Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 58/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

 

Miðvikudaginn 26. nóvember 2014 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 58/2014:


Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

og kveðinn upp svohljóðandi


Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með bréfi, dags. 26. september 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 17. september 2014, á umsókn hennar um styrk vegna sérstakra erfiðleika að fjárhæð 974.000 krónur.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Kærandi sótti um styrk vegna sérstakra erfiðleika vegna fjárhags- og félagslegs vanda að fjárhæð 974.000 krónur hjá Reykjavíkurborg með umsókn, dags. 1. september 2014. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 8. september 2014, með þeim rökum að umsóknin samræmdist ekki reglum Reykjavíkurborgar. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 17. september 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um styrk að upphæð kr. 974.000.- þar sem eigi verður talið að aðstæður umsækjanda falli að skilyrðum þeim sem sett eru í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð varðandi aðstoð vegna sérstakra erfiðleika.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 17. september 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 9. október 2014. Með bréfi, dags. 10. október 2014, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir öllum gögnum málsins, þar á meðal umsókn kæranda, ákvörðun sveitarfélagsins og gögnum um fjárhag kæranda. Enn fremur var óskað eftir greinargerð Reykjavíkurborgar þar sem fram kæmi meðal annars rökstuðningur fyrir hinni kærðu ákvörðun. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 22. október 2014. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 27. október 2014, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki frá kæranda.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi hefur ekki komið neinum sjónarmiðum á framfæri við meðferð máls þessa.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar er greint frá aðstæðum kæranda og vísað til þess að hún hafi ekki uppfyllt skilyrði a–e-liða 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg til greiðslu styrks vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika en öll skilyrði a–e-liða 24. gr. verði að vera uppfyllt svo heimilt sé að veita lán eða styrk samkvæmt ákvæðinu. Kærandi uppfylli ekki skilyrði a-liðar þar sem hún hafi ekki verið með fjárhagsaðstoð sér til framfærslu undanfarna sex mánuði eða lengur en kærandi fái greiddan örorkulífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins. Kærandi hafi ekki framvísað staðfestingu þess efnis að hún njóti ekki aðgangs að lánafyrirgreiðslu hjá banka, sparisjóði eða annarri lánastofnun, sbr. b-lið 24. gr. reglnanna. Kærandi hafi ekki leitað til embættis umboðsmanns skuldara en hafi sótt um ráðgjöf hjá fjármálaráðgjafa þjónustumiðstöðvar skv. c- og e-liðum 24. gr.

Við mat á því hvort veita ætti kæranda undanþágu frá skilyrðum 24. gr. reglnanna hafi meðal annars verið litið til fyrri afgreiðslna velferðarráðs. Árið 2012 hafi velferðarráð samþykkt að veita kæranda lán og styrk til helminga skv. 24. gr. reglnanna að fjárhæð 1.263.902 krónur til greiðslu skulda við Félagsbústaði hf. með því skilyrði að áfallin húsaleiga yrði greidd í sex mánuði. Að mati velferðarráðs hafi skilyrði d-liðar ekki verið uppfyllt þar sem ekki liggi fyrir að styrkur eða lán muni breyta skuldastöðu kæranda til lengri tíma. Velferðarráð hafi áður samþykkt að veita lán og styrk vegna skulda við Félagsbústaði hf. sem hafi ekki breytt skuldastöðu til hins betra þegar til lengri tíma var litið. Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að skilyrði 24. gr. reglnanna væru ekki uppfyllt og því hafi synjun um styrk verið staðfest.


IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 63. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg frá 1. janúar 2011, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um styrk vegna sérstakra erfiðleika vegna fjárhags- og félagslegs vanda að fjárhæð 974.000 krónur.

Fjallað er um rétt til fjárhagsaðstoðar til þeirra sem eigi fá séð fyrir sjálfum sér, maka sínum og börnum yngri en 18 ára í IV. og VI. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja sér reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri nauðsyn að meginstefnu til lagt í hendur þeirrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála enda byggist það á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Umsókn kæranda um styrk vegna sérstakra erfiðleika var synjað á þeirri forsendu að skilyrðum 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg hafi ekki verið fullnægt. Í 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um aðstoð vegna sérstakra erfiðleika. Samkvæmt því er heimilt að veita einstaklingum, hjónum eða sambúðarfólki lán eða styrk vegna mikilla fjárhagslegra og félagslegra erfiðleika, að uppfylltum öllum neðangreindum skilyrðum:

a) umsækjandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum undanfarna sex mánuði eða lengur,

b) staðfest sé að umsækjandi hafi ekki aðgang að lánafyrirgreiðslu banka, sparisjóða eða annarra lánastofnana,

c) fyrir liggi yfirlit starfsmanns þjónustumiðstöðvar eða Umboðsmanns skuldara um fjárhagsstöðu umsækjanda og tillögur að úrbótum þegar við á,

d) fyrir liggi á hvern hátt lán eða styrkur muni breyta skuldastöðu umsækjanda til hins betra þegar til lengri tíma er litið,

e) fyrir liggi samkomulag um félagslega ráðgjöf og/eða fjármálaráðgjöf þegar það á við.

Í a-lið 24. gr. reglnanna er gert að skilyrði að umsækjandi hafi notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu síðastliðna sex mánuði eða lengur. Kærandi sótti um styrk vegna sérstakra erfiðleika í september 2014 en samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki notið fjárhagsaðstoðar sér til framfærslu síðastliðna sex mánuði eða lengur þegar umsókn hennar barst Reykjavíkurborg. Þegar af þeirri ástæðu átti kærandi ekki rétt á styrk vegna sérstakra erfiðleika á grundvelli 24. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Reykjavíkurborgar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 17. september 2014, um synjun á umsókn A um styrk vegna sérstakra erfiðleika vegna fjárhags- og félagslegs vanda að fjárhæð 974.000 krónur er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum