Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 77/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 77/2015

Fimmtudaginn 26. maí 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 2. desember 2015, kærði A, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. september 2015, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans þar til hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 612.606 kr. að meðtöldu 15% álagi.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysistrygginga hjá Vinnumálastofnun þann 13. janúar 2013 og var umsóknin samþykkt. Með bréfi, dags. 2. september 2015, var kæranda tilkynnt að stofnunin hefði undir höndum upplýsingar um að hann hafi starfað hjá B þann 20. maí 2015 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa tilkynnt það til stofnunarinnar. Þá var greint frá því að atvinnuleitandi skuli tilkynna um tilfallandi vinnu samkvæmt 35. gr. a og 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að brot gegn framangreindum ákvæðum geti valdið viðurlögum samkvæmt 59. gr. og 60. gr. laganna. Enn fremur var kæranda gefinn kostur á að skila inn skýringum og athugasemdum. 

Kærandi tjáði Vinnumálastofnun með tölvupósti þann 2. september 2015 að hann hafi unnið launalaust til reynslu 20. og 21. maí 2015. Sagðist kærandi hafa ráðfært sig við ráðgjafa Vinnumálastofnunar, sem hafi ráðlagt honum að skrá umrædda daga sem tilfallandi vinnu, sem hann hafi og gert. Í samskiptasögu kæranda kemur fram að hann hafði sambandi við stofnunina þann 27. maí 2015 og tilkynnt um vinnu sína. Kæranda var með bréfi, dags. 9. september 2015, tilkynnt um að stofnunin hefði ákveðið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að hann skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hann hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði þar sem hann hafi verið að vinna hjá B samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um vinnuna. Þá var kærandi krafinn um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 612.606 kr. með 15% álagi á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 2. desember 2015. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 22. janúar 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. janúar 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að gerð sé sú krafa að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Kærandi tekur fram að í lögum um atvinnuleysistryggingar sé ekkert sem segi að tilkynna þurfi launalausan reynslutíma til Vinnumálastofnunar. Stofnunin haldi því fram að hann hafi ekki tilkynnt vinnu í lok maí 2015. Eftir að hafa ráðfært sig við ráðgjafa sinn hjá Vinnumálastofnun á þessum tíma hafi hann skráð umrædda vinnu í tilkynningakerfi stofnunarinnar sem ólaunaða vinnu. Engar athugasemdir hafi verið gerðar við þessa skráningu í maí 2015.

Kærandi segir að hann sé búinn að borga sína skatta í 28 ár og finnist þetta einfaldlega óboðleg afgreiðsla og viðurlög á jafn einföldu atviki. Þegar hann hafi svarað bréfi Vinnumálastofnunar 2. september 2015 hafi svarið ekki verið tekið gilt.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta lúti að ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Annar málsliður 60. gr. laganna taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína samkvæmt 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín.

Í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim, sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun, hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í 3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Í málinu liggi fyrir að kærandi hafi starfað hjá B í maí 2015. Þá liggi fyrir að eftirlit ríkisskattstjóra hafi komið að kæranda við vinnu hjá fyrirtækinu. Kærandi hafi ekki tilkynnt um vinnu sína þegar eftirlitið hafi mætt á vinnustað heldur hafi hann tilkynnt um vinnu til Vinnumálastofnunar viku eftir áðurnefnt eftirlit.

Vinnumálastofnun fallist ekki á að kærandi hafi í umrætt sinn tilkynnt um vinnu sína með fullnægjandi hætti. Bent sé á að kærandi hafi ekki tilkynnt um vinnu sína fyrr en viku eftir að eftirlitsfulltrúar ríkisskattstjóra hafi komið að kæranda á vinnustað. Í 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að atvinnuleitendur skuli tilkynna til Vinnumálastofnunar með að minnsta kosti eins dags fyrirvara um tilfallandi vinnu sem hann taki á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Í undantekningartilvikum sé atvinnuleitendum þó heimilt að tilkynna samdægurs um tilfallandi vinnu. Þar að auki sé ekkert vægi fólgið í þeirri tilkynningu sem komi í kjölfar þess að viðkomandi verði uppvís að því að starfa á vinnumarkaði samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Augljóslega væri óþarft að kveða á um tilkynningarskyldu í lögum ef nægilegt væri fyrir atvinnuleitanda að tilkynna um vinnu sína eftir að í ljós komi að hann hafi verið að störfum samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta.

Þá verði ekki fallist á að skýringar kæranda, um að hann hafi ekki fengið greidd laun fyrir vinnu sína, teljist gildar. Það hafi ekki áhrif á skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna um vinnu sína að hann telji óvíst hvort eða hvenær hann fái greidd laun fyrir störf sín. Sá sem taki að sér vinnu beri að tilkynna slíkt til Vinnumálastofnunar, enda sé hann ekki í virkri atvinnuleit þann tíma sem hann sinni störfum.

Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn sinnt störfum á innlendum vinnumarkaði án þess að tilkynna um vinnu sína. Í ljósi þeirrar skyldu, sem hvíli á atvinnuleitendum til að tilkynna stofnuninni um tekjur og skýrrar verknaðarlýsingar 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins.

Í 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi að atvinnuleitanda skuli jafnframt vera gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt 39. gr. laganna og sæti hann viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Þar sem kærandi hafi verið við vinnu frá 20. maí 2015 hafi honum verið gert að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem honum hafi verið greiddar frá þeim tíma. Kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 612.606 kr. að meðtöldu 15% álagi sem honum beri að endurgreiða, sbr. 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, hljóðar svo:

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Af gögnum málsins verður ráðið að hin kærða ákvörðun sé byggð á 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2016 (E-2547/2015) var leyst úr ágreiningi sem varðaði ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga samkvæmt 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dóminum var fjallað ítarlega um túlkun framangreinds ákvæðis. Í niðurstöðunni segir meðal annars svo:

„Samkvæmt framangreindu verður fallist á þá efnislegu niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, í fyrrgreindu áliti hans, að miða verði við að í verknaðarlýsingu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 felist krafa um atvinnuleitandi hafi ætlað að afla sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Af hálfu stefndu er því ómótmælt að mál stefnanda hafi ekki verið rannsakað sérstaklega með hliðsjón af huglægri afstöðu hans, enda byggir málatilbúnaður þeirra á því að slík afstaða hafi ekki haft þýðingu um meðferð og niðurstöðu stjórnsýslumálsins. Að virtri framagreindri niðurstöðu um skýringu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 liggur þannig fyrir að verulegir annmarkar voru á málsmeðferð stefnda Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga svo og rökstuðningi ákvarðana. Er jafnframt ljóst að umræddir annmarkar voru til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Verður því að fallist á kröfu stefnanda um að umræddar stjórnvaldsákvarðanir stefndu Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga um sviptingu bótaréttar stefnanda verði felldar úr gildi.“ 

Samkvæmt framangreindu er það skilyrði fyrir beitingu viðurlaga á grundvelli 2. málsl. 60. gr. að atvinnuleitandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að af gögnum málsins verði ráðið að Vinnumálastofnun hafi beitt kæranda viðurlögum á grundvelli framangreinds ákvæðis þar sem hann hafi starfað á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt stofnuninni um vinnuna. Því virðist huglæg afstaða kæranda ekki hafa verið könnuð áður en ákvörðun um beitingu viðurlaga var tekin. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að málið hafi ekki verið nægjanlega upplýst áður en Vinnumálastofnun tók hina kærðu ákvörðun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því verður ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu til baka til mats á því hvort kærandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga og innheimtu ofgreiddra bóta felld úr gildi og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 9. september 2015, í máli A, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 612.606 kr. að meðtöldu 15% álagi, er felld úr gildi. Málinu er vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum