Hoppa yfir valmynd
Mannanafnanefnd

Mál nr. 48/2016 Úrskurður 3. júní 2016

Mál nr. 48/2016                     Eiginnafn:      Olgalilja

 


Hinn 3. júní 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 48/2016 en erindið barst nefndinni 6. maí:

Til að hægt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá þarf öllum skilyrðum 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera fullnægt. Skilyrðin eru þessi: (1) Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. (3) Nafnið skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977, um íslenska stafsetningu.

 

Í eiginnafninu Olgalilja (kvk.) reynir á skilyrði (2) og (3). Eiginnafnið Olgalilja fer gegn hefðbundnum nafnmyndunarreglum í íslensku. Fyrri liður þess er nafnið Olga, í aukaföllum Olgu. Nafnið Olgalilja (í eignarfalli Olgulilju) brýtur í bág við íslenskt málkerfi þar sem nefnifallsmyndir veikra kvenkynsorða (s.s. lilja, gata) mynda ekki fyrri lið í samsettum orðum; þar er notað eignarfall (s.s. liljusveigur, götuljós). Þá getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls að rita tvö sjálfstæð eiginnöfn á borð við Olga og Lilja sem eitt orð. Rithátturinn Olgalilja er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslenks máls og uppfyllir þ.a.l. ekki tilvitnað ákvæði laga nr. 45/1996.

 

Til samanburðar vísast til úrskurðar mannanafnanefndar frá 27. júní 2005 í máli nr. 59/2005, vegna umsóknar um nafnið Annalísa, til úrskurðar frá 4. febrúar 2010 í máli nr. 69/2009, vegna umsóknar um nafnið Liljarós, til úrskurðar frá 21. september 2011 í máli 69/2011, vegna umsóknar um nafnið Hannadís og jafnframt til úrskurðar frá 3. október 2014 í máli 58/2014, vegna umsóknar um nafnið Sveinnóli.

 

 

 

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Olgalilja(kvk.) er hafnað.

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum