Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 402/2017

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 402/2017

Fimmtudaginn 14. desember 2017

AgegnVinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. október 2017, kærir A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. september 2017, um innheimtu ofgreiddra bóta.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á árinu 2014. Á tímabilinu 15. maí til 30. maí 2014 fékk kærandi greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði en var ekki afskráður af atvinnuleysisskrá. Kærandi fékk því bæði greiðslur frá Vinnumálastofnun og Fæðingarorlofssjóði á sama tímabili. Þann 16. júní 2014 var kæranda tilkynnt um ofgreiddar atvinnuleysisbætur á „Mínum síðum“ hjá Vinnumálastofnun og greiðsluseðli stofnunarinnar. Skuld kæranda var skuldajafnað við síðari greiðslur atvinnuleysibóta en þegar kærandi afskráði sig af atvinnuleysisskrá þann 7. júlí 2014 nam skuld hans 56.044 kr. Í september 2017 var skuld kæranda enn ógreidd og með bréfi, dags. 26. september 2017, var farið fram á að kærandi myndi endurgreiða stofnuninni ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. október 2017. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 16. nóvember 2017. Með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi, dags. 28. nóvember 2017, og voru þær sendar Vinnumálastofnun til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann hafi fengið endurkröfu frá Vinnumálastofnun vegna ofgreiðslu í maí 2014 en honum þyki óásættanlegt að fá slíka kröfu að svo löngum tíma liðnum. Kærandi tekur fram að hann hafi óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun því til staðfestingar en einungis fengið afrit af gömlum tölvupóstum og greiðsluseðlum. Þar sem kærandi muni ekki eftir hvernig þessu máli hafi verið háttað vilji hann sjá gögn um hvernig skuldin sé til komin og upplýsingum um ástæðu þess að hann beri ábyrgð á mistökum annarra þremur og hálfu ári síðar.

III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fengið greiðslur vegna fæðingarorlofs samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta á tímabilinu 15. maí til 30. maí 2014. Kærandi hafi ekki tilkynnt um töku fæðingarorlofsins fyrir fram og því hafi myndast skuld vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta til hans. Kæranda hafi verið tilkynnt um ofgreiðsluna á „Mínum síðum“ hjá Vinnumálastofnun og í greiðsluseðlum stofnunarinnar. Skuld kæranda hafi verið skuldajafnað við síðari greiðslur atvinnuleysisbóta en þegar hann hafi afskráð sig af atvinnuleysisskrá hafi skuld hans numið 56.044 kr.

Vinnumálastofnun tekur fram að í 51. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um ósamrýmanlegar greiðslur samhliða töku atvinnuleysisbóta en þar sé meðal annars vísað til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki átt rétt á atvinnuleysisbótum á framangreindu tímabili, enda hafi hann átt rétt á greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði á þeim tíma. Þar sem greiðslur atvinnuleysistrygginga í máli kæranda hafi verið skertar afturvirkt hafi myndast skuld í greiðslukerfi stofnunarinnar sem kæranda beri að endurgreiða í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006. Samkvæmt ákvæðinu sé stofnuninni skylt að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbóta og innheimta þær sem hafi verið ofgreiddar. Í athugasemdum með ákvæðinu í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 sé sérstaklega áréttað að leiðréttingin eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslu hafi því ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Í málinu liggi fyrir að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur sem honum beri að endurgreiða en ekki hafi verið lagt 15% álag á skuld hans.

IV. Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta að fjárhæð 56.044 kr.

Í 1. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um gildissvið laganna, en þar segir að lögin gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verða atvinnulausir. Í 2. gr. laganna kemur fram að markmið þeirra sé að tryggja launamönnum eða sjálfstætt starfandi einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir eru að leita sér að nýju starfi eftir að hafa misst fyrra starf sitt.

Í 51. gr. laganna er fjallað greiðslur sem eru ósamrýmanlegar atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. ákvæðisins:

„Hver sá sem nýtur greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili.“

Samkvæmt gögnum málsins tilkynnti kærandi Vinnumálastofnun þann 15. maí 2014 að hann myndi hefja töku fæðingarorlofs og fékk samdægurs staðfestingu þess efnis að búið væri að afskrá hann af atvinnuleysisskrá. Ljóst er að það reyndist ekki rétt og fékk kærandi því greiddar atvinnuleysisbætur samhliða greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Í kjölfarið endurreiknaði Vinnumálastofnun atvinnuleysisbætur kæranda og tilkynnti honum um ofgreiddar atvinnuleysisbætur þann 16. júní 2014, bæði á „Mínum síðum“ og greiðsluseðli stofnunarinnar.

Í 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Þrátt fyrir að Vinnumálastofnun hafi greitt kæranda bætur þegar hann átti ekki rétt til þeirra hefur það ekki áhrif á þá skyldu. Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og því er ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. september 2017, í máli A, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum