Hoppa yfir valmynd
%C3%9Arskur%C3%B0arnefnd%20velfer%C3%B0arm%C3%A1la%20-%20Almannatryggingar

Nr. 26/2019 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 26/2019

Miðvikudaginn 8. maí 2019

A

gegn

Sjúkratryggingum Íslands

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Jón Baldursson læknir.

Með kæru, dags. 11. janúar 2019, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 13. desember 2018 þar sem umsókn kæranda um endurgreiðslu erlends sjúkrakostnaðar var synjað.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með bréfi, dags. 13. desember 2018, var umsókn kæranda um endurgreiðslu erlends sjúkrakostnaðar synjað með þeim rökum að ekki hefði verið leitað eftir samþykki fyrir greiðsluþátttöku fyrir fram. Undir rekstri málsins hjá úrskurðarnefndinni tóku Sjúkratryggingar Íslands nýja ákvörðun með bréfi, dags. 4. mars 2019, þar sem samþykkt var endurgreiðsla á erlendum sjúkrakostnaði kæranda.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. janúar 2019. Með bréfi, dags. 1. febrúar 2019, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Sjúkratrygginga Íslands ásamt gögnum málsins. Greinargerð Sjúkratrygginga Íslands barst með bréfi, dags. 4. mars 2019. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. mars 2019, var greinargerð Sjúkratrygginga Íslands send kæranda og óskað eftir afstöðu hennar til greinargerðarinnar. Beiðni um afstöðu var ítrekuð með bréfi til umboðsmanns kæranda 15. mars 2019. Engar athugasemdir bárust.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir ekki formlegar kröfur í málinu en ráða má af kæru að kærandi krefjist þess að fallist verði á að endurgreiða henni sjúkrakostnað vegna læknismeðferðar í B.

Í kæru kemur fram að kærandi hafi ekki getað sótt um greiðsluþátttöku fyrir fram þar sem þetta hafi gerst svo skyndilega. Kærandi hafi verið í fríi í B og hafi skyndilega farið að blæða. Það hafi hrætt hana mjög mikið og því hafi hún farið á spítalann. Læknirinn hafi sagt að hún þyrfti að fara strax í aðgerð því að þetta gæti ógnað lífi hennar. Eftir aðgerðina hafi læknirinn ákveðið að hafa kæranda inniliggjandi á sjúkrahúsinu yfir nótt.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 13. desember 2018 þar sem umsókn kæranda um endurgreiðslu erlends sjúkrakostnaðar var synjað.

Í kjölfar kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála tóku Sjúkratryggingar Íslands nýja ákvörðun í máli kæranda, dags. 4. mars 2019, þar sem samþykkt var endurgreiðsla á erlendum sjúkrakostnaði hennar. Úrskurðarnefndin óskaði ítrekað eftir afstöðu kæranda til ákvörðunar Sjúkratrygginga Íslands um að fallast á endurgreiðslu en engin svör bárust frá henni.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um tiltekin ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, sbr. 36. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé enn til staðar á milli kæranda og Sjúkratrygginga Íslands. Stofnunin hefur samþykkt endurgreiðslu á erlendum sjúkrakostnaði kæranda. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum