Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 381/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 381/2017

Fimmtudaginn 14. desember 2017

AgegnVinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 17. október 2017, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. september 2017, um innheimtu ofgreiddra bóta.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun á árinu 2014 eða allt til apríl 2014 þegar bótaréttur hennar var fullnýttur. Á tímabilinu janúar til mars 2014 var kærandi í hlutastarfi og fékk greidd laun vegna þeirrar vinnu samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleysisbætur kæranda voru endurreiknaðar í samræmi við þær tekjur og henni tilkynnt um ofgreiðslu á „Mínum síðum“ hjá Vinnumálastofnun og greiðsluseðlum stofnunarinnar. Þegar bótatímabili kæranda lauk í apríl 2014 nam skuld hennar 58.278 kr. Í september 2017 var skuld kæranda enn ógreidd og með ákvörðun, dags. 26. september 2017, var farið fram á að kærandi myndi endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. október 2017. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 1. nóvember 2017. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. nóvember 2017, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda 12. nóvember 2017 og voru þær sendar Vinnumálastofnun til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. nóvember 2017. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi fengið tímabundna afleysingu hjá B í mars 2014. Vinnumálastofnun tilgreini hins vegar að hún hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur í febrúar 2014. Kærandi tekur fram að henni hafi verið ráðlagt að fá 30% atvinnuleysisbætur á móti vinnu en aldrei hafi hún verið upplýst um þann möguleika að til endurgreiðslu gæti komið. Kærandi telur að mistök hafi átt sér stað í ráðgjöf og upplýsingagjöf af hálfu Vinnumálastofnunar og fer því fram á að endurkrafan verði felld niður að fullu, enda langur tími liðinn.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar kemur fram að einungis liggi fyrir einn launaseðill frá B, dags. 31. mars 2014, en hann sé fyrir tímabilið 27. janúar til 10. eða 11. mars 2014. Þann 3. mars 2014 hafi kærandi greint frá því að hún væri í afleysingu til 11. mars og því geti ekki verið að Vinnumálastofnun hafi fengið tilkynningu um að hún hafi lokið störfum 10. febrúar. Að mati kæranda hafi hún tilkynnt allt samkvæmt bestu vitund en mikið ósamræmi sé í gögnum málsins sem Vinnumálastofnun hefði átt að bregðast við. Kærandi geti ekki betur séð en að mistök hafi átt sér stað í skráningu gagna og skort hafi á að samræma innsend gögn á þessu tímabili. Þau mistök liggi ekki hjá kæranda.

Kærandi gerir alvarlega athugasemd við þau persónugögn sem Vinnumálastofnun hafi sent til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna málsins. Samskiptasaga kæranda og Vinnumálastofnunar nái aftur til ársins 1997 en það sé á engan hátt nauðsynlegt að láta þau gögn fylgja með til nefndarinnar.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fengið atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni á árinu 2014 eða allt til apríl 2014 þegar hún hafi fullnýtt bótarétt sinn. Í lok janúar 2014 hafi kærandi óskað eftir upplýsingum um tilkynningu á hlutastörfum og tilkynnt í kjölfarið um 70% hlutastarf. Tekjuáætlun kæranda hafi hljóðað upp á 70.000 kr. fyrir janúar 2014. Í síðari samskiptum á milli kæranda og Vinnumálastofnunar hafi komið fram að hlutastarf hennar myndi vara til 11. mars 2014 í 70% starfshlutfalli og að laun væru um 300.000 kr. fyrir fullt starf. Í byrjun mars 2014 hafi stofnuninni borist vinnuveitendavottorð frá B með þeim upplýsingum að kærandi hefði lokið störfum 10. febrúar. Áætlaðar tekjur kæranda í febrúar hafi ekki verið uppfærðar af þeim sökum og því hafi kærandi fengið greiddar fullar atvinnuleysisbætur frá 10. febrúar til loka þess mánaðar. Í samkeyrslu við staðgreiðsluskrá Ríkisskattstjóra hafi komið fram að kærandi hafi haft tekjur að fjárhæð 472.036 kr. í febrúar. Í þeim mánuði hefðu greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda tekið mið af hlutastarfi kæranda og 70.000 kr. tekjuáætlun. Greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda hafi því ekki verið í neinu samræmi við rauntekjur hennar. Kærandi hafi því fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur í febrúar 2014 og henni tilkynnt um það á „Mínum síðum“ hjá Vinnumálastofnun þann 1. apríl 2014 og í greiðsluseðli stofnunarinnar sama dag.

Vinnumálastofnun tekur fram að í málinu liggi fyrir að kærandi hafi fengið launagreiðslur fyrir hlutastarf sitt samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Sökum þess að tekjuáætlun kæranda hjá Vinnumálastofnun hafi ekki verið í samræmi við rauntekjur hennar hafi greiðslur til hennar verið skertar afturvirkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Vegna þessa hafi myndast skuld í greiðslukerfi stofnunarinnar sem kæranda beri að endurgreiða í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Samkvæmt því ákvæði sé stofnuninni skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær sem hafi verið ofgreiddar. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 sé sérstaklega áréttað að leiðréttingin eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslu hafi því ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Í málinu liggi fyrir að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur sem henni beri að endurgreiða en ekki hafi verið lagt 15% álag á skuld hennar. Þá bendir Vinnumálastofnun á að fyrningarfrestur á kröfum um ofgreiddar atvinnuleysisbætur sé fjögur ár, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda.

IV. Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta að fjárhæð 58.278 kr.

Í 1. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Í 2. gr. laganna kemur fram að markmið þeirra sé að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt.

Í 35. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um tilhögun greiðslna atvinnuleysisbóta. Þar segir að atvinnuleysisbætur skuli greiddar fyrsta virka dag hvers mánaðar og þær skuli greiddar eftir á fyrir undanfarandi mánuð eða hluta úr mánuði þannig að miðist við fyrsta til síðasta dag viðkomandi mánaðar. Í 36. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna. Í 1. mgr. 36. gr. segir meðal annars að þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða og atvinnuleysisbætur hans eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skuli skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildi um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu og elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar.

Samkvæmt gögnum málsins fékk kærandi tekjur frá B ehf. að fjárhæð 472.036 kr. í febrúar 2014 samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta. Ljóst er að sú greiðsla hafði áhrif á fjárhæð atvinnuleysisbóta til handa kæranda, sbr. ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga nr. 54/2006 um frádrátt vegna tekna. Kærandi hefur vísað til þess að mistök hafi átt sér stað í ráðgjöf og upplýsingagjöf af hálfu Vinnumálastofnunar og farið fram á að endurkrafan verði felld niður að fullu.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. september 2017, í máli A, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum