegn launum, hvort sem þau séu greidd í peningum eða öðrum verðmætum, rétt á orlofi og orlofslaunum. Í 7. gr. orlofslaga er fjallað um rétt launþega til orlofslauna, hvernig þau eru reiknuð út og hvenær orlofslaun skuli greiða. Í athugasemdum með 7. gr. orlofslaga segir: „Í 7. gr. frumvarpsins felst að allur réttur til launa í orlofi verður í formi orlofslauna sem greiðast af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku, nema til ráðningarslita komi, sbr. 8. gr.“ Fæðingarorlofssjóður telur að samkvæmt þessu virðist meginreglan vera sú að greiða eigi orlofslaun samkvæmt orlofslögum við upphaf orlofstöku. Ekki verði því annað séð en orlofslaunum sé ætlað að mæta því tímabili sem töku orlofs sé ætlað að standa yfir alveg eins og greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði er ætlað að mæta þeim tíma sem foreldri er í fæðingarorlofi. Ekki sé því hægt að líta svo á að heimilt sé að greiða orlofslaun skv. 7. gr. orlofslaga á sama tíma og fyrir sama tímabil og foreldri er í fæðingarorlofi og fær greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði, sbr. 9. mgr. 13. gr. og 2. mgr. 15. gr. a ffl. og til dæmis úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála í málum nr. 20 og 23/2011.

Samkvæmt öllu framangreindu hafi Fæðingarorlofssjóður því ofgreitt kæranda X kr. útborgað. Ekki sé gerð krafa um 15% álag. Alls sé því gerð krafa um að kærandi endurgreiði Fæðingarorlofssjóði X kr., sbr. greiðsluáskorun til hennar, dags. 10. janúar 2012, og sundurliðun á ofgreiðslu.

 

III.

Niðurstaða.

Kærð er ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja kæranda um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fæðingar barns hinn Y. apríl 2010.

Í hinni kærðu ákvörðun, sbr. nýja greiðsluáskorun, dags. 10. janúar 2012, er á því byggt að kærandi hafi fengið orlofslaun greidd frá vinnuveitanda á sama tíma og hún þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Í hinni nýju greiðsluáskorun endurkrefur Fæðingarorlofssjóður kæranda um X kr. án 15% álags vegna aprílmánaðar 2011.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. ffl. er fæðingarorlof samkvæmt lögunum leyfi frá launuðum störfum sem stofnast við fæðingu, frumættleiðingu barns yngra en átta ára eða töku barns yngra en átta ára í varanlegt fóstur.

Samkvæmt greiðsluáætlun, dags. 20. apríl 2010, voru meðaltekjur kæranda á viðmiðunartímabili X kr. og mánaðarleg greiðsla úr Fæðingarorlofssjóði miðað við 100% fæðingarorlof samkvæmt því X kr. Í fyrrnefndri greiðsluáætlun er gert ráð fyrir 27% greiðslu í apríl 2010, 50% greiðslu í maí 2010 til mars 2011 og 23% greiðslu í apríl 2011.

Vinnuveitandi kæranda hefur staðfest að kærandi var í 27% fæðingarorlofi í apríl 2010, og 50% í maí 2010 til mars 2011. Þann mánuð sem fæðingarorlofi kæranda átti að ljúka, í apríl 2011, hafi hún samkvæmt sundurliðun á launaseðli fengið uppgert orlof fyrir tímabilið 1.–14. apríl, laun fyrir forfallakennslu tímabilið 1.–8. apríl og hefðbundin vinnulaun fyrir tímabilið 1.–14. apríl, alls X kr. Er þetta í samræmi við staðgreiðsluskrá RSK. Líkt og fyrr greinir fékk kærandi jafnframt 23% greiðslu frá Fæðingarorlofssjóði í apríl 2011.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 8. gr. laga nr. 74/2008 og a-lið 16. gr. laga nr. 120/2009, eins og ákvæðið hljóðaði við fæðingu barns kæranda þann Y. apríl 2010, skyldi mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsmanns í fæðingarorlofi nema 80% af meðaltali heildarlauna að fjárhæð 200.000 kr. og 75% af þeirri fjárhæð meðaltals heildarlauna sem umfram er og skyldi miða við tólf mánaða samfellt tímabil sem lauk sex mánuðum fyrir fæðingardag barns eða þann dag sem barn kemur inn á heimili við frumættleiðingu eða töku í varanlegt fóstur. Til launa teljast hvers konar laun og aðrar þóknanir samkvæmt lögum um tryggingagjald. Samkvæmt 1. málsl. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, mynda allar tegundir launa eða þóknana fyrir starf, hverju nafni sem nefnist, sem skattskyld eru skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, stofn til tryggingagjalds. Samkvæmt 1. tölul. 7. gr. laga um tryggingagjald telst orlofsfé og greiðslur fyrir ónotað orlof til gjaldstofns til tryggingagjalds.

Samkvæmt ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl., sbr. 4. gr. laga nr. 90/2004 og f-lið 8. gr. laga nr. 74/2008 (nú 10. mgr. 13. gr. laganna, sbr. 3. gr. laga nr. 136/2011), skulu greiðslur frá vinnuveitanda til foreldris í fæðingarorlofi sem eru hærri en nemur mismun greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og meðaltals heildarlauna foreldris skv. 2. eða 5. mgr. 13. gr., koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.Þó er heimilt að taka tillit til kjarasamningsbundinna launahækkana, annarra kjarasamningsbundinna greiðslna og launabreytinga sem rekja má til breytinga á störfum foreldris. Með 8. gr. breytingalaga nr. 74/2008 var sérstaklega bætt inn í ákvæði 9. mgr. 13. gr. ffl. málslið um að eingöngu greiðslur frá vinnuveitanda sem ætlaðar séu fyrir það tímabil sem foreldri er í fæðingarorlofi skuli koma til frádráttar greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði.

 

Í 7. gr. orlofslaga, nr. 30/1987, er fjallað um rétt launþega til orlofslauna, hvernig þau eru reiknuð út og hvenær orlofslaun skuli greiða. Í athugasemdum með frumvarpi til 7. gr. orlofslaga segir að orlofslaun greiðist af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku nema til ráðningarslita komi, sbr. 8. gr. Þannig er meginreglan sú að orlofslaun samkvæmt orlofslögum séu greidd í tvenns konar tilvikum, annars vegar við upphaf orlofstöku og hins vegar við starfslok. Í þeim tilvikum sem starfsmenn fá orlofsgreiðslur frá vinnuveitendum á sama tíma og þeir eru í fæðingarorlofi hefur úrskurðarnefndin talið að vegna ákvæðis 7. gr. orlofslaga verði að líta svo á að starfsmennirnir séu í orlofi en ekki fæðingarorlofi, enda mælir ákvæðið fyrir um að orlofslaun greiðist af launagreiðanda til launþega við upphaf orlofstöku.

Með vísan til framangreinds verður því að líta svo á að kærandi hafi fengið greidd of há laun frá vinnuveitanda sínum fyrir sama tímabil og hún þáði greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. 

Rétt er að taka fram að með breytingarlögum nr. 136/2011 kom inn svohljóðandi ákvæði í 4. mgr. 33. gr. ffl: „Foreldri sem nýtur orlofslauna eða greiðslna vegna starfsloka getur ekki nýtt sér rétt sinn til fæðingarstyrks eða greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum þessum á sama tímabili og þær greiðslur eiga við um.“ Lög nr. 136/2011 voru samþykkt á Alþingi 17. september 2011 og er útgáfudagur þeirra í Stjórnartíðindum 30. sama mánaðar. Samkvæmt 16. gr. laganna taka ákvæði þeirra einungis til foreldra barna sem fæðast, eru ættleidd eða eru tekin í varanlegt fóstur eftir gildistöku þeirra. Barn kæranda er eins og fyrr greinir fætt Y. apríl 2010. Af þessum sökum tekur ákvæði 4. mgr. 33. gr. ffl., sbr. 14. gr. laga nr. 136/2011, ekki til tilviks kæranda. Þegar af þessari ástæðu kemur málsástæða kæranda um ætlaða afturvirkni laga nr. 136/2011ekki til nánari skoðunar.

Með vísan til alls framangreinds verður hin kærða ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs staðfest, miðað við þær breytingar sem voru gerðar á henni með nýrri greiðsluáskorun þann 10. janúar 2012.

Benda má á að í niðurstöðu nefndarinnar í máli þessu felst að kærandi hafi verið í orlofi, og þegið orlofsgreiðslur, hluta af aprílmánuði 2011. Kann því að vera að kærandi hafi ekki fullnýtt rétt sinn til fæðingarorlofs með barni fæddu Y. apríl 2010. Samkvæmt 2. mgr. 8. gr. ffl., sbr. 17. gr. laga nr. 70/2009, fellur réttur kæranda til fæðingarorlofs með því barni niður Y. apríl 2013.

 

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um að endurkrefja A um greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt breyttri greiðsluáskorun, dags. 10. janúar 2012, samtals Y kr., er staðfest.

 

 

Jóna Björk Helgadóttir

Heiða Gestsdóttir

Gunnlaugur Sigurjónsson




Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum