Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Atvinnuleysistryggingar%20og%20vinnumarka%C3%B0sa%C3%B0ger%C3%B0ir

Nr. 438/2018 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 438/2018

Miðvikudaginn 6. mars 2019

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Björn Jóhannesson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 10. desember 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 10. desember 2018 um að fella niður bótarétt hans í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 7. júní 2018. Þann 6. nóvember 2018 var kærandi boðaður á fund hjá Vinnumálastofnun til að skrifa undir bókunarblað fyrir námskeið á vegum stofnunarinnar og tekið var fram að um skyldumætingu væri að ræða. Með tölvupósti til Vinnumálastofnunar 7. nóvember 2018 tók kærandi fram að hann þyrfti ekki á námskeiði að halda til að finna sér vinnu og hafnaði frekari afskiptum ráðgjafa stofnunarinnar. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 9. nóvember 2018, var óskað eftir skriflegri afstöðu hans vegna höfnunar á þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Í bréfinu vakti stofnunin athygli á því að samkvæmt 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar geti sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, án gildra ástæðna, þurft að sæta biðtíma á grundvelli laganna. Engar skýringar bárust frá kæranda. Með ákvörðun 10. desember 2018 var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði frá og með 10. desember á grundvelli 58. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 10. desember 2018. Með bréfi, dags. 11. desember 2018, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 8. janúar 2019. Með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með tölvupósti 16. janúar 2019.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að Vinnumálastofnun hafi tekið ákvörðun um að beita hann ranglæti og farið illa með hans rétt til atvinnuleysisbóta. Kærandi gerir athugasemd við að það sé verið að neyða einstaklinga til að sækja námskeið sem þeir telji sig ekki þurfa. Stofnunin eigi að hafa afskipti af þeim sem ekki vilji gera neitt í sínum málum. Kærandi hafi verið virkur í atvinnuleit og sé fullviss um að finna ótímabundið starf við hæfi. Kærandi skilji ekki hvers vegna honum sé refsað fyrir að vera á fullu í atvinnuleit en hann geti sannað að hann hafi sótt um mörg störf og farið í einhver viðtöl.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að tilgangur laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi og því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Samkvæmt a-lið 13. gr. og g-lið 1. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 sé eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að viðkomandi sé virkur í atvinnuleit og í því felist meðal annars að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsúrræði komi einnig fram skylda þess tryggða til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum og mæta í viðtöl hjá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar.

Í ákvæði 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið eigi einnig við ef atvinnuleitandi mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í þeim skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki komi fram að viðkomandi hafi verið upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, á þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til og það sé gert með tölvupósti, sms sendingum eða tilkynningum á „Mínum síðum“. Í málinu liggi fyrir að kærandi hafi verið boðaður á fund hjá Vinnumálastofnun til að skrifa undir bókunarblað vegna námskeiðsins „Í leit að nýju starfi“. Óumdeilt sé að kæranda hafi verið kunnugt um boðunina og honum gert ljóst að um skyldumætingu væri að ræða. Þá hafi verið ítrekað að fjarvera hans kynni að hafa áhrif á greiðslur atvinnuleysisbóta. Þrátt fyrir það hafi kærandi ekki mætt og afþakkað frekari námskeið og þjónustu ráðgjafa Vinnumálastofnunar í tölvupósti sínum til stofnunarinnar 7. nóvember 2018. Kærandi hafi ekki gefið frekari skýringar á fjarveru sinni þegar Vinnumálastofnun hafi leitast eftir þeim þann 9. nóvember 2018 og ekki sé að finna frekari skýringar í kæru til úrskurðarnefndarinnar.

Með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sem og að tilkynna Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem verði á högum umsækjenda telji stofnunin að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram séu ekki gildar í skilningi laga nr. 54/2006. Þá hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 58. gr. laganna með fjarveru sinni. Kærandi hafi verið skráður atvinnulaus hjá stofnuninni þann tíma sem honum hafi verið gert að sækja umrætt vinnumarkaðsúrræði. Kæranda hafi því borið að vera virkur í atvinnuleit og taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem honum hafi staðið til boða, sbr. h-lið 14. gr. laga nr. 54/2006. Ekki verði fallist á að atvinnuleitendur geti hafnað að mæta í vinnumarkaðsúrræði á þeim forsendum að þeir telji sig ekki þurfa á slíkum úrræðum að halda en á sama tíma þegið greiðslur atvinnuleysisbóta. Það sé því niðurstaða stofnunarinnar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laganna. Með vísan til ofangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim, sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009 um breytingu á lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um viðurlög við að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Óumdeilt er að kærandi var boðaður á fund hjá Vinnumálastofnun til að skrifa undir bókunarblað vegna námskeiðsins „Í leit að nýju starfi“. Einnig er óumdeilt að kæranda var kunnugt um boðunina og að um skyldumætingu væri að ræða. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Ákvæðið er fortakslaust og því er ekki heimilt að beita vægari úrræðum en þar er kveðið á um. Að því virtu er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 10. desember 2018 um að fella niður bótarétt A, í tvo mánuði er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum