Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 61/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                                    

Miðvikudaginn 10. desember 2014 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 61/2014:

 

Kæra A

á ákvörðun

Reykjavíkurborgar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með kæru, dags. 27. október 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 14. október 2014, á umsókn hans um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 8. september 2014, sótti kærandi um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur hjá Reykjavíkurborg. Umsókn kæranda var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 15. september 2014, með þeim rökum að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði b-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Með bréfi, dags. 16. september 2014, óskaði kærandi eftir undanþágu frá b-lið 4. gr. reglnanna en var synjað með bréfi þjónustumiðstöðvar, dags. 15. september 2014, á þeirri forsendu að skilyrði 5. gr. reglnanna væru ekki uppfyllt. Kærandi áfrýjaði synjuninni til velferðarráðs sem tók málið fyrir á fundi sínum þann 8. október 2014 og samþykkti velferðarráð svohljóðandi bókun:

Velferðarráð staðfesti synjun starfsmanna þjónustumiðstöðvar um undanþágu frá skilyrði b. liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur.

Niðurstaða velferðarráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 14. október 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála 27. október 2014. Með bréfi, dags. 28. október 2014, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærunnar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir synjun á umsókn kæranda. Enn fremur var óskað eftir gögnum sem lágu fyrir og gæfu upplýsingar um fjárhag kæranda. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 3. nóvember 2014. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 4. nóvember 2014, var bréf Reykjavíkurborgar sent kæranda til kynningar. Athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi, dags. 10. nóvember 2014, og voru þær sendar Reykjavíkurborg til kynningar með bréfi, dags. 12. nóvember 2014. Athugasemdir bárust frá Reykjavíkurborg 21. nóvember 2014 og voru þær sendar kæranda til kynningar með bréfi, dags. sama dag. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að velferðarráð hafi staðfest synjun um undanþágu frá skilyrði b-liðar 4. gr. reglna Reykjavíkurborgar um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur þrátt fyrir að félagsráðgjafi hafi mælt með undanþágu. Kærandi hafi verið búsettur á gistiheimili í Reykjavík undanfarin þrjú ár en einungis verið með lögheimili þar í rúmt ár. Áður hafi hann verið skráður óstaðsettur í hús í B. Kærandi greinir einnig frá því að hann sæki alla þjónustu í Reykjavík. Kærandi hafi ekki tök á því að leigja húsnæði á almennum markaði vegna lágra tekna og eigi ekki rétt á húsaleigubótum. Núverandi húsnæði sé til sölu og því sé mikil óvissa í húsnæðismálum kæranda.

 

III. Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar vegna kærumálsins er greint frá aðstæðum kæranda. Vísað er til 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík þar sem sett séu fram tiltekin skilyrði í a–e-liðum sem umsækjandi þurfi að uppfylla til að umsóknin taki gildi. Í b-lið 4. gr. reglnanna sé kveðið á um að umsækjandi þurfi að eiga lögheimili í Reykjavík þegar umsókn sé lögð inn og að minnsta kosti síðustu þrjú árin samfleytt áður en umsókn berst. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands hafi kærandi aðeins verið skráður með lögheimili í Reykjavík frá 10. febrúar 2014 og uppfylli því ekki skilyrði b-liðar 4. gr. um þriggja ára samfellda búsetu.

Í 5. gr. reglnanna séu undanþáguákvæði frá settum skilyrðum í 4. gr. en heimilt sé samkvæmt a-lið að veita undanþágu frá lögheimili í Reykjavík í þrjú ár hafi umsækjandi búið í Reykjavík stóran hluta ævi sinnar en flutt tímabundið úr sveitarfélaginu vegna húsnæðisvanda, náms eða vinnu. Lögheimili kæranda sé skráð í Reykjavík frá 10. febrúar 2014 og því uppfylli kærandi ekki skilyrði a-liðar 5. gr. reglnanna. Þá sé einnig heimilt að veita undanþágu frá lögheimili byggða á faglegu mati ef um mikla félagslega erfiðleika sé að ræða, sbr. lið 5c í matsviðmiði, sbr. fylgiskjal 1 með reglum um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík. Undanþáguákvæðið sé heimildarákvæði og því sé ekki skylt að veita slíka undanþágu. Við mat á undanþáguákvæði b-liðar hafi félagslegur vandi kæranda verið metinn til tveggja stiga þar sem hann væri með lítið stuðningsnet og að kljást við veikindi. Kærandi sé öryrki og hafi átt við félagslega erfiðleika að stríða en velferðarráð hafi talið að þrátt fyrir erfiðar aðstæður kæranda væru þær ekki með þeim hætti að veita bæri undanþágu á grundvelli b-liðar 5. gr. reglnanna.

Með hliðsjón af öllu framansögðu hafi það verið mat velferðarráðs að ekki bæri að veita kæranda undanþágu frá skilyrði b-liðar 4. gr. reglnanna.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 16. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum XVII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík frá 1. mars 2004, með síðari breytingum. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Reykjavíkurborg hafi borið að samþykkja umsókn kæranda um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur.

Kærandi sótti um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur hjá Reykjavíkurborg. Umsókn hans var synjað á þeirri forsendu að skilyrði b-liðar 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík væru ekki uppfyllt. Þá taldi Reykjavíkurborg að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði b-liðar 1. mgr. 5. gr. reglnanna um að eiga í miklum félagslegum erfiðleikum.

Í 4. gr. reglna um félagslegar leiguíbúðir og sérstakar húsaleigubætur í Reykjavík er að finna skilyrði fyrir því að umsókn verði metin gild og þarf umsækjandi að uppfylla öll skilyrði sem fram koma í a–e-liðum 1. mgr. ákvæðisins. Í b-lið 4. gr. framangreindra reglna Reykjavíkurborgar er gert að skilyrði að umsækjandi eigi lögheimili í Reykjavík þegar sótt er um og a.m.k. síðustu þrjú árin samfleytt áður en umsókn berst. Samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá var kærandi búsettur í B til 10. febrúar 2014 en þá flutti hann lögheimili sitt til Reykjavíkur. Kærandi sótti um sérstakar húsaleigubætur með umsókn, dags. 8. september 2014. Það liggur því ljóst fyrir að kærandi átti ekki lögheimili í Reykjavík síðustu þrjú ár samfleytt áður en umsókn um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur barst Reykjavíkurborg.

Í 5. gr. reglnanna er kveðið á um undanþágur frá skilyrðum 4. gr. um lögheimili og tekjuviðmið. Á grundvelli a-liðar 5. gr. reglnanna er heimilt að veita undanþágu frá lögheimili hafi umsækjandi búið í Reykjavík stóran hluta ævi sinnar en flutt tímabundið úr sveitarfélaginu vegna húsnæðisvanda, náms eða vinnu. Það er mat úrskurðarnefndarinnar að skilyrði a-liðar séu ekki uppfyllt enda flutti kærandi fyrst til Reykjavíkur í febrúar 2014. Ekki verður miðað við annað en skráningu lögheimilis í þjóðskrá.

Þá er á grundvelli b-liðar 5. gr. reglnanna heimilt að veita undanþágu frá lögheimili sé umsækjandi samkvæmt faglegu mati ráðgjafa í mjög miklum félagslegum erfiðleikum, sbr. lið 5 c í matsviðmiði sem fylgir reglunum. Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg voru félagslegar aðstæður kæranda metnar til tveggja stiga sem er nokkur félagslegur vandi samkvæmt lið 5 c í matsviðmiði sem fylgir reglum sveitarfélagsins. Skilyrði fyrir undanþágu er að félagslegar aðstæður séu metnar til fjögurra stiga sem er mjög mikill félagslegur vandi. Ekki hefur verið rökstutt með fullnægjandi hætti af hálfu Reykjavíkurborgar hvernig aðstæður kæranda voru metnar, sérstaklega með tilliti til framangreindra sjónarmiða. Þá er í gögnum málsins ekki að finna upplýsingar um aðstæður kæranda hvað þessi viðmið varðar.

Úrskurðarnefndin hefur margsinnis gert athugasemdir við vinnubrögð Reykjavíkurborgar þegar kemur að mati á því hvort umsækjendur uppfylla b-lið 5. gr. reglnanna. Að mati nefndarinnar er brýnt að matið sé framkvæmt með fullnægjandi hætti og að niðurstaða matsins sé skráð á viðeigandi hátt. Nauðsynlegt er að ljóst sé af málsgögnum að sérstakt mat hafi verið lagt á aðstæður umsækjenda samkvæmt lið 5 c í matsviðmiði fylgiskjals 1 með reglum Reykjavíkurborgar. Beinir úrskurðarnefndin þeim tilmælum til sveitarfélagsins að framkvæmd og ákvarðanataka í sambærilegum málum verði framvegis í samræmi við framangreind sjónarmið.

Með vísan til framangreinds er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki liggi fyrir að aðstæður kæranda hafi verið rannsakaðar með fullnægjandi hætti, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Getur úrskurðarnefndin því ekki lagt mat á það hvort sú ákvörðun hafi verið byggð á lögmætum sjónarmiðum. Hin kærða ákvörðun verður því felld úr gildi og lagt fyrir Reykjavíkurborg að taka málið til nýrrar meðferðar.

 

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 14. október 2014, um synjun á umsókn A um félagslega leiguíbúð og sérstakar húsaleigubætur er felld úr gildi og lagt fyrir sveitarfélagið að taka málið til nýrrar meðferðar.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum