Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 27/2016 Úrskurður 3. júní 2016

Mál nr. 27/2016                     Eiginnafn: Ári

 


           

 

Hinn 3. júní 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 27/2016 en erindið barst nefndinni 6. apríl:

 

Öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:

1. mgr. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

2. mgr. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.

3. mgr. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Í máli þessu reynir á það skilyrði 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 að eiginnafn megi ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Merking samnafnsins ári er samkvæmt Íslenskri orðabók ‚sendiboði‘ (fornt/úrelt), ‚púki, illur andi‘. Það er einnig notað sem vægt blótsyrði, árans. Þrátt fyrir þetta er þessi grunnmerking orðsins líklega ekki almennt þekkt og þar að auki ekki mjög neikvæð eða niðrandi. Fjarlægur eða óviss möguleiki á því að nafn verði nafnbera til ama er ekki nóg til þess að hafna því. Eiginnafnið Ári verður því látið njóta vafans.

Skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996 standa því ekki í vegi fyrir því að eiginnafnið Ári (kk.) verði fært á mannanafnaskrá.

 

 

 

 


Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Ári (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum