Hoppa yfir valmynd

Víðir Davíðsson, kærir ákvörðun Fiskistofu , um að hafna skipinu Sæunni Eir NS-47, verði úthlutað af byggðakvóta

Stjórnsýslukæra

Ráðuneytið vísar til stjórnsýslukæru Víðis Davíðssonar, Hafnarbyggð 41, Vopnafirði, dags. 12. febrúar 2017, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, þar sem kærð er til ráðuneytisins ákvörðun Fiskistofu, dags. 30. janúar 2017, um að hafna umsókn kæranda um að skipinu Sæunni Eir NS-47, skipaskrárnúmer 2166 verði úthlutað af byggðakvóta Vopnafjarðar í Vopnafjarðarhreppi fyrir fiskveiðiárið 2016/2017. Kæruheimild er í 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

Kröfur kæranda

Kærandi krefst þess að felld verði úr gildi hin kærða ákvörðun Fiskistofu, dags. 30. janúar 2017, um að hafna umsókn kæranda, Víðis Davíðssonar, um að skipinu Sæunni Eir NS-47 (2166) verði úthlutað af byggðakvóta Vopnafjarðar í Vopnafjarðarhreppi fyrir fiskveiðiárið 2016/2017.

Málsatvik

Málsatvik eru þau að með auglýsingu, dags. 11. janúar 2017, sem birt var í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu 12. sama mánaðar, auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2016/2017 í nokkrum byggðarlögum, m.a. á Vopnafirði í Vopnafjarðarhreppi en auglýsingin var byggð á 8. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, sbr. og 5. gr. reglugerðar nr. 641/2016, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017. Einnig var framangreind auglýsing birt á vefsíðu Fiskistofu og tölvupóstur með auglýsingunni sendur til viðkomandi sveitarfélaga þar sem þau voru beðin um að setja frétt um auglýsinguna inn á sínar heimasíður. Umsóknarfrestur var til og með 26. janúar 2017. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hafði þá úthlutað 43 þorskígildistonnum af byggðakvóta til Vopnafjarðarhrepps sem kom allur í hlut byggðarlagsins Vopnafjarðar.Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir skipið Sæunni Eir NS-47 (2166) með umsókn til Fiskistofu, dags. 16. janúar 2017.Hinn 30. janúar 2017 tilkynnti Fiskistofa kæranda og öðrum eigendum og útgerðaraðilum skipa á Vopnafirði í Vopnafjarðarhreppi ákvarðanir sínar um úthlutun byggðakvóta í byggðarlaginu. Ákvarðanir Fiskistofu voru byggðar á 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, ákvæðum reglugerðar nr. 641/2016, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðárinu 2016/2017 og auglýsingu (V) nr. 6/2017, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 30. janúar 2017, var hafnað umsókn kæranda um að skipinu Sæunni Eir NS-47 (2166) yrði úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2016/2017. Í ákvörðuninni kom fram að samkvæmt staflið a 1. gr. reglugerðar nr. 641/2016 væri það skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta að fiskiskip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests til að koma til greina við úthlutun. Skipið Sæunn Eir NS-47 (2166) hafi ekki haft almennt leyfi til veiða í atvinnuskyni síðan 12. september 2016. Þá skuli úthluta byggðakvóta hlutfallslega miðað við landaðan afla viðkomandi fiskiskips í byggðarlaginu á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016 en samkvæmt gagnagrunni Fiskistofu hafi ofangreint skip engu landað á þessu tímabili. Af framangreindu leiði að ekki komi til úthlutunar byggðakvóta til skipsins.Þá kom fram í ákvörðun Fiskistofu að hún væri kæranleg til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins og að kærufrestur væri tvær vikur frá framangreindri tilkynningu Fiskistofu um höfnun umsóknar um úthlutun.

Málsástæður í stjórnsýslukæru og málsmeðferð

Með stjórnsýslukæru, dags. 12. febrúar 2017, sem barst ráðuneytinu með tölvubréfi sama dag, kærði Víðir Davíðsson framangreinda ákvörðun Fiskistofu til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.Í stjórnsýslukærunni segir m.a. að kærandi hafi reynt að fá haffærisskírteini á skipið til að fá byggðakvóta. Hann hafi einnig reynt að kaupa leyfi á skipið í gegnum Ugg hjá Fiskistofu en það hafi ekki tekist. Með bréfi, dags. 16. febrúar 2017, óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu um stjórnsýslukæruna, staðfestu afriti af hinni kærðu ákvörðun auk annarra gagna sem Fiskistofa kynni að hafa um málið. Með bréfum, dags. 16. og 28. mars 2017, var framangreind beiðni ítrekuð.Í umsögn Fiskistofu, dags. 24. apríl 2017, segir m.a.að samkvæmt umsókn um byggðakvóta sem móttekin var 19. janúar 2017 hafi kærandi sótt um byggðakvóta fyrir Vopnafjörð á fiskveiðiárinu 2016/2017 fyrir skipið Sæunni Eir NS-47 (2166). Þann 30. janúar 2017 hafi umsókninni verið hafnað þar sem umrætt skip hafi ekki haft gilt leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests og hafi ekki haft almennt leyfi til fiskveiða síðan 12. september 2016. Þá skuli úthluta byggðakvóta hlutfallslega miðað við landaðan afla í byggðarlaginu á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016, en skipið hafi ekki landað neinum afla á tímabilinu skv. gögnum Fiskistofu. Um framangreint sé vísað til stafliðar a 1. gr. reglugerðar nr. 641/2016, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017 og auglýsingar (V) nr. 6/2017, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Eftirtalin gögn fylgdu umsögn Fiskistofu til ráðuneytisins í ljósritum: 1) Staðfest afrit af hinni kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 30. janúar 2017. 2) Umsókn kæranda um byggðakvóta fyrir skipið Sæunni Eir NS-47 (2166), dags. 16. janúar 2017. 3) Auglýsing Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta á Vopnafirði í Vopnafjarðarhreppi, dags. 11. janúar 2017.Með bréfi, dags. 25. apríl 2017, sendi ráðuneytið kæranda ljósrit af framangreindri umsögn Fiskistofu, dags. 24. apríl 2017, og veitti honum kost á að gera athugasemdir við umsögnina. Frestur til þess var veittur til og með föstudagsins 12. maí 2017. Engar athugasemdir bárust ráðuneytinu frá kæranda við framangreinda umsögn Fiskistofu, dags. 24. apríl 2017.

Rökstuðningur

Um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2016/2017 gildir ákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Í 5. mgr. greinarinnar er ráðherra falið að setja með reglugerð almenn skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda til fiskiskipa innan einstakra byggðarlaga. Skulu þau skilyrði m.a. varða skráningarstað, skráningartíma, eignarhald, skiptingu milli fiskiskipa, lágmarksverð, tryggingar fyrir greiðslum og framkvæmd úthlutunar.Á grundvelli framangreinds ákvæðis hefur ráðherra sett reglugerð nr. 641/2016, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017. Í 1. gr. reglugerðarinnar eru talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á umræddu fiskveiðiári en þau eru að: a) Skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, við lok umsóknarfrests. b) Skip hafi verið skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2016. c) Skip hafi verið í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2016. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.Einnig eru í 4. gr. reglugerðarinnar viðmiðanir um úthlutun aflaheimilda til einstakra fiskiskipa en samkvæmt ákvæðinu er gert ráð fyrir að úthlutun aflaheimilda skuli fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylla almenn skilyrði reglugerðarinnar og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið hefur staðfest, eftir því sem við á, og skuli úthlutað hlutfallslega af því aflamarki sem fallið hefur til viðkomandi byggðarlags, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafa þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið innan viðkomandi byggðarlags á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016. Komi minna en 100 þorskígildiskíló í hlut fiskiskips samkvæmt framangreindum reglum fellur niður hlutur þess og skiptist hlutur þess milli annarra fiskiskipa frá sama byggðarlagi sem uppfylla skilyrði fyrir úthlutun í samræmi við skiptingu samkvæmt úthlutunarreglum. Ennfremur koma fram í ákvæðinu nokkrar reglur um úthlutun byggðakvóta miðað við tiltekin skilyrði o.fl.Þá koma fram í reglugerðinni ákvæði um skyldu fiskiskipa til að landa afla til vinnslu í byggðarlagi, sbr. 6. gr. o.fl.Samkvæmt 5. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006 getur ráðherra heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum sem víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum sem ráðherra setur í reglugerð, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga. Sambærilegt ákvæði er í 2. gr. reglugerðar nr. 641/2016.Sett hafa verið sérstök viðbótarskilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á Vopnafirði í Vopnafjarðarhreppi fyrir fiskveiðiárið 2016/2017 samkvæmt framangreindu ákvæði með auglýsingu (V) nr. 6/2017, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta. Þar kemur fram að skipting þess aflamarks sem nú kemur í hlut byggðarlags, auk þess aflamarks byggðarlagsins sem kunni að vera eftir af úthlutun fyrra fiskveiðiárs, skuli að öðru leyti fara fram til einstakra fiskiskipa sem uppfylli skilyrði 1. gr., sbr. og reglur um sérstök skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta í einstökum sveitarfélögum sem ráðuneytið staðfestir eftir því sem við á, og skuli skipt þannig að 35% úthlutaðs byggðakvóta skiptist jafnt milli báta undir 1.000 brúttótonnum og 65% byggðakvótans skuli skipt hlutfallslega til sömu skipa, miðað við allan landaðan botnfiskafla í tegundum sem hafi þorskígildisstuðla, í þorskígildum talið, sem landað var á Vopnafirði á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016.Um skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta til einstakra fiskiskipa á Vopnafirði í Vopnafjarðarhreppi fyrir fiskveiðiárið 2016/2017 fer því eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, ákvæðum reglugerðar nr. 641/2016 og auglýsingu (V) nr. 6/2017. Eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan eru í 1. gr. reglugerðar nr. 641/2016 talin upp almenn skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta á fiskveiðiárinu 2016/2017 en samkvæmt staflið a 1. gr. reglugerðarinnar eru þau m.a. að skip hafi haft leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, við lok umsóknarfrests. Skipið Sæunn Eir NS-47 (2166) hafði ekki leyfi til veiða í atvinnuskyni á þeim tíma sem miðað er við í framangreindu ákvæði reglugerðar nr. 641/2016, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2016/2017. Það er mat ráðuneytisins að þær ástæður sem koma fram í stjórnsýslukærunni fyrir því að skipið hafði ekki slíkt leyfi á umræddu tímamarki geti ekki haft þýðingu fyrir niðurstöðu þessa máls. Þá skal úthluta byggðakvóta hlutfallslega miðað við landaðan afla viðkomandi fiskiskips í byggðarlaginu á tímabilinu 1. september 2015 til 31. ágúst 2016, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 641/2016 og auglýsing (V) nr. 641/2016 en samkvæmt gögnum Fiskistofu hefur ofangreint skip engum afla landað á þessu tímabili.Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða ráðuneytisins að ekki séu skilyrði fyrir að úthluta skipinu Sæunni Eir NS-47 (2166) af byggðakvóta Vopnafjarðar í Vopnafjarðarhreppi fyrir fiskveiðiárið 2016/2017 en samkvæmt því ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Fiskistofu, dags. 30. janúar 2017.Beðist er velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á uppkvaðningu þessa úrskurðar en þær er að rekja til mikilla anna í ráðuneytinu.

Úrskurður

Ráðuneytið staðfestir ákvörðun Fiskistofu, dags. 30. janúar 2017, um að hafna umsókn kæranda, Víðis Davíðssonar, um að skipinu Sæunni Eir NS-47, skipaskrárnúmer 2166, verði úthlutað byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2016/2017.

Fyrir hönd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Jóhann GuðmundssonSigríður Norðmann


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum