Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 60/2105

ÚRSKURÐUR ÚRSKURÐARNEFNDAR UM LEIÐRÉTTINGU VERÐTRYGGÐRA FASTEIGNAVEÐLÁNA

 nr. 60/2015

 

Ár 2015, miðvikudaginn 11. mars, er tekið fyrir mál nr. 17/2015; kæra A og B, dags. 6. janúar 2015. Í málinu úrskurða Eva Dís Pálmadóttir, Ingi Tryggvason og Kristján Jónasson. Upp er kveðinn svofelldur

 

ú r s k u r ð u r :


I.

 Málavextir eru þeir að kærandi, A, sótti um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána þann 19. maí 2014 og gilti umsókn hans fyrir báða kærendur, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 35/2014, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Útreiknuð leiðréttingarfjárhæð kærenda var 0 kr. og var sú fjárhæð birt kærendum 11. nóvember 2014.

Með kæru, dags. 6. janúar 2015, hafa kærendur kært fjárhæð leiðréttingar, sbr. 9. gr. laga nr. 35/2014, og framkvæmd leiðréttingar, sbr. 11. gr. sömu laga. Í kæru er þess krafist að leiðréttingarfjárhæð verði endurskoðuð. Kærendur telja að leiðrétting að fjárhæð 2.500.000 kr. sé réttlát krafa. Í kæru kemur fram að lán kærenda hafi hækkað talsvert síðan íbúðarhúsnæði var keypt í júní 2006. Höfuðstóll lána væri 22.500.000 kr. en kærendur hafi keypt íbúðina á 23.500.000 kr. og borgað út 6.000.000 kr. Því telja kærendur að 5.000.000 kr. hafi gufað upp þrátt fyrir að þau hafi fengið um 3.100.000 kr. vegna 110% leiðréttingar á árinu 2011. 


II.

Ágreiningsefni máls þessa snýr í raun að fjárhæð leiðréttingar, sbr. 9. gr. laga nr. 35/2014. Útreiknuð leiðrétting lána samkvæmt 7. gr. laga nr. 35/2014, um leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána, er 1.498.387 kr. hjá hvorum kærenda, eða samtals 2.997.774 kr. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem ákvörðun ríkisskattstjóra um leiðréttingarfjárhæð byggist á, eru samtals 3.332.501 kr. dregnar frá útreiknaðri leiðréttingarfjárhæð lána samkvæmt 7. gr. laga nr. 35/2014, sbr. 9. gr. sömu laga. Þar af eru 3.189.099 kr. vegna lækkunar skuldar samkvæmt samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila, dags. 15. janúar 2011 ( 110% leið) og 143.402 kr. vegna sérstakra vaxtabóta.

Um frádráttarliði einstaklinga er fjallað í 8. gr. laga nr. 35/2014. Þar kemur fram í c-lið 1. mgr. að frá þeirri fjárhæð leiðréttingar sem ákvarðast samkvæmt 7. gr. laganna skuli draga m.a. lækkun skulda samkvæmt eða í tilefni af samkomulagi lánveitanda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila (110% leiðinni), dags. 15. janúar 2011, óháð því hvort sótt hafi verið sérstaklega um slíka lækkun eða hún framkvæmd að frumkvæði lánveitanda.

Nánar er fjallað um frádráttarliði í 3. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 698/2014, um samræmt verklag og viðmið við leiðréttingu verðtryggðra fasteignaveðlána. Þar segir að þeir frádráttarliðir einstaklings skv. 8. gr. laga nr. 35/2014 sem komið hafa til framkvæmda eða samkomulag verið gert um, á tímabilinu 1. janúar 2008 til samþykktardags ákvörðunar um útreikning leiðréttingar skv. 3. mgr. 10. gr. laganna dragist frá leiðréttingarfjárhæð skv. 7. gr. laga nr. 35/2014.

Ágreiningslaust virðist vera að kærendur hafi notið þeirra úrræða sem koma til frádráttar útreiknaðri leiðréttingu. Hefur því ekki verið mótmælt að niðurfærsla skulda hafi numið 3.189.099 kr., en kærendur segja í kæru að lækkun lána vegna 110% leiðar hafi verið um 3.100.000 kr. Er sú fjárhæð umfram útreiknaða leiðréttingarfjárhæð kærenda, sbr. 7. gr. laga nr. 35/2014. Kærendur virðast einkum byggja málatilbúnað sinn á því að leiðréttingarfjárhæð þeirra sé ekki í samræmi við hækkun lána þeirra. Eins og fyrr segir var útreiknuð leiðrétting samkvæmt 7. gr. laga nr. 35/2014 samtals 2.997.774 kr. Lán nr. 1 var lækkað um 3.189.099 kr., samkvæmt samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkaði um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila (110% leiðinni). Sú fjárhæð kemur til frádráttar útreiknaðri leiðréttingu lána kærenda, sbr. c-lið 8. gr. laga nr. 35/2014 og lækkun vegna sérstakrar vaxtaniðurgreiðslu að fjárhæð 143.402 kr., sbr. f-lið sömu lagagreinar.

Með vísan til framangreinds er ljóst að frádráttur frá útreiknaðri leiðréttingu vegna lækkunar láns nr. 1 hjá X banka samkvæmt samkomulagi lánveitenda á íbúðalánamarkið um verklagsreglur í þágu yfirveðsettra heimila, og vegna sérstakra vaxtabóta, er í samræmi við framangreind lagafyrirmæli sem um hana gilda. Ekki hafa af hálfu kærenda verið gerðar athugasemdir við einstaka liði útreiknings ríkisskattstjóra. Ákvörðun ríkisskattstjóra um útreikning leiðréttingarfjárhæðar, að teknu tilliti til frádráttarliða, verður ekki hnekkt. Kröfu kærenda er því hafnað. 

 

Ú r s k u r ð a r o r ð :

Kröfu kærenda er hafnað.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum