Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 86/2015

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 86/2015

Fimmtudaginn 12. maí 2016

A

gegn

Vinnumálastofnun


Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Arnar Kristinsson lögfræðingur og Agnar Bragi Bragason lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni þann 21. desember 2015, kærði A, til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. október 2015, um að staðfesta fyrri ákvörðun stofnunarinnar um stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 221.857 kr. með 15% álagi.

Þann 1. janúar 2016 tóku gildi lög nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála og tók nefndin yfir frá þeim tíma þau mál sem áður voru til meðferðar hjá úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, þ.m.t. mál kæranda, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 og 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Vinnumálastofnun hóf greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda þann 15. maí 2015. Með bréfi, dags. 1. september 2015, var kæranda tilkynnt um að við samkeyrslu tölvugagna Vinnumálastofnunar og ríkisskattstjóra hafi virst sem hún hafi haft tekjur í júní 2015 frá B án þess að gera grein fyrir þeim á sama tíma og hún hafi þegið atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun. Þá var óskað eftir upplýsingum um framangreindar tekjur. Engin svör bárust frá kæranda.

Með bréfi, dags. 25. september 2015, var kærandi upplýst um að Vinnumálastofnun hefði ákveðið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar á grundvelli 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að hún skyldi ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum fyrr en hún hefði starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði þar sem hún hafi verið að vinna hjá B samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur án þess að tilkynna Vinnumálastofnun um vinnuna. Þá var kærandi krafin um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 221.857 kr. með 15% álagi á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laganna.

Þann 28. september 2015 barst Vinnumálastofnun tölvupóstur frá kæranda þar sem fram kemur meðal annars að hún hafi látið stofnunina vita af starfi sínu. Mál kæranda var endurupptekið í kjölfarið en með bréfi, dags. 5. október 2015, var kæranda tilkynnt um að fyrri ákvörðun stofnunarinnar væri staðfest. Með tölvupósti til stofnunarinnar þann 13. október 2015 greindi kærandi meðal annars frá því að hún hefði tvívegis tilkynnt um vinnu sína til stofnunarinnar þegar hún hefði staðfest atvinnuleit sína rafrænt á heimasíðu stofnunarinnar. Mál kæranda var endurupptekið í kjölfarið en með bréfi, dags. 22. október 2015, var kæranda tilkynnt um að fyrri ákvörðun stofnunarinnar væri staðfest. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi á ákvörðun stofnunarinnar þann 1. desember 2015. Með bréfi, dags. 16. desember 2015, var beiðni um rökstuðning hafnað á þeim grundvelli að frestur til að óska eftir rökstuðningi væri liðinn, sbr. 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Kæra barst úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 21. desember 2015. Með bréfi, dags. 22. desember 2015, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst með bréfi, dags. 26. janúar 2016. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 1. febrúar 2016, var greinargerð Vinnumálastofnunar send kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi, dags. 10. febrúar 2016, og voru sendar Vinnumálastofnun með bréfi, dags. 12. febrúar 2016. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru gerir kærandi grein fyrir félagslegum og fjárhagslegum aðstæðum sínum. Þá óskar hún eftir að mál hennar verði endurskoðað. Í athugasemdum við greinargerð Vinnumálastofnunar greinir kærandi frá því að hún hafi verið í 50% starfi hjá B og tvívegis látið vita af því þegar hún hafi staðfest atvinnuleit en það virðist ekki hafa skilað sér til Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að mál þetta lúti að ákvörðun stofnunarinnar um viðurlög samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Annar málsliður 60. gr. laganna taki á því þegar atvinnuleitandi starfi á vinnumarkaði, til lengri eða skemmri tíma, samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur og án þess að hafa uppfyllt skyldu sína samkvæmt 10. gr. og 35. gr. a laga um atvinnuleysistryggingar um að upplýsa Vinnumálastofnun um störf sín. Af ákvæðinu leiði að sá sem ekki tilkynni Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt samkvæmt 10. gr. laganna eða um tilfallandi vinnu samkvæmt 35. gr. a skuli sæta viðurlögum á grundvelli þess.

Í 13. gr. laganna segi jafnframt að það sé skilyrði fyrir því að launamaður teljist vera tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar að hann sé í virkri atvinnuleit. Í 14. gr. laganna sé að finna nánari útlistun á því hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Ljóst sé að aðili sem starfi á vinnumarkaði geti hvorki talist vera án atvinnu eða í virkri atvinnuleit í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Á þeim sem fái greiðslur atvinnuleysistrygginga frá Vinnumálastofnun hvíli rík skylda til að sjá til þess að stofnunin hafi réttar upplýsingar um hagi viðkomandi. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé að finna ákvæði þar sem þessi skylda sé ítrekuð. Þannig segi í  3. mgr. 9. gr. laganna að sá sem teljist tryggður á grundvelli laganna skuli upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunni að verða á högum hans á þeim tíma er hann fái greiddar atvinnuleysistryggingar eða annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um tekjur sem hann fái fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan standi yfir eða ef atvinnuleit sé hætt.

Í máli þessu liggi fyrir að kærandi hafi starfað sem eftirlitsfulltrúi hjá B á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Kærandi segist hafa tilkynnt um vinnu sína þegar hún hafi staðfest atvinnuleit sína á heimasíðu stofnunarinnar. Engar upplýsingar úr tölvukerfi Vinnumálastofnunar eða gögn sem kærandi hafi fært fram í máli þessu bendi til þess að kærandi hafi tilkynnt um vinnu sína. Í samskiptasögu kæranda megi sjá að kærandi hafi staðfest atvinnuleit sína 22. júní, 24. júlí og 24. ágúst.  Engar athugasemdir um vinnu kæranda hafi borist með þessum staðfestingum. Vinnumálastofnun hafi fyrst verið kunnugt um vinnu kæranda eftir samkeyrslu við ríkisskattstjóra í september 2015. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn sinnt störfum á innlendum vinnumarkaði án þess að tilkynna um vinnu sína. Í ljósi þeirrar skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til að tilkynna til stofnunarinnar um tekjur og skýrrar verknaðarlýsingu 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar verði að telja að kærandi hafi brugðist skyldum sínum við stofnunina og eigi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu.

Þar sem kærandi hafi starfað á meðan hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistryggingar sé ljóst að hún hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur sem henni beri að endurgreiða, sbr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitanda að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur ásamt 15% álagi. Skuld kæranda nemi 192.919 kr. þegar tekið hafi verið mið af tekjum hennar og skerðingarreglu 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Að viðlögðu 15% álagi að fjárhæð 28.938 kr. beri kæranda að endurgreiða samtals 221.857 kr. Að mati Vinnumálastofnunar hafi kærandi ekki sýnt fram á að fella beri niður álag á grundvelli ákvæðisins.

IV.  Niðurstaða

Ágreiningur máls þessa lýtur að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hún hefur starfað að minnsta kosti tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði samkvæmt 60. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og krefja kæranda um endurgreiðslu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvæði 60. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, með síðari breytingum, hljóðar svo:

„Sá sem lætur vísvitandi hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða veitir vísvitandi rangar upplýsingar sem leiða til þess að hann telst ranglega tryggður að fullu eða að hluta samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur. Hið sama gildir um þann sem starfar á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum án þess að hafa tilkynnt Vinnumálastofnun um að atvinnuleit sé hætt skv. 10. gr. eða um tilfallandi vinnu skv. 35. gr. a. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 15. mars 2016 (E-2547/2015) var leyst úr ágreiningi sem varðaði ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga samkvæmt 2. málsl. 60. gr. laganna. Í dóminum var fjallað ítarlega um túlkun framangreinds ákvæðis. Í niðurstöðunni segir meðal annars svo:

„Samkvæmt framangreindu verður fallist á þá efnislegu niðurstöðu umboðsmanns Alþingis, í fyrrgreindu áliti hans, að miða verði við að í verknaðarlýsingu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 felist krafa um atvinnuleitandi hafi ætlað að afla sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Af hálfu stefndu er því ómótmælt að mál stefnanda hafi ekki verið rannsakað sérstaklega með hliðsjón af huglægri afstöðu hans, enda byggir málatilbúnaður þeirra á því að slík afstaða hafi ekki haft þýðingu um meðferð og niðurstöðu stjórnsýslumálsins. Að virtri framagreindri niðurstöðu um skýringu 2. málsliðar 60. gr. laga nr. 54/2006 liggur þannig fyrir að verulegir annmarkar voru á málsmeðferð stefnda Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga svo og rökstuðningi ákvarðana. Er jafnframt ljóst að umræddir annmarkar voru til þess fallnir að hafa áhrif á niðurstöðu málsins. Verður því að fallist á kröfu stefnanda um að umræddar stjórnvaldsákvarðanir stefndu Vinnumálastofnunar og úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga um sviptingu bótaréttar stefnanda verði felldar úr gildi.“ 

Samkvæmt framangreindu er það skilyrði fyrir beitingu viðurlaga á grundvelli 2. málsl. 60. gr. að atvinnuleitandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að af gögnum málsins verði ráðið að Vinnumálastofnun hafi beitt kæranda viðurlögum á grundvelli framangreinds ákvæðis þar sem hún hafi starfað á innlendum vinnumarkaði á sama tíma og hún hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur án þess að hafa tilkynnt stofnuninni um vinnuna. Því virðist huglæg afstaða kæranda ekki hafa verið könnuð áður en ákvörðun um beitingu viðurlaga var tekin. Með hliðsjón af framangreindu er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að málið hafi ekki verið nægjanlega upplýst áður en Vinnumálastofnun tók hina kærðu ákvörðun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Því verður ekki hjá því komist að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu til baka til mats á því hvort kærandi hafi aflað sér atvinnuleysisbóta með sviksamlegum hætti.

Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið er ákvörðun Vinnumálastofnunar um beitingu viðurlaga og innheimtu ofgreiddra bóta felld úr gildi og málinu vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 22. október 2015, í máli A, um að staðfesta fyrri ákvörðun stofnunarinnar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda þar til hún hefur starfað a.m.k. tólf mánuði á innlendum vinnumarkaði og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta samtals að fjárhæð 221.857 kr. með 15% álagi, er felld úr gildi. Málinu er vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar.


F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum