Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 54/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                          

Miðvikudaginn 26. nóvember 2014 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 54/2014:

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með kæru, dags. 2. október 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar á umsókn hennar um félagslegt leiguhúsnæði og sérstakar húsaleigubætur, dags. 20. maí 2014.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 20. maí 2014, sótti kærandi um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur hjá Reykjavíkurborg. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 1. júlí 2014, með þeim rökum að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði d-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Með bréfi, dags. 4. júlí 2014, áfrýjaði kærandi synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi þann 17. september 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti mat starfsmanna þjónustumiðstöðvar á stigagjöf vegna umsóknar um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur, sbr. matsblað með reglum um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 17. september 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 2. október 2014. Með bréfi, dags. 8. október 2014, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir synjun á umsókn kæranda. Enn fremur var óskað eftir gögnum sem lágu fyrir og gæfu upplýsingar um fjárhag kæranda. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 20. október 2014. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 21. október 2014, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi kveðst búa við erfiðar húsnæðisaðstæður sem ekki séu vænlegar til lengri tíma.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærumálsins er greint frá aðstæðum kæranda og húsnæðisaðstöðu hennar. Í 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík séu sett fram tiltekin skilyrði fyrir því að umsókn taki gildi. Í d-lið sé kveðið á um að umsækjandi þurfi að skora að lágmarki fjögur stig vegna félagslegra aðstæðna sinna, tvö stig vegna húsnæðisaðstöðu og tvö vegna félagslegs vanda eða sérstakra aðstæðna barna. Kærandi hafi fengið samtals fjögur stig vegna félagslegs vanda, tvö stig vegna langvarandi atvinnuleysis og tvö vegna tekna. Kærandi hafi ekki fengið nein stig vegna húsnæðisstöðu en hún sé með ótímabundinn húsaleigusamning og greiði lága leigu. Því hafi verið metið svo að kærandi væri hvorki í þörf fyrir húsnæði né að húsnæðisaðstæður væru verulega erfiðar. Skilyrði d-liðar 4. gr. reglnanna hafi því ekki verið uppfyllt þar sem lágmarksstigafjölda vegna félagslegra aðstæðna hafi ekki verið náð.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 16. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum XVII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík frá 1. mars 2004, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur.

Umsókn kæranda var synjað á þeirri forsendu að skilyrði d-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík væri ekki uppfyllt.

Í 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði metin gild og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a–e-liðum 1. mgr. ákvæðisins. Í d-lið 4. gr. framangreindra reglna Reykjavíkurborgar er gert að skilyrði að umsækjandi skori að lágmarki fjögur stig vegna félagslegra aðstæðna sinna, þ.e. tvö stig vegna húsnæðisstöðu og tvö stig vegna félagslegs vanda eða sérstakra aðstæðna barna, sbr. matsviðmið sem fylgir reglunum. Samkvæmt gögnum málsins var kærandi ekki metin til neinna stiga vegna húsnæðisstöðu þar sem talið var að hún væri hvorki í þörf fyrir húsnæði né að húsnæðisaðstæður væru verulega erfiðar. Í lið 5 a í matsviðmiði sem fylgir reglunum kemur fram að veitt sé eitt stig ef umsækjandi þurfi á húsnæði að halda, tvö stig ef húsnæðisaðstæður séu verulega erfiðar og þrjú stig ef vart sé mögulegt að bíða eftir húsnæði. Fyrir liggur að kærandi er með ótímabundinn húsaleigusamning frá 1. júní 2012 og hagstæða leigu. Verður því hvorki séð að húsnæðismissir hafi verið yfirvofandi né að um óöruggt húsnæði hafi verið að ræða. Úrskurðarnefndin telur því ekki ástæðu til að gera athugasemd við að húsnæðisaðstæður kæranda hafi ekki verið metnar til stiga enda verður að telja ljóst að kærandi býr í öruggri leiguíbúð.

Í 5. gr. reglnanna er kveðið á um undanþágur frá skilyrðum 4. gr. um lögheimili og/eða tekjuviðmið en ekki er kveðið á um undanþágu frá viðmiðum um stig vegna húsnæðisstöðu og félagslegs vanda. Þar sem kærandi uppfyllir ekki skilyrði d-liðar 4. gr. reglnanna er það mat úrskurðarnefndarinnar að undanþáguákvæði 5. gr. komi ekki til skoðunar í málinu en líkt og að framan greinir þurfa öll skilyrði sem fram koma í a–e-liðum ákvæðisins að vera uppfyllt til að umsókn öðlist gildi.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Reykjavíkurborgar.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 17. september 2014, um synjun á umsókn A um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum