Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 68/2014

Úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu, 101 Reykjavík

                                                   

Miðvikudaginn 14. janúar 2015 var á fundi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 68/2014:


Kæra A

á ákvörðun

Hafnarfjarðarbæjar

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A hefur með bréfi, dags. 18. nóvember 2014, skotið til úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála synjun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 7. nóvember 2014, á beiðni hans um sérstakar húsaleigubætur.

 

I. Málavextir og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 13. júní 2014, sótti kærandi um sérstakar húsaleigubætur hjá Hafnarfjarðarbæ. Umsókn kæranda var synjað með bréfi Fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar, dags. 13. júní 2014, með þeim rökum að hann hafi ekki átt lögheimili í Hafnarfirði samfellt síðastliðna tólf mánuði líkt og kveðið væri á um í 15. gr. reglna um úthlutun á almennu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ og sérstakar húsaleigubætur. Kærandi áfrýjaði synjuninni til fjölskylduráðs Hafnarfjarðar með bréfi, dags. 31. október 2014. Fjölskylduráð tók málið fyrir á fundi sínum þann 7. nóvember 2014 og samþykkti svohljóðandi bókun:

Fjölskylduráð Hafnarfjarðar staðfestir niðurstöðu Fjölskylduþjónustunnar um að synja beiðni umsækjanda um sérstakar húsaleigubætur með vísan til 15. gr. reglna um úthlutun á almennu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ og sérstakar húsaleigubætur, þar sem skilyrði um lögheimili í eitt ár í Hafnarfirði er ekki uppfyllt í tilviki umsækjanda.

Niðurstaða fjölskylduráðs var tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 7. nóvember 2014. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála með bréfi, dags. 18. nóvember 2014. Með bréfi, dags. 20. nóvember 2014, óskaði úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála eftir greinargerð Hafnarfjarðarbæjar vegna kærunnar þar sem meðal annars kæmi fram rökstuðningur fyrir synjun um sérstakar húsaleigubætur. Enn fremur var óskað eftir öllum gögnum málsins. Beiðni um greinargerð var ítrekuð með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 10. desember 2014. Greinargerð Hafnarfjarðarbæjar barst með bréfi, dags. 15. desember 2014. Með bréfi úrskurðarnefndar félagsþjónustu og húsnæðismála, dags. 19. desember 2014, var bréf Hafnarfjarðarbæjar sent kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

 

II. Málsástæður kæranda

Kærandi greinir frá því að hann búi við mjög erfiðar fjárhagslegar aðstæður þar sem hann sé með framfærslu frá félagsþjónustu Hafnarfjarðar sem dugi ekki fyrir mánaðarlegum útgjöldum en hann sé einnig með miklar skuldir. Kærandi hafi flutt lögheimili sitt til Hafnarfjarðar í maí 2014 en hann hafi þá verið kominn með samþykki fyrir sérstökum húsaleigubótum í Sveitarfélaginu B. Hann hafi ekki fundið neitt leiguhúsnæði þar og hafi því verið knúinn til þess að flytja í annað sveitarfélag. Hann hafi fundið íbúð í Hafnarfirði en ekki fengið sérstakar húsaleigubætur og þá hafi fjárhagsstaða hans versnað.

Þá greinir kærandi frá því að hann hafi gengið í gegnum mikla erfiðleika síðastliðin ár sem hafi haft slæm áhrif á andlega heilsu hans. Fjárhagslegir erfiðleikar valdi honum miklum áhyggjum og kvíða sem tefji bataferlið. Kærandi kveðst eiga fjögur börn sem komi til hans aðra hverja helgi.

 

III. Sjónarmið Hafnarfjarðarbæjar

Í greinargerð Hafnarfjarðarbæjar vegna kærunnar kemur fram að í gildi séu reglur um úthlutun á almennu leiguhúsnæði og sérstakar húsaleigubætur sem hafi verið settar árið 2005 en hafi tekið nokkrum breytingum í gegnum árin. Á árinu 2009 hafi bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkt að taka upp greiðslu sérstakra húsaleigubóta og reglunum hafi því verið breytt, sbr. 15. gr. reglnanna. Þar segi að heimilt sé að greiða sérstakar húsaleigubætur til leigjenda í Hafnarfirði sem búi við mjög erfiðar fjárhagslegar aðstæður. Þann 1. febrúar 2014 hafi verið bætt við skilyrði um að leigjendur skyldu hafa átt lögheimili í Hafnarfirði a.m.k. síðustu tólf mánuði samfellt til að öðlast rétt til greiðslu sérstakra húsaleigubóta. Kærandi hafi flutt lögheimili sitt í Hafnarfjörð í maí 2014, en þá hafi þetta skilyrði reglnanna ekki verið uppfyllt og því hafi beiðni hans um sérstakar húsaleigubætur verið synjað. Að mati fjölskylduráðs Hafnarfjarðar hafi því verið ljóst að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði til að fá greiddar sérstakar húsaleigubætur.

 

IV. Niðurstaða

Málskotsheimild kæranda er reist á 16. gr. laga um húsaleigubætur, nr. 138/1997. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum XVII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991. Fyrir nefndinni liggja reglur um úthlutun á almennu leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ og sérstakar húsaleigubætur sem samþykktar voru í bæjarstjórn þann 3. maí 2005 með breytingum sem tóku gildi þann 1. febrúar 2014. Í máli þessu er ágreiningur um það hvort Hafnarfjarðarbæ hafi borið að samþykkja umsókn kæranda, dags. 13. júní 2014, um sérstakar húsaleigubætur.

Um sérstakar húsaleigubætur er fjallað í VI. kafla framangreindra reglna Hafnarfjarðarbæjar en þar segir í 15. gr.:

Heimilt er að greiða sérstakar húsaleigubætur til þeirra leigjenda í Hafnarfirði sem búa við mjög erfiðar fjárhagslegar aðstæður og hafa átt lögheimili í Hafnarfirði a.m.k. síðustu 12 mánuði samfellt. Tekjumörk miðast við að árstekjur nemi eigi hærri fjárhæð en 2.863.585.- kr. fyrir einstakling og 479.378.- kr. fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu. Viðmiðunarmörk hjóna/sambúðarfólks/einstaklinga í staðfestri samvist skulu vera 4.010.032.- kr.

Umsókn kæranda var synjað á þeirri forsendu að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði 15. gr. reglnanna um lögheimili. Í framangreindum reglum Hafnarfjarðarbæjar er ekki kveðið á um undanþágu frá skilyrði 15. gr. um lögheimili. Að því virtu er það mat úrskurðarnefndarinnar að skilyrði 15. gr. reglnanna um lögheimili í Hafnarfirði síðustu tólf mánuði samfellt sé fortakslaust. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi átt lögheimili í Hafnarfirði frá maí 2014 og uppfyllir því ekki skilyrði 15. gr. reglnanna um lögheimili.

Almennt ber sveitarfélögum að gæta jafnræðis og samræmis við ákvörðun um fjárhagsaðstoð. Það er álit úrskurðarnefndarinnar að ekkert hafi komið fram um að mat Hafnarfjarðarbæjar á aðstæðum kæranda hafi verið ómálefnalegt eða andstætt þeim reglum sem um það gilda. Með vísan til þessa ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar.

 

Úrskurð þennan kváðu upp Bergþóra Ingólfsdóttir formaður, Arnar Kristinsson og Gunnar Eydal, meðnefndarmenn.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

 

Ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 7. nóvember 2014, um synjun á umsókn A um sérstakar húsaleigubætur er staðfest.

 

Bergþóra Ingólfsdóttir, formaður

Arnar Kristinsson

Gunnar Eydal



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum